Bæjarins besta - 28.11.1990, Qupperneq 20
26 dagar til jóla ’90
Gerfijólatré, 90,120,150,180 sm.
frá kr. 1.990,-
Aðventuljós, stjörnur og ttttt
jólaseríur í úrvali. straumur
Ath! Opið á laugardag kl. 10-14. S. 3321 ■ ÍSAFIRÐI
• Villi Magg hefur veitt 61 tonn af skel á vegum Hafrannsóknarstofnunar.
ísafjarðardjúp:
Stofnmælingum á hörpudiski
lokið í í safjarðardj úpi
Flateyri:
Grunn-
skólinn
á floti
FELLA varð niður kennslu á
föstudaginn í Grunnskóla
Flateyrar vegna bilunar á hita-
kerfi skólans. Vatn tók að
streyma upp um gólf á neðri hæð
byggingarinnar og varð að bijóta
upp stóran hluta gólfsins til að
stöðva lekann.
Allur þrýstingur var farinn
af kerfinu og var því ákveðið
að fella niður kennslu þann
dag. Unnið var að bráða-
birgðaviðgerð á hitakerfinu og
að sögn Vigfúsar Geirdal
skólastjóra, þarf að taka allt
hitakerfið til gagngerðra
endurbóta fyrir næsta vetur.
Skólahald hófst að nýju á
mánudaginn.
EFTIR að kúfiskveiði-
skipið Villi Magg ÍS
hætti tilraunaveiðum fyrir
ísver, tók Hafrannsóknar-
stofnun skipið á leigu til að
framkvæma svokallaða
stofnmælingu á hörpudisk í
ísafjarðardjúpi. Mælingarn-
ar hófust 27. okt. og lauk
þeim 15. nóvember. A þeim
tíma veiddust 45 tonn af
hörpudisk og að sögn Halls
Viggóssonar frkvstj. Isvers
var skelin sem Villi Magg
veiddi, frekar smá en hún er
talin vera um 30 ára gömul.
Það var Guðmundur Skúli
Bragason hjá Hafrannsókn-
arstofnun á ísafirði sem sá
um framkvæmd stofnmæl-
ingarinnar. Við spurðum
hann hverjar niðurstöðurnar
hefðu verið. „Niðurstöður
liggja ekki endanlega fyrir
ennþá, en það verður mjög
fljótlega. Það var farið yfir
allar þekktar hörpudiskslóð-
ir í Djúpinu og svæðin kort-
lögð og stofnmæld. Síðustu
stofnmælingar fóru fram
1986 en þar áður voru þær
framkvæmdar annað hvert
ár.
Fyrstu hörpudiskmiðin
fundust 1969 við Sléttu í Jök-
ulfjörðunum. Árið 1972
voru veidd 2000 tonn af
hörpudiski í Djúpinu og
reyndist það vera alltof mik-
ið álag á stofninn. Árið eftir
féll aflinn niður í 1000 tonn
og hefur síðan verið í kring-
um 500-600 tonn á ári. Til að
mynda eru veiðiheimildir á
hörpudiski fyrir þessa vertíð
500 tonn. Það er stefnt að
því að framkvæma næstu
stofnmælingu á næsta ári,
líklega í mars- apríl, og þá á
Dröfninni“. sagði Guð-
mundur Skúli að lokum.
Villi Magg hefur aflað
samtals 61 tonn af hörpu-
diski á þeim stutta tíma sem
skipið hefur verið gert út til
veiðanna. Ennþá er óvíst
með afdrif skipsins en það
hefur verið frá veiðum síðan
kúfiskvinnslan Bylgjan hf.
var gjaldþrota á sínum tíma.
Vestfirðir:
Allir aðalfjallvegir færir
IÓVEÐRINU sem geysaði
íyrir helgi lokuðust allir fjal-
Ivegir á Vestfjörðum vegna
skafrennings og snjókomu. í
gær, þriðjudag, þegar þetta var
skrifað voru hinsvegar allir
aðalfjallvegir á Vestfjörðum
færir.
Hafist var handa við mokst-
ur í gærmorgun og lauk því
verki í gærkvöldi. Frekarlítill
snjór var á heiðunum og
þurfti því aðeins að skafa í
gegn. Mikill snór hafði þó
safnast fyrir á Hrafnseyrar-
heiði. Meðan frostlaust er, er
mikil hálka á fjallvegum og
rétt að benda þeim sem eiga
leið yfir heiðar að fara að öllu
með gát.
Á láglendi var víða slæm
færðfyrirhelgina. Flestargöt-
ur á f safirði urðu illfærar strax
á föstudeginum en voru opn-
aðar strax af starfsmönnum
ísafjarðarkaupstaðar. Eyjólf-
ur Bjarnason, forstöðumaður
tæknideildar ísafjarðar sagði
í samtali við blaðið að mokst-
ur hefði hafist strax á föstu-
dagmorgninum og hefði verið
haldið áfram að moka fram á
sunnudag. Var hann ánægður
með störf sinna manna sem
unnu vel um helgina.
-5.
CREDA TAUÞURRKARAR
Allar deildir opnar laugardaginn 1. des ki. 13-16.
á jólatilboði til 10. desember
Aðeins kr. 24.110.- stgr.
RAFSJÁ
Hólastíg 6
Bolungarvík
Sími T326
Gjafavörudeild verður
opin kl. 13-20.
£inar (juðfjinnsson kfa.