Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 6

Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 6
Að baki er tíðindamikið og fordæmalaust ár í íslensku viðskipta- og efna- hagslífi. Á mörgum sviðum hefur mikið gengið á og aldrei í nútímasögu landsins hefur hagkerfið skroppið jafn harkalega saman. Stærsta atvinnu- grein landsins, ferðaþjónustan, hvarf svo að segja á einni nóttu og í kjölsog- inu af brotthvarfi hennar hafa nær allir aðrir atvinnuvegir landsins þurft að fóta sig upp á nýtt. Fyrir dyrum er mikil hagræðing og uppstokkun og þar mun skilja milli sig- urvegara og þeirra sem ekki ná að standa af sér storminn stóra. Margt af því fólki sem er í forystu íslensks atvinnulífs hefur veitt Viðskipta- Mogganum viðtal á árinu sem er að líða. Þá hafa einnig forystumenn á ólík- um sviðum erlendis sest niður með blaðamönnum og veitt ómetanlega inn- sýn í mál sem ofarlega hafa verið á baugi síðustu misserin. Hér á opnunni getur að líta nokkur dæmi um innlegg viðmælenda blaðsins á árinu. Auk þessara viðtala birtu blaðamenn ViðskiptaMoggans fréttaskýr- ingar um ýmis málefni á árinu sem ástæða þótti til að varpa skýrara ljósi á. Rætt við forystufólk innanlands og utan 6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020VIÐTÖL 2020 Við búum yfir svokölluðum gríðargögnum um fast- eignamarkaðinn á Íslandi. Þar nýtum við okkur gervi- greind sem tekur markaðsupplýsingar sem teknar eru saman á ólíkum stöðum, greinir þær og kemur á framfæri með þeim hætti sem fólk getur hagnýtt sér. Þessi gögn eru m.a. sótt með því að við kaupum aðgang að þinglýstum kaupsamningum fasteigna, við keyrum saman upplýsingar af fasteignavefjum og fleira og tökum m.a. inn í þær niðurstöður sem kerfin okkar hafa áður komist að. Þannig lærir kerfið smátt og smátt og verður sífellt öflugra við að upplýsa fólk um raunverulega stöðu markaðarins. […] Tekjumódelið er í þróun en við tengjum t.d. lántakendur eða kaupendur og þjónustuveitendur saman. Við búum til virði fyrir þessa aðila með því að einfalda fólki ferlið sem það er í á hverjum tíma og vonumst til að neytendur launi okkur það með því að klára ferlið á Aurbjörgu.“ 19. febrúar Auður Björk Guðmundsdóttir frkv.stjóri Two Birds ” Það eru mikil mistök að miða allt út frá sjálfum sér, því það er ekki veruleikinn. Það eina sem dugar er að stunda langtímamarkaðssetningu í öllum miðlum í bland, og um allt land. Það skilar árangri til lengri tíma. Svo ítreka ég aftur og aftur að strategía er gríðarlega mikilvæg. […] Áhrifavaldar eru mjög ofmetnir. Málið er að þeir segj- ast gjarnan vera með svo og svo marga fylgjendur, en svo eru kannski bara 30% sem sjá efnið frá þeim, svo maður tali nú ekki um vélmennin (e. bots) sem eru ansi fyrirferð- armikil á samfélagsmiðlum. […] 80-90% af markaðsfólki í heiminum vita ekkert hvað þau eru að gera, þótt þau haldi kannski að þau viti allt og kunni allt, og telji nóg að setja bara auglýsingu á Face- book.“ 26. febrúar Mark Ritson markaðssérfræðingur ”Það er ekkert mál að finna bílastæði niðri í bæ. Við er-um með fjögur þúsund stæði í bílakjöllurum og þús-undir af stæðum ofanjarðar. Það er bara ekki satt þegar sagt erað fólk komi ekki í bæinn út af bílastæðavanda. […]Það eru bæði skiptar skoðanir meðal félagsmanna og stjórn- armanna í félaginu. Félagið tekur ekki opinbera afstöðu, enda er það ekki pólitískt. Við vinnum fyrst og fremst að markaðs- setningu fyrir miðborgina, og ég vil bara segja það að reglu- legar upphrópanir örfárra kaupmanna við Laugaveginn um að allt sé ómögulegt í miðborginni er versta markaðssetning sem til er. Ef sú mantra er síendurtekin í fjölmiðlum fer fólk að trúa því. Það er alltaf verið að hamra á því að bærinn sé að tæmast af verslunum en ekki er minnst á 60 nýja rekstraraðila í mið- borginni sem bæst hafa við, bæði verslanir, veitingahús og kaffihús.“ ” 15. janúar Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku Okkar spá gerir ráð fyrir því að það muni taka ein- hverjar vikur eða mánuði áður en allir vilja fljúga með MAX-vélunum. En þegar þær verða komnar í loftið og fólk sér að þær eru öruggar þá teljum við að það verði ekki þröskuldur fyrir neinn að fara um borð í MAX-vélarnar. [...] Það verða tækifæri fyrir Icelandair eins og önnur fyrirtæki sem munu koma sterk út úr faraldrinum. Icelandair verður eft- irsóttur mótaðli hjá flugvélaframleiðendum og fjármögn- unarfyrirtækjum á næstu árum og við hyggjumst nýta okkur þá stöðu. [...] Það að reka flugfélag mun alltaf fela í sér vanda- sama samninga við flugstéttir. Það kemst ekkert félag undan því, ekki einu sinni þau sem stofnuð eru ný frá grunni. Ryanair lendir t.d. reglulega í vanda með þetta og þannig má í raun telja upp öll flugfélög heimsins.“ 26. ágúst Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ” Ef þessi kreppa dregst á langinn þá er ekki hægt aðorða það með einfaldari hætti en að segja: við höfumekki efni á þessu, við höfum ekki efni á allri þessari opinberuþjónustu og þurfum að aðlaga okkur að breyttum veruleika.Rétt eins og hin hagsýna húsmóðir myndi gera. Að heimilið hefði ekki lengur efni á þeim lífskjörum sem heimilismenn hefðu tamið sér. Fyrir þeim væri engin innistæða. Þau lífskjör birtast okkur hvarvetna dagsdaglega, frá leikskólastiginu inn á hjúkrunarheimilin, útgjöldin renna út í gegnum almannatrygg- ingar, menntastofnanir, heilbrigðiskerfið og félagslega kerfið, þessa stóru útgjaldaliði okkar. Ef hagvöxtur lætur á sér standa, þá náum við ekki endum saman í allt of mörg ár. Staðan nú er hins vegar þannig að við þolum nokkur ár af hallarekstri án þess að skuldahlutföllin stefni í mikið óefni. 2. september Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ” Við höfum séð nokkur fyrirtæki fara í gjaldþrota- meðferð eftir að kreppan hófst og ef hún heldur áfram mun skapast þrýstingur á mörg fyrirtæki. Heilu at- vinnugreinarnar, á borð við flugið, munu lifa af ef stjórnvöld eru reiðubúin að styðja við þær í gegnum kreppuna. [...] Þjóð- ríki taka lán í fullvissu þess að þegar komið er að skuldadögum muni þau geta fengið lán hjá öðrum til að endurfjármagna lán. Og þegar komið er að skuldadögum á nýja láninu munu þau endurfjármagna aftur og svo er þetta endurtekið út í hið óend- anlega. Hvað myndi gerast, í slíku umhverfi, ef fjármagns- markaðir yrðu á ný veiklaðir og það yrði annað „skyndilegt stopp“ í fjármagnsflæðinu, líkt og í mars á þessu ári. Þegar þau geta ekki lengur endurfjármagnað skuldir sem komnar eru á gjalddaga.“ 9. september Lee Buchheit sérfræðingur ” Þessi markaður hefur breyst gífurlega á síðustu árum. Ég hef verið spurður að því í 20 ár hvort hann sé ekki að mettast og ég held að svarið við því sé nei. Það eru um 20 þúsund ferðavagnar í landinu núna og þeir eru allir í mikilli notkun, líklegast meiri notkun en nokkru sinni fyrr. Og val fólks breytist. Einu sinni voru allir með fellihýsi og nú eru þau að hverfa af markaðnum. Færri vilja tjaldvagnana en áherslan er öll á hjólhýsin. Þar eru mikil sóknarfæri. […] Fyrir fimm ár- um seldum við ekkert af uppblásnum fortjöldum. Eitt og eitt kannski. Núna seljum við þau í gámavís. Það eru mörg hundruð slík tjöld farin í ár og eftirspurnin er gríðarleg. Ég veit ekki hvað skýrir þessar breytingar en markaðurinn breytist með mjög afgerandi hætti.“ 8. júlí Arnar Barðdal eigandi Víkurverks ”

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.