Morgunblaðið - 30.12.2020, Side 11

Morgunblaðið - 30.12.2020, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 11ÁRAMÓT Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Órjúfanlegur hluti af jólunum Vantar fyrirtækið þitt gæða prentefni? Við bjóðum fjöl- breyttar lausnir hvort sem er í offset eða stafrænt. Komdu við í kaffisopa og við finnum leið sem hentar best hverju sinni. PRENTVERK Morgunblaðið/Árni Sæberg ViðskiptaMogginn bauð framkvæmdastjórum hagsmunasamtaka í at- vinnulífinu að horfa fram á næsta ár, líkt og áður hefur verið gert á þess- um vettvangi við áramót. Væntingar á nýju ári Allt um sjávarútveg Efnahagsleg endurreisn er fram- undan og er leið vaxtar eina raun- hæfa leiðin. Það er aðdáunarvert hvernig starfsmönnum og stjórn- endum fyrirtækja landsins tókst að halda uppi starfsemi við ótrú- lega erfiðar og krefjandi aðstæður á árinu og minnir okkur á mikilvægi öflugs iðnaðar á Íslandi. Orkusækinn iðnaður hefur verið burðarstoð í ríf- lega hálfa öld. Eigi svo áfram að vera – og við því þarf skýr svör frá stjórnmálamönnum – þarf að ráð- ast í tímabærar umbætur á umgjörð raforkumála. Kaupendur raforku eru fjölbreyttari hópur en áður og verður regluverkið að taka mið af því. Verðlagn- ing verður að vera samkeppnishæf og á það við um alla virðiskeðjuna. Í menntamálum, sem einnig má kalla mannauðs- mál, er brýnast að fjölga iðn- og tæknimenntuðum enda vantar þá á vinnumarkað. Einnig er nauðsyn- legt að liðka fyrir komu erlendra sérfræðinga hing- að til lands. Þessi mál eru komin vel af stað. Innviðir landsins eru illa farnir eftir fjársvelti undanfarins áratugar og skuldinni hefur þar með verið skellt á framtíðarkynslóðir. Stórauka þarf framlög til viðhalds og uppbyggingar innviða og með því er eftirspurn aukin þegar þess er helst þörf. Umgjörð nýsköpunar gjörbreyttist til hins betra árið 2020 og með því er fjárfest í eflingu hug- verkaiðnaðar, fjórðu stoðarinnar. Með réttum ákvörðunum, með því að hlaupa hraðar og sækja tækifærin getur sú stoð hæglega orðið öflugasta út- flutningsstoð þjóðarbúsins. Þetta á að vera helsta forgangsverkefni stjórnvalda. Starfsumhverfi fyrirtækja er á margan hátt óskil- virkt og óhagkvæmt. Með frekari einföldun reglu- verks og umbótum þar að lútandi og með því að stilla skattheimtu og gjaldtöku í hóf má auka verð- mætasköpun. Má þar nefna tryggingagjaldið og fasteignagjöld sveitarfélaga sem eru mjög íþyngj- andi. Einfalda þarf regluverk byggingariðnaðar og verklegra framkvæmda. Þannig verður nauðsynleg uppbygging íbúða og innviða hagkvæmari. Hvetja þarf til fjárfestinga en ekki beita neikvæðum hvöt- um. Þetta á vel við í loftslagsmálum. Samtök iðnaðarins Sigurður Hannesson Forsenda þess að hér á landi blómgist áliðnaður til langrar framtíðar er að rekstrarskilyrðin séu samkeppnishæf. Álverð ræðst á heimsmarkaði og því er ekki hægt að velta umframkostnaði út í verðið. Það er því mikilvægt að staðbundinn kostnaður sé samkeppnishæfur. Þessu fengu Ítalir að kynnast þegar öll álfram- leiðsla lagðist þar niður fyrir um áratug vegna ósam- keppnishæfs raforkukostnaðar, en framleiðslan þar nam þremur milljónum tonna og var því þrefalt meiri en hér á landi. Í nýrri orkustefnu sem kynnt var í haust er sam- keppnishæfni einmitt á meðal grunngilda og eins er lögð áhersla á þjóðhagslegan ávinning, þ.e. að orkan nýtist til að ýta undir verðmætasköpun í atvinnulífinu. Nýverið skilaði þýska greiningarfyrirtækið Fraunhofer skýrslu um alþjóðlega samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi með sérstakri áherslu á raf- orkuverð. Þar kom fram að ekki væru allir stóriðju- samningar samkeppnishæfir, sem er áhyggjuefni, og einnig var áhyggjum lýst af samkeppnisstöðu orku- sækins iðnaðar á Íslandi með hliðsjón af endur- greiðslum stjórnvalda á ETS-hluta raforkuverðsins til stóriðju í Noregi, Þýskalandi og öðrum Evrópu- ríkjum. Ljóst er að þær endurgreiðslur fara hækk- andi og grafa undan samkeppnisstöðunni hér heima. Í kjölfarið á skýrslunni setti iðnaðarráðherra af stað vinnu við endurskoðun flutningskostnaðar raf- orku, en samkvæmt skýrslu Fraunhofer erum við ekki samkeppnishæf þar. Ljóst er að horfa þarf á heildarsamhengið þegar samkeppnishæfnin er met- in. Þar spilar margt inn í sem ekki var til skoðunar hjá Fraunhofer, svo sem styrkjaumhverfi vegna fjár- festinga, rannsókna og þróunar, stærðarhagkvæmni og nálægð við markaði, en á öllum þessum sviðum á Ísland undir högg að sækja. Góðu fréttirnar eru þær að eftirspurn áls fer áfram vaxandi, en léttleiki þess veldur því að það nýtist til að draga úr losun, einangrunargildið dregur úr orku- og matvælasóun og svo er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess það tapi upprunalegum eig- inleikum sínum. Auk þess er orkan hér á landi end- urnýjanleg og heildarlosun við álframleiðsluna hvergi minni en hér á landi. Samál Pétur Blöndal Það verður ekki annað sagt en að árið 2020 hafi verið annus horri- bilis í öllum skilningi, einnig í atvinnulífinu. Nú í lok árs eru meira en 25 þúsund manns atvinnulaus eða á hlutaatvinnuleysisbótum. Forgangsverkefni ársins 2021 ætti að vera að skapa atvinnu fyrir þetta fólk. Til þess þarf að mynda grundvöll til þess að fjárfesting geti átt sér stað í atvinnulífinu. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að reyna, að svo miklu leyti sem hægt er, að skapa meiri fyrirsjáanleika. Tímasetta áætlun um bólusetningar og skýrari upp- lýsingar um hvaða áhrif þær munu hafa á sóttvarnaráðstafanir eins og samkomutak- markanir og lokun landamæra. Við þurfum langtímaáætlun um afléttingu sam- komutakmarkana og fyrirkomulag á landamærum. Í öðru lagi þarf að skapa skattalega hvata til fjárfestinga. Fjármála- og efnahags- ráðherra lagði fram frumvarp fyrr í mánuðinum sem stígur ákveðin skref í þá átt. Á sama tíma þarf að huga að því að við stöndum einnig frammi fyrir verulegum vanda vegna hlýnandi loftslags. Fjárfesting er einnig lausnin við þeim vanda. Auknir hvatar til grænna fjárfestinga myndu því slá tvær flugur í einu höggi. Í þriðja lagi þarf að tryggja að við skattleggjum okkur ekki út úr þessari kreppu, eins og reynt var að gera í þeirri síðustu. Raunar er það svo að hluti þeirra skatta- hækkana stendur enn óhaggaður. Það myndi bitna hart á heimilum og fyrirtækjum og tefja fyrir endurreisn þeirra. Hið opinbera þarf að standa vörð um grunnþjónustu, svo sem velferðar- og menntakerfin og öryggi almennings, með því að forgangsraða fjár- munum til hennar. Á sama tíma er nauðsynlegt að sýna talsvert meira aðhald í öðrum útgjaldaliðum. Árið 2020 var annus horribilis vegna utanaðkomandi ógnar sem við áttum erfitt með að verjast. Það er hins vegar í okkar höndum hvort árið 2021 verði annus mirabilis. Ár- ið sem uppbyggingin hófst af krafti. Samtök atvinnulífsins Halldór Benjamín Þorbergsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.