Morgunblaðið - 12.12.2020, Side 8

Morgunblaðið - 12.12.2020, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ etta er meðal þess sem kemur fram í vísindagrein um tilfærslur í botn- fiskveiðum á Íslandi sem birt var í Proceedings of the National Aca- demy of the Sciences í haust. Maartje Oostdijk, doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og einn höfunda greinarinnar, segir meðal annars áhugann á fiskveiðistjórnunarkerfum hafa hvatt sig til náms hér á landi og er greinin hluti af doktorsritgerð hennar. „Mér þótti kjörið tækifæri að skoða svona tilfærslukerfi því það eru fleiri kerfi í heim- inum sem veita fiskveiðimönnum heimild til þess að aðlaga aflann sem hefur verið veiddur að veiðiheimildunum, en kerfið á Íslandi er með þeim umfangsmestu auk þess sem til er gríðarlegt magn af gögnum. Það góða við ís- lenska kerfið er að það er öflug skráning gagna. Það eru til að mynda skráðar upplýs- ingar jafn óðum hjá Fiskistofu og þannig er töluvert af gögnum sem vísindamenn geta skoðað og lagt mat á kerfið,“ segir Maartje. Tilfærsla eykur þrýsting á stofna „Við vildum sérstaklega skoða þann hluta fiskveiðigervisins sem snýr að tegunda- tilfærslum þar sem grunur var um að það gæti leitt til veiði umfram ráðlagt aflamark, því það hefur verið tilfellið innan annarra kerfa í heiminum sem einnig hafa heimilað tegundatilfærslur en víða hefur verið ákveðið að hætta því,“ útskýrir hún. Þá sé það vissulega tilfellið að í gegnum tíð- ina hafa verið sett strangari skilyrði fyrir nýt- ingu tegundatilfærslukerfisins í þeim tilgangi að reyna að rúma tilfærsluna innan vís- indalegs ráðlagðs aflamarks. Hins vegar sé það svo að með því að leyfa tegundatilfærslu er verið að auka þrýsting á stofna þar sem skapast hvati til að veiða meira af ákveðnum tegundum en öðrum. Gæti það verið vegna þess að aðstæður veiða eru þannig að hag- kvæmara sé að veiða ákveðna tegund eða ein- faldlega að önnur tegund sé verðmætari. Notuð í hagnaðarskyni Íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið heimilar útgerðum að ákveða samsetningu veiðiheim- ilda á skipum sínum, en það er eðli fiskveiða að það er ávallt óvitað hver samsetning aflans er áður en hann kemur úr sjó. Útgerðir geta brugðist við þessu með sölu eða leigu afla- heimilda, auk þess sem heimilt er að færa aflaheimildir og þannig fullnýta kvóta og komast hjá brottkasti. Tvær leiðir eru færar þegar tilfærslur eru annars vegar en þær eru háðar ströngum skilyrðum. Í fyrsta lagi er hægt að færa afla- heimildir milli fiskveiðiára og í annan stað er hægt að nýta veiðiheimildir í öðrum teg- undum með svokallaðri tegundatilfærslu. Þegar afli er skráður í kerfi Fiskistofu ger- ist tegundatilfærslan sjálfvirkt og verður breyting úr einni tegund í aðra samkvæmt þorskígildum sem eru föst fyrir hvert fisk- veiðiár og fylgja því ekki verðsveiflum innan fiskveiðiársins. Það er þetta sem getur orðið til þess að einhverjir sjá hag sinn í að veiða meira af einni tegund fram yfir aðra, sem um sinn getur leitt til ofveiði og versta tilfelli hruns stofns. Samkvæmt niðurstöðum vísinda- greinarinnar er margt sem bendir til þess að tegundatilfærslan sé oft fremur notuð til að ná fram aukinni hagkvæmni veiða en til að bregðast við óvæntum afla. Maartje segir of- veiði innan kerfisins takmarkaða, en bendir á að oft hefur verið farið yfir sett aflamark stjórnvalda. „Tilhneigingin er að nýta tilfærsl- una til að færa aflaheimildir úr minni stofnum yfir í stærri. Til að mynda hefur tilfærsla yfir í ýsu verið nokkur en þó ekki þannig að aflinn sé það mikið yfir settu aflamarki að það sé í miklu hlutfalli,“ útskýrir hún. Kallar á breytingar „Niðurstaða greinarinnar er að kerfið heldur þó nokkuð góðu jafnvægi milli kröfu sjáv- arútvegsins um sveigjanleika og vist- fræðilegra sjónarmiða. Hins vegar leggjum við til nokkrar tillögur að umbótum,“ segir Maartje. Meðal tillagna höfunda vísindagreinarinnar eru að heimildir útgerða til færslu aflamarks milli fiskveiðiára séu nýttar til fulls áður en heimilt sé að grípa til tegundatilfærslu. Það er einnig lagt til að sett séu mörk á hversu miklum heimildum sé hægt að bæta við í ákveðnum tegundum. „Ég veit svo sem ekki hvernig greinin tekur þessum hugmyndum en þetta er líklegt til þess að draga úr þeirri vá sem steðjar að ýmsum stofnum, til að mynda hlýra,“ fullyrðir Maartje. Hún segir marga kosti við kvótakerfi með framseljanlegum aflaheimildum þar sem brottkast er bannað en bendir á að það sé háð sveigjanleika til þess að það skili þeim árangri sem því er ætlað. Spurð hvort þróunin í heim- inum sé í átt að upptöku slíkra kvótakerfa segir Maartje svo vera. „Það er greinileg hreyfing í átt að upptöku slíkra kerfa á heimsvísu. Þannig að svarið er já. Það er áhugi fyrir þessum kerfum, en þessi fiskveiði- kerfi hafa ekki fengið jafn góðar móttökur alls staðar.“ Þá sýna niðurstöður rannsóknarinnar einn- ig að fiskveiðistjórnunarkerfi þurfa að vera aðlöguð því vistkerfi sem þau eiga að stýra. Vísað er meðal annars til þess að þorskurinn sé burðarstykkið í greininni og þar af leiðandi í kerfinu. Sé slíkt ekki til staðar geti kerfið leitt til ofveiða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Með því að leyfa tegundatilfærslu er verið að auka þrýsting á stofna þar sem skapast hvati til að veiða meira af ákveðnum teg- undum en öðrum, segir Maartje Oostdijk. Sveigjanleiki kvótakerfisins mikill kostur Íslenska kvótakerfið gerir útgerðum kleift að mæta þeirri áskorun sem fylgir því að stjórna ekki hvaða tegundir rata í veiðarfærin og er því hægt að hámarka nýtingu aflaheimilda. Á sama tíma getur regluverkið sem veitir sveigjanleikann ýtt undir veiðar umfram vísinda- lega ráðgjöf. Lagt er til að draga úr svokallaðri tegundatilfærslu og auka þess í stað notkun tilfærslu aflaheimilda milli fiskveiðiára. Morgunblaðið/Árni Sæberg Meðafli krefst einnig aflaheimildir. Séu heimildirnar ekki til staðar er hægt að kaupa og leigja heimildir eða beita tilfærslum milli tegunda og fiskveiðiára. Tegundatilfræslur geta skapast óæskilega hvata.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.