Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.12.2020, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á rið 2013 tóku nokkrir útgerðarmenn sig saman og stofnuðu Samtök smærri útgerða um leið og þeir sögðu skilið við Landssamband smábátaeigenda. „Um það bil 25 bátar eru skráðir í samtökin og félagið því tiltölulega lítið, en þetta eru bátar sem eru í rekstri allt árið og köllum við þetta oft félagsskap atvinnumannanna í krókaaflamarkskerfinu,“ segir Örv- ar Marteinsson, formaður samtak- anna og einn af eigendum Sverr- isútgerðarinnar ehf. í Ólafsvík. Klofningurinn varð vegna skiptra skoðana innan LS um hvort hvetja ætti stjórnvöld til að breyta skil- greiningu smábáta til að ná yfir báta allt að 15 metrum að lengd og eins að gera ýmsar lagfæringar á fyrir- komulagi veiða. Örvar segir það hafa valdið miklum breytingum innan LS þegar strandveiðikerfið var tekið upp fljótlega eftir bankahrun en þá fjölgaði mjög í stétt smábátaútgerð- armanna og hópurinn varð ekki jafn einsleitur og áður því nýliðarnir í greininni eru aðeins starfandi á sjó hluta úr ári. „Gríðarlegur fjöldi af nýjum atkvæðum kom inn í Lands- sambandið og áhrif þeirra sem stunda veiðar árið um kring þynnt- ust út sem því nam. Fljótlega kom í ljós, þegar reynt var að beina stefnu sambandsins í tiltekna átt, að á með- al félagsmanna var mikil andstaða við hvers kyns breytingar sem gætu greitt leið stækkunar og hagræð- ingar í stéttinni.“ Kvóti kæmi í stað veiðidaga Að sögn Örvars eru mjög skiptar skoðanir um hvernig smábátaveið- um skuli háttað en opinber umræða gefi ranglega þá mynd að þeir sem starfi við smábátaútgerð séu ein- huga. Meðal deilumála er hvort leyfa eigi smábátum aukið veiðarfæra- frelsi til að auka afköst og hag- kvæmni umfram það sem hægt er með handfæra- og línuveiðum. „Er rétt að undirstrika að slíkar breyt- ingar myndu ekki taka neitt af strandveiðimönnum þó aðrir mættu hagræða.“ Örvar minnist þeirra viðtaka sem hann fékk á fundi LS, skömmu áður en hann kvaddi Landssambandið, í þá veru að grásleppuveiðum yrði stýrt með kvóta frekar en með veiði- dagakerfi. „Hafrannsóknastofnun kemur með tillögu um það hversu marga daga hver grásleppubátur má vera að veiðum og ráðherra gef- ur út reglugerð í samræmi. Fyrir mörgum árum var svigrúmið tölu- vert og gátu smábátaútgerðir vænst þess að fá 80 til 90 veiðidga en upp á síðkastið hefur niðurstaðan verið 25 til 40 dagar.“ Bendir Örvar á að fyrir vikið sé mun erfiðara fyrir sjómenn að skipuleggja veiðarnar, sem fara að- allega fram yfir sumarmánuðina. „Grásleppuveiðar geta hafist 1. mars og enginn veit fyrr en reglu- gerðin kemur út hversu margir veiðidagarnir verða. Gerist það jafn- vel stundum að reglurnar eru ekki birtar fyrr en eftir að veiðar hafa hafist. Þetta veldur því að mjög snú- ið er að gera hvers kyns áætlanir um reksturinn og illmögulegt að fá mannskap til að taka þátt í veið- unum ef þær vara bara hluta úr sumrinu. Enginn er að fara að ráða sig á grásleppubát ef hann veit ekki hvort hann hefur vinnu í 25, 30 eða 40 daga.“ Segir Örvar að sumir smábátaút- gerðarmenn hafi leyst vandann með því að hafa tvo eða þrjá báta til um- ráða og geta þannig veitt samfleytt næstum allt sumarið. „En þetta er álíka hagkvæmt og ef leigubílstjóri mætti bara taka farþega í einn til- tekinn bíl einn mánuðinn og þyrfti að skipta yfir í annan bíl í næsta mánuði.“ Minni sveigjanleiki en sömu gjöld Örvar bendir á margt fleira sem mætti gera til að stuðla að meiri hagræðingu í smábátaveiðum, auka verðmætasköpun og bæta rekstrar- forsendur. Hann segir smábátaút- gerðir búa við óþarfa hömlur sem t.d. torveldi sjómönnum að stunda veiðar þegar von er á besta verðinu á markaði. „Það er einfaldlega þjóð- hagslega óhagkvæmt að geta ekki stillt veiðarnar betur í samræmi við aðstæður og eftirspurn, og það þeg- ar greinin er að auki bundin við mjög kostnaðarsöm veiðarfæri. Þrátt fyrir allar þær takmarkanir sem smábátaútgerðir verða að búa við þurfum við samt að borga sömu veiðigjöldin og aðrir sem veitt geta með mun hagkvæmari hætti og stýrt veiðunum þannig að þeir fá margfalt hærra verð fyrir aflann,“ segir hann. „Ég tel að sömu veiðgjöld, en mun strangari takmarkanir, séu að öllum líkindum á skjön við stjórnarskrár- varin réttindi. Sem dæmi má nefna að veiðigjöld á steinbít eru ca. 10% af brúttóaflaverðmæti fyrir okkur, en örugglega a.m.k. helmingi minni fyrir togarana.“ Glíma við mikla neikvæðni Þrátt fyrir að hafa kvatt Lands- samband smábátaeigenda segir Örv- ar að það væri óskandi ef smábáta- útgerðir gætu snúið bökum saman til að vinna að bættum hag allra. Ekki veiti af samstöðu í greininni þó það væri bara til að bæta þjóðfélags- umræðuna sem er allt of oft neikvæð í garð sjávarútvegsins. „Mér finnst það furðulegt að þessi undirstaða þjóðarefnahagsins skuli endalaust verða fyrir barðinu á neikvæðri um- ræðu og stöðugt deilt um fiskveiði- stjórnunarkerfið. Var það þó þetta kerfi sem varð hvatinn að þeirri hag- ræðingu sem íslenskur sjávar- útvegur þurfti á að halda svo að af- komunni varð snúið úr mínus í plús og auður skapaður fyrir alla þjóðina. Ekki nóg með það heldur spratt upp úr þessu kerfi svakaleg nýsköpun í matvælaiðnaði og hátækni,“ rekur Örvar. „Þrátt fyrir allt þetta er nei- kvæðnin svo mikil að maður þorir varla að færa það í tal á mannamót- um að maður starfi við fiskveiðar. Er það líka merkilegt að eins og stjórn- málamenn virðast reiðubúnir að greiða götu flestra atvinnugreina þá eru þeir svakalega fljótir að leggja steina í götu okkar sem vinnum í sjávarútveginum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg „Gríðarlegur fjöldi af nýjum atkvæðum kom inn í Landssambandið og áhrif þeirra sem stunda veiðar árið um kring þynntust út sem því nam,“ segir Örvar Marteinsson um afleiðingar þess að strandveiðikerfið var kynnt til sögunnar. Veiðidaga- og veiðarfærakvaðir til trafala Formaður Samtaka smærri útgerða segir að ráðast þurfi í ýmsar breytingar til að gera smábátaútgerðum fært að hagræða og skapa meiri verðmæti. Morgunblaðið/Alfons Finnsson „Enginn er að fara að ráða sig á grásleppubát ef hann veit ekki hvort hann hefur vinnu í 25, 30 eða 40 daga,“ segir Örvar um óheppilegar afleiðingar þess hvernig grásleppuveiðar eru skipulagðar í dag. Mynd úr safni Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.