Morgunblaðið - 12.12.2020, Side 25
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 25
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Þ
að er fyrst og síðast verið
að færa veiðistjórn grá-
sleppu undir sömu stjórn
og gildir um flesta aðra
nytjastofna á Íslands-
miðum. Nú þegar eru takmarkanir
á því hverjum sé heimilt að veiða
grásleppu en sú stýring er ekki
nægilega markviss og nær ekki að
fullnægja þeim kröfum sem gerðar
eru um sjálfbærar veiðar í dag með
tilliti til meðafla og veiða umfram
ráðgjöf,“ svarar Kristján Þór,
spurður um tilefni frumvarpsins.
Frumvarpið sem um ræðir hefur
verið umdeilt og hefur hlotið tals-
verða gagnrýni, en því hefur einnig
verið fagnað. Þá gripu 244 hand-
hafar grásleppuveiðileyfa til þess
ráðs á dögunum að afhenda ráð-
herranum stuðningsyfirlýsingu og
eru þeir sem undirrita hana um
54% allra grásleppuleyfishafa á
landinu.
Spurður hvort það sé hægt að
mynda sátt um frumvarpið, svarar
Kristján Þór: „Ég tel augljóst að
það er hægt að skapa almenna sátt
um frumvarpið, fyrst og síðast með-
al grásleppusjómanna, þó það verði
auðvitað aldrei allir sammála.“ Með-
al þeirra athugasemda sem hafa
verið gerðar við kvótasetninguna
eru áhyggjur af samþjöppun eign-
arhalds aflaheimilda í grásleppu.
Ráðherrann hefur ekki sérstakar
áhyggjur af þessu og bendir á að í
frumvarpinu sé að finna ákvæði um
2% hámarksaflahlutdeild. „Með því
erum við að koma í veg fyrir of
mikla samþjöppun aflaheimilda, en
ég nefni þó um leið að þessar veiðar
eru einfaldlega þess eðlis að þetta
verður alltaf smábátaútgerð sem
stunduð er vítt og breitt um landið.“
Dagstjórnunin ósanngjörn
„Núgildandi kerfi [hefur] þann
ókost að veiðarnar eru ófyrirsjáan-
legar og það hefur bitnað á þeim
sem stunda þessar veiðar. Þetta
kom einna skýrast fram á síðustu
vertíð. Það er í mínum huga ábyrgð
stjórnvalda á hverjum tíma að búa
þannig um veiðar á nytjastofnum að
þær séu hagkvæmar, fyrirsjáan-
legar og að stjórnun þeirra sé sem
skilvirkust. Ég tel augljóst að varð-
andi stjórn veiða á grásleppu þá
getum við gert talsvert betur til að
ná þessum markmiðum og það er í
grunninn tilefni þessa frumvarps,“
útskýrir Kristján Þór.
„Núverandi dagastjórnun hefur
af mörgum verið talin ósanngjörn
þar sem alltaf er möguleiki á að
stöðva þurfi veiðar þegar ráðlögð-
um heildarafla er náð. Afleiðingar
þess geta verið misjafnar fyrir sjó-
menn eins og mönnum er í fersku
minni eftir síðustu vertíð.“
Betra fyrir lífríkið
Þá telur ráðherrann að með kvóta-
setningu sé hægt að bæta umgengni
um auðlindina með því að stöðva
kapphlaupið sem myndast þegar
grásleppusjómenn reyna að ná
mestum afla á þeim sóknardögum
sem þeir hafa.
„Þannig mun sóknin breytast á
þann hátt að færri net verða í sjó
hjá hverjum bát. Með færri net í sjó
er hægt að vitja netanna oftar. Auk
þess sem það eykur gæði og verð-
mæti afla, mun það draga úr líkum
á því að net tapist, t.d. vegna óveð-
urs. Töpuð net í sjó geta valdið
miklum skaða fyrir lífríkið þar sem
netin eru úr efnum sem eyðast
mjög hægt og því geta netin verið
skaðleg fyrir lífríkið, t.d. fugla, fiska
og spendýr, í ár eða áratugi. Þá
munu sjómenn geta gert hlé á veið-
um m.a. þegar mikið er um sjófugla
eða spendýr sem lenda í netunum.
Enda þótt ráðstafanir hafi verið
gerðar til að draga úr meðafla sjó-
fugla og spendýra með víðtækum
svæðalokunum fyrr á þessu ári eru
enn veiðisvæði þar sem meðafli
fugla og spendýra er vandamál á
ákveðnum tímum. Með kvótasetn-
ingu er sjómönnum gert kleift að
gera hlé á veiðum meðan ástandið
varir án þess að það hafi áhrif á
mögulega afkomu þeirra,“ útskýrir
Kristján Þór og bætir við að þetta
sé einnig til þess fallið að auka ör-
yggi þeirra sem stunda veiðarnar
þar sem minni hvati verður til að
stunda þær er veður er tvísýnt.
Segir mikla kosti
við kvótasetningu
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, hefur í annað sinn lagt fram
frumvarp um kvótasetningu grásleppuveiða.
Ráðherrann segir frumvarpið auka skilvirkni
veiðanna og bæta umgengni við auðlindina.
Morgunblaðið/Eggert
„Það er í mínum huga ábyrgð stjórnvalda á
hverjum tíma að búa þannig um veiðar á nytja-
stofnum að þær séu hagkvæmar, fyrirsjáanlegar
og að stjórnun þeirra sé sem skilvirkust.“