Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 8

Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 8
8 Samþykktir og bókanir stjórnar Stjórnarmenn undirrituðu yfirlýsingu um hagsmunaárekstur. Samþykkt fjárhagsáætlun Kirkjunnar 2013. Eric greindi frá fyrsta fundi vinnuhóps v/ofbeldismála. Að veita Stefáni Rafni Stefánssyni styrk vegna búslóðaflutninga frá Bandaríkjunum til Íslands. Enn er engin sala hjá leigjendum malarnámu Kirkjunnar þar sem útflutningurinn var grunnur að áætlun þeirra. Vandamálið liggur í óhagstæðri kornastærð efnis í námunni til útflutnings og í flutningi efnis og geymslu við Þorlákshöfn. Að veita Suðurhlíðarskóla styrk sem nemur verði flugmiða fyrir Frode Jakobsen til Noregs, þar sem hann mun sækja kennararáðstefnu á vegum Aðventkirkjunnar í Noregi. Skólinn mun sjá um kostnað vegna uppihalds og ferða innanlands. Að veita Sigrúnu Ruth López Jack styrk úr náms- og ferðasjóði Kirkjunnar vegna væntanlegs náms hennar á biblíuskóla í Bandaríkjunum næsta haust. Þar sem hún fékk styrk í fyrra, mun styrkur hennar nema mismuninum á þeim styrk sem hún fékk í fyrra og mögulegum styrk vegna náms í biblíuskóla. Móttekið bréf frá Ómari Torfasyni. Efni bréfsins tengist túlkun aðventhreyfingarinnar á bibíutextum og biður hann um að prestar Kirkjunnar á Íslandi taki efnin fyrir og komi með álit. Að veita Hafnarfjarðarsöfnuði styrk úr útbreiðslusjóði vegna framkvæmda safnaðarins til að gera upptökur og beinar útsendingar mögulegar í Loftsalnum. Að veita styrk upp á 50% af áætluðum kostnaði . Að Randal Jay Cameron verði ræðumaður á ungmennamóti sem haldið verður í Hlíðardalsskóla 5.-7. apríl 2013. Að Kirkjan greiði kostnað vegna Sigurnámskeiðs Chad og Fadiu Kreuzer, sem er leiga á sal, auglýsing og hressing. Lagt var fram fjárhagsyfirlit Kirkjunnar fyrir janúar- desember 2012. Kirkjan tekur kostnað á sig að fullu vegna nauðsynlegrar viðgerðar á þaki Suðurhlíðarskóla og endurgerðar listgreinastofu, vegna fjárhagslegrar stöðu skólans. Samtals kostnaður á árinu 2012 var kr. 13.276.819. Stjórnarmenn ræddu stöðu mála varðandi vígslu kvenna innan aðventhreyfingarinnar og fengu í hendur erindi frá SED til Aðalsamtakanna (frá árinu 2010) varðandi forystuhlutverks og prestvígslu kvenna. Sem stendur starfar nefnd á vegum Aðalsamtakanna sem skoðar vígslumál og mun hún koma með álit til aðalfundar Aðalsamtakanna árið 2015. Það er ósk SED að kirkjur og sambönd bíði með að vígja konur þar til niðurstaða kemur frá nefndinni. Kirkjan á Íslandi vill vera samstíga SED í þessum málum. Að Sigrún Ruth López Jack hættir störfum 6. maí sem ritari á skrifstofunni og ræstitæknir, þar sem hún fer til náms erlendis. Að Kirkja sjöunda dags aðventista taki þátt með öðrum trúfélögum að stofna formlegt félag sem heldur utan um starfsemi fagráðs vegna kynferðisbrotamála. Félagið, sem heitir Félag um fagráð og forvarnir (FUFF), mun einnig standa að forvarnarstarfi. Að kostnaður vegna útgáfu bókarinnar Getum við enn trúað Biblíunni? verði tekinn úr erfðafjársjóði. Að Kirkjan láti athuga hvort hægt sé að fá skaðabætur vegna 1) þakskemmda (sem eru tilkomnar vegna lélegs frágangs við byggingu hússins) og 2) lélegum frágangi á bókasafni (nýtt sem listgreinastofa). Að setja aldurstakmark á styrkveitingu úr ferða- og námssjóði, þannig að þeir sem eru á aldrinum 13-32 ára geti sótt um styrk úr sjóðunum. Þetta er samþykkt með tilliti til þess að sjóðurinn var upphaflega stofnaður með það að markmiði að hjálpa ungu fólki að komast í biblíuskóla eða á andleg mót sem veitir þeim andlega eflingu og innsýn í heimskirkju okkar. Að styrkja eftirfarandi einstaklinga úr ferða- og námssjóði Kirkjunnar vegna ferðar á æskulýðsmót í Serbíu sumarið 2013: Karel Candi, Jón Steinar Arnarson, Marel Arnarson, Daníel Þór Þorgrímsson, Freyja Rut Garðarsdóttir og Leó Blær Haraldsson. Að greiða Maríu Ericsdóttur fyrir flugkostnað og vinnu vegna verkefnisins Biblían í þrívídd. Að kostnaður Kirkjunnar vegna verkefnisins Biblían í þrívídd verði tekinn úr útbreiðslusjóði. Að færa kr. 500.000 úr útbreiðslusjóði í ferða- og námssjóð. Stjórnin ræddi erindi frá safnaðarstjórn Reykjavíkursafnaðar varðandi húsnæðismál. Reykjavíkursöfnuður sér fram á mikinn kostnað í viðhaldi kirkjubyggingarinnar. Einnig er byggingin óhentug á marga vegu, m.a. safnaðarheimili, aðstaða fyrir barnastarf og bílastæði. Borin er fram sú tillaga að samkomur verði lagðar af í Ingólfsstræti, en að safnaðarstarf Reykjavíkursafnaðar verði fært í núverandi og ný húsakynni við Suðurhlíðarskóla. Í erindinu kemur fram að aðgerð sem þessi gæfi tilefni til þess

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.