Aðventfréttir - mar. 2014, Blaðsíða 19
19
M
A
R
S 2014
Matreiðslunámskeið með Stephanie Howard
Heilsukvöldverður á Vopnafirði
Þann 19. janúar 2014 var haldinn heilsukvöldverður í fjórða
skiptið hjá gæða konum á Vopnafirði.
Eftir að Vigdís og Adrian komu með heilsuboðskapinn
hingað ákváðum við að halda okkur aðeins við efnið og koma
stundum saman með heilsurétti, sem væru allvega lausir
við dýraafurðir. Okkur öllum finnst þetta uppbyggjandi og
skemmtilegt og ætlum að halda þessu áfram.
Á myndinni erum við að fá okkur Birkite eftir að hafa borðað
vel af góðum heilsuréttum, sem eru reyndar farnir af borðinu
að mestu leyti.
Anna Kjartansdóttir
Um miðjan janúar átti sér stað þriggja daga
matreiðslunámskeið á vegum Heilsu- og bindindisdeildar
Kirkjunnar. Sú sem sá um að elda var Stephanie Howard
sem gefið hefur út tvær matreiðslubækur, „Give them
something better“ og „Kidlicious“. Mikill áhugi virtist
vera á námskeiðinu sem var auglýst á facebook og með
tölvupósti en nærri 90 manns skráðu sig. Þátttakendur
voru bæði innansafnaðar jafnt sem utan og voru
undirtektir mjög góðar. Stephanie tók fyrir þrenns konar
þemu á þessum þremur dögum: 1) Hvað er hægt að
nota í stað kjöts, 2) Hvað er hægt að nota í stað mjólkur
og 3) Morgunverðarborðið. Kennslan fór þannig fram
að Stephanie var með sýnikennslu og í lokin fengu
áhorfendur að smakka það sem hafði verið sýnt. Við
höfðum þó undirbúið okkur vel og eldað meira magn af
mat fyrirfram svo nóg væri til handa öllum. Við erum
þakklát henni Stephanie að hafa viljað koma til Íslands og
deila með okkur af þekkingu sinni og vonum að margir
hafi notið góðs af.
Vigdís Linda Jack, deildarstjóri Heilsu- og
bindindisdeildarinnar