Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 12

Aðventfréttir - mar. 2014, Síða 12
12 Kenndu börnunum þínum Samkvæmt grein úr Forbes Magazine, 20. maí 2011 veita nærri 60 prósent foreldra fullorðnum börnum sínum fjárhagslegan stuðning. „Mest af stuðningi foreldra fer í húsnæði (50%), framfærslu (48%), samgöngukostnað (41%), tryggingar (35%), vasapeningar (29%) og læknisreikninga (28%).1 Hvað er að þessu fyrirkomulagi? Það munu alltaf vera tímar þar sem hálf-fullorðin börn okkar þurfa á okkar hjálp að halda. En er einhver leið til þess að kenna ungum börnum okkar skynsama peningastjórnun þegar þau vaxa úr grasi svo þau geti verið undirbúin og þannig forðast það sem mest að þau verði háð foreldrum sínum? Í starfi okkar sem uppalendur þriggja barna þar til þau urðu fullorðnir einstaklingar höfum við Lois lagt áherslu á þrjú atriði sem við mælum mjög mikið með til að kenna börnum peningastjórnun á þann hátt sem er í samræmi við vilja Jesú: 1. Notið vasapeninga til þess að kenna skynsamlega meðferð á peningum. Þegar börnin okkar urðu þriggja ára byrjuðum við að gefa þeim 1 dollar í vasapening á mánuði sinnum aldur þeirra. Þetta gerðum við til þess að þau myndu læra að meðhöndla peninga. Ég man eftir nokkrum af fyrstu vasapeningslexíunum. „Jakob, þú ert þriggja ára og við ætlum að byrja að gefa þér vasapeninga. Í hverjum mánuði þegar ég fæ launin mín mun ég gefa þér 1 dollar fyrir hvert ár sem þú ert orðinn gamall. Hér hefur þú 3 dollara,“ sagði ég þar sem við sátum saman við matarborðið. Það voru þrír staflar af málmpeningum, hver jafngildi 1 dollar. „Hversu mikið af þessu tilheyrir Jesú?“ spurði ég. „Allt!“ sagði hann brosandi. „Það er rétt,“ sagði ég. „Nú, úr hverjum af þessum stöflum þurfum við að gefa 10 sent, 10 prósent til Jesú og verkamanna hans um allan heim. Það kallast ‚tíund.‘“ Ég hjálpaði honum að taka 10 sent út hverjum stafla og myndaði „tíundastaflann“. „Næst þá færum við gjafir fyrir verk Jesú. Byrjum með 5 sentum eða 5% úr hverjum stafla.“ Við færðum þrjár fimm sent myntir í nýjan stafla við hliðina á „tíundastaflanum“. „Nú þurfum við að láta pening í sparnað. Þegar þú ferð út í búð með mömmu og þú segir henni að þig langi í eitthvað mun hún spyrja þig hversu mikið þú átt í sparnaði. Við skulum byrja með 15 prósent eða 15 sent úr hverjum stafla. Við færðum peninga yfir í „sparnaðarstaflann“. „Restin af peningnum er til þess að eyða. Villtu gefa meiri peninga fyrir Jesú og verkamenn hans og starf?“ Þegar krakkarnir voru yngri færðu þau fullt af sentum úr „eyðslustaflanum“ yfir í „tíundastaflann“ og „gjafastaflann“. En eftir því sem þau urðu eldri færðu þau minna og minna yfir. Mér varð hugsað til versins þar sem Jesús sagði „Nema þið … verðið eins og börn, komist þið aldrei í himnaríki“ (Mt 18.3). Eftir því sem börnin urðu eldri þróuðum við fleiri aðferðir: Við sýndum þeim hvernig ætti að fylla úr tíunda- og gjafaumslagið, að merkja tíundina á réttu línuna og svo ákveða hvernig þau vildu dreifa gjöfunum sínum milli heimasafnaðarins og heims Kirkjunnar. Þegar þau vildu kaupa eitthvað sem þau höfðu verið að safna sér fyrir borguðum við þrjá hluta á móti einum (við borguðum 75 prósent og þau þurftu að borga 25 prósent) ef það var eitthvað sem myndi hjálpa þeim að vaxa andlega eða einn á móti einum ef það var eitthvað hagnýtt. En þau voru ein á báti ef það var eitthvað sem við töldum að hefði ekki mikið gildi. Ég greiddi þeim vexti sem voru tvöfaldir á við venjulega bankavexti til að hvetja þau til þess að spara. Þau gátu beðið um að gera meiri húsverk svo þau gætu unnið sér inn auka pening. Á hverju ári, eftir afmælisdaginn þeirra, hækkaði vasapeningurinn þeirra um 1 dollara á mánuði. Þegar þau svo urðu um 16 ára sögðu þau kannski eitthvað í áttina að „Heyriði nú, bara 16 dollara á mánuði?“ og við myndum svara því: „Kannski er komin tími til þess að þú leitir þér að vinnu!“ Á afmælum og jólum gáfu við þeim hagnýta hluti eins og föt, bækur frá Adventist Book Center (Bókabúð aðventista) o.s.frv. auk annarra smáhluta til að gleðja, og öðru hverju eitthvað alveg sérstakt eins og hljómborð, gítar, trommusett eða upptökuvél. Þegar þau voru nógu gömul og nógu ábyrg til þess að keyra og borga fyrir bensín og tryggingar seldum við þeim einn af gömlu bílunum okkar fyrir 200 dollara. Við borguðum öll skólagjöldin þeirra í aðventistaskólum út háskólann þar sem við töldum að það væri besta fjárfestingin sem við gætum fjárfest í fyrir framtíð þeirra bæði andlega og fjárhagslega. Við uppgötvuðum í gegnum árin að „sá sem er trúr í því smæsta, er einnig trúr í miklu“ (Lk 16.10).2 2. Gerðu „$1000 áskorunina“. Þegar börnin okkar urðu um 5 ára sögðum við þeim að ef þau myndu aldrei nota tóbak, áfengi né ólögleg fíkniefni myndum við gefa þeim 1000 dollara jafnvirði á tuttugu ára afmæli þeirra. Hvers vegna? Vegna þess að við vissum að flestar fíknir af þessum toga myndast áður en fólk verður 20 ára. Við hugsuðum að ef einhver reyndi að þrýsta á þau til þess að prófa þessa hluti gætu þau sagt að þau vildu ekki peningastjórnun

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.