Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 27

Aðventfréttir - mar 2014, Qupperneq 27
27 Óvænt bænasvar M A R S 2014 Það var í lok október 2011 sem ég stóð ein eftir í sveitinni. Yngsta barnið var farið út í heim í framhaldsskóla og eiginmaðurinn kvaddi til að ferðast yfir hálfan hnöttinn til síns heimalands og reyna sig í vinnu þar. Hann hafði ekki fundið vinnu við sitt hæfi á Íslandi. Það var undarlegt að vera orðin ein eftir svo annasamt líf og oftast fjölmennt á heimilinu. Hvernig skyldi mér nú vegna svona einni út í sveit á dimmum vetri og stundum í ofsa veðri og snjókomu og kannski rafmagnsleysi af og til, hugsaði ég. Skyldi mér ekki leiðast eða verða myrkfælin? En það var ekki bara einveran heldur einnig fjárhagurinn sem ég hugsaði um. Ég var ekki í fastri vinnu en vann við afleysingar á tveim stöðum bara ef það urðu forföll hjá þeim og minn maður yrði ekki á launum fyrr en eftir einhverja mánuði. Hvernig skyldum við fara að því að borga húsaleiguna og aðra reikninga? Allar þessar hugsanir herjuðu á mig og færðu mig niður á hnén í herberginu mínu og þær þar færðar yfir til Hans, sem veit allt og getur allt. Þessi sveit í Vopnafirði hafði verið mikil blessun fyrir okkur og gjöf frá Guði rúmlega einu ári áður. Eigendur býlisins áttu nautgripi og kindur í útihúsunum og það kom alltaf einhver á hverjum degi til að huga að skepnunum og þá var stundum spjallað. Hundurinn minn var tryggur vinur og hænunum þurfti að sinna á hverjum degi og kisi litli alltaf svo kelinn og vinalegur. Já, dýrin fá mann oft til að brosa og gaman er að tala við þau og knúsa. Brátt fór ég að sjá að mér mundi ekki leiðast, enda var alltaf eitthvað sem þurfti að laga, smíða og betrumbæta í sveitinni og góður tími fannst til Biblíulesturs og bæna. Þessi reynsla varð mér mjög dýrmæt En svo fór síminn fljótlega að hringja og var það útkall í vinnu. Dag eftir dag vantaði fólk í vinnu. Ég fór glöð í vinnuna og vissi að Guð var að bænheyra mig. En þótt vinnan hefði verið töluvert mikil þennan mánuð vissi ég að kaupið mundi rétt duga upp í einhverja reikninga. Jólin voru að nálgast og ég sá ekki fram á að geta átt krónu til jólagjafakaupa. Hvað átti ég nú að gera? Sparsemin var orðin svo mikil að rabarbarasultan var notuð með brauði á morgnana og rúgmjölsgraut á kvöldin, rabarbaragrautur og rabarbarasaft nær alla daga. Eggin úr hænunum voru einnig dýrmæt, kartöfluuppskeran og teið af jurtum hæðanna í kring. Það var margt hægt að þakka fyrir. En þetta með jólagjafirnar bankaði nú fast á hjarta mitt. Hvað átti ég að gefa minni kæru fjölskyldu um jólin? Ég átti ekki einu sinni garn til að prjóna sokka handa þeim. Það versta við fátækt er að eiga ekki fyrir gjöfum. Guð minn, hvernig fer ég að þessu? Þá einn daginn fékk ég hringingu. Það var maður frá Egilsstöðum, og var hann að spurja um húsið okkar, sem var til sölu. Við spjölluðum í góðan tíma um húsið og svo spyr hann mig allt í einu hvort ég prjóni ekki lopapeysur. Hann hafði keypt svo mikið af lopagarni á útsölu en vantaði einhvern til að prjóna peysu á sig. Ég sagðist nú ekki vera vön því en gæti reynt. Við sömdum um að hann mundi borga mér í garni og sagðist svo ætla að senda garnið sem fyrst til mín. Þennan sama dag fannst maður sem var að fara frá Egilsstöðum á Vopnafjörð og kom hann um kvöldið og færði mér þetta garn sem var mér til mikillar undrunar nokkrir kassar af lopagarni í mörgum fallegum litum! Ég stóð um stund og horfði á þetta undur. Þarna voru jólagjafirnar komnar! Ég þyrfti bara að hefjast handa. Prjónað var morgun og prjónað var kvöld og öllum stundum sem ekki var verið að vinna og náðist að klára 5 lopapeysur fyrir jólin og jólavestið á mig og einnig nokkra sokka. Maðurinn sagði að ekkert mál væri fyrir hann að bíða með sína peysu þar til eftir áramót og kom það sér nú vel. Já, þetta var óvænt og skemmtilegt bænasvar sem kom í tæka tíð til að bjarga þessum jólum. Anna Kjartansdóttir

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.