Málfríður - 15.03.1987, Side 20
Fréttir
til að geta hagnýtt okkur í fram-
tíðinni.
Auk kennslunnar sem fram fór
á Schæffergárden fórum við í
Námsgagnastofnun Kaupmanna-
hafnar. Þar var okkur kynnt
starfsemin og síðan fluttur stór-
skemmtilegur fyrirlestur um
notkun myndbanda við kennslu
erlendra tungumála.
Við fórum einnig í Háskólann.
Þar voru okkur kynntar nýjar
námsbrautir í dönsku, sem m.a.
myndu henta mjög vel fyrir okkur
að loknu BA námi. Okkur var
sagt frá nýjum rannsóknum á
sviði málsvísinda og loks sýnt
myndband til notkunar við byrj-
endakennslu í spænsku.
Námskeiðið var mjög vel
skipulagt af hálfu Félags dönsku-
kennara, en fyrirlesarar/kennarar
voruaðsönnu mjög misjafnir.Eitt
ber líka að hafa í huga. Sumir eru
komnir mun lengra á veg en við í
notkun myndbanda. Þeir virðast
m.a. búa yfir meiri tækjakosti og
þess vegna var sumt af því sem við
lærðum óraunhæft a.m.k. í nán-
ustu framtíð.
Að auki eru Danir mun meira
fyrir rökræður en við og e.t.v. eru
nemendur þeirra óhræddari en
okkar við að tjá sig um ýmis mál-
efni. Kannski kennararnir líka?
Eitt vil ég þó nefna sérstaklega,
sem mér fannst koma mjög ber-
lega í ljós á þessu námskeiði.
Kennslan stendur og fellur með
kennaranum - að hann sé vel
undirbúinn, hafi skýra framsögn,
sé líflegur og jákvæður og ekki
síst uppörvandi. Vanti þetta getur
öll tækni heimsins ekki komið að
neinu gagni.
Að lokum - bestu þakkir til
Auðar Hauksdóttur sem stjórn-
aði námskeiðinu af skörungsskap
og með prýði og til Birgit Henrik-
sen, sem að mínu mati hafði alla
kosti góðs kennara.
Ragnhildur Pálsdóttir
er kennari í dönsku
viö Garðaskóla
20
Pta ta/að víð 420 mngumál í he.m,
(Vittu get£ w®" - ensku, utbreiaoo
um420mi,lj6niru^hefX^^
^jónirerusP^l
. „„r|er ave( «
tu vouú"*sm" taames'í
Franska
er töluð at120rniipn^_
víða um heim,
|Jafnvelá^f^.
7fl uHHonen Htens(^n re(*en
„ggurvel^i^-
„ýskanjnátósem
Samvinnuferðir-Landsýn hefurum árabil annast fyrirgreiðslu viðþá sem
hyggja á tungumálanám erlendis.
Við erum í tenglsum við viðurkennda málaskóla víða um heim sem halda
námskeið, löng, stutteðasérhæfð, einsogþérhentarbest.
Slík námskeið gefa fólki á öllum aldri tækifæri til að læra málin, bæta sig
eða rifja þau upp við aðstæður eins og best verður á kosið
- í landinu sjálfu.
Og þú lærir meira. Þú kynnist íbúum landsins, eignast nýja vini
hvaðanæva að og átt eftirþað greiðari leið um allan heim
- tungumálanám ergottmál.
Komdu þvi á næstu skrifstofu Samvinnuferða-Landsýnar
og við sýnum þer hvernig hægt er að sameina lærdóm
og skemmtun i fríinu. Tungumálanám er heldur ekki svo slæm hugmynd
að fermingargjöf, stúdentsgjöf eða skemmtilegrihjálp viðhvernsem er...
Ciao!
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200