Bæjarins besta - 08.01.1992, Blaðsíða 1
Landsbanki íslands Réttu megin við strikið,
ísafirði S 3022 með Reglubundnum sparnaði
• Einar Guðfinnsson hf. Fyrirtækið fékk á Gamlársdag 50
milljónir króna endurlánaðar frá bæjarsjóði Bolungarvík-
ur. Aðrar 50 milljónir fær fyrirtækið síðan í þessum mánuði
og vonast menn til að þessi fyrirgreiðsla komi fyrirtækinu
yfir erfiðasta hjallann.
Bolungarvík:
Einar Guðf innssson
hf. fær 100 milljóna
króna lán f rá bæjar-
sjóði Bolungarvíkur
ÓHÁÐ
FRÉITABLAÐ
/
A
VESmÖRÐUM
DREffT ÁN ENDURGJALDS
AÐHIAÐSAMTÖKUM
BÆIAR- OG HÉRAÐSFRÉHABLAÐA
Gjaldskrá
samþykkt
BÆJARSTJÓRN ísa-
fjarðar hefur Iagt
blessun sína yfir verðskrá
fyrir skíðasvæðið á Selja-
landsdal sem gilda á fyrir
árið 1992 og hefur hún
þegar tekið gildi.
Verðskráin verður því
sem hér segir: Vetrarkort
fullorðinna kosta kr.
9.500, vetrarkort barna
kr. 5.000., dagskort full-
orðinna kr. 800., dagskort
barna kr. 400., hálfsdag-
skort fullorðinna kr. 650.,
og hálfsdagskort barna kr.
300.
Kvöldkort fullorðinna
kosta kr. 650., kvöldkort
barna kr. 300., fjölskyldu-
kort miðað við tvö börn
kr. 23.600., fjölskyldu-
kort miðað við þrjú börn
kr. 26.000., göngukort
fullorðinna kr. 3.500., og
göngukort barna kr.
1.600.
-s.
BÆJARSTJÓRN BoI-
ungarvíkur hefur
ákveðið að endurlána Einari
Guðfinnssyni hf., í Bolung-
arvík 100 milljónir króna að
uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum og með þeim óskum
að fyrirtækið komist þar
með yfir erfiðasta hjallann
en eins og kunnugt er hefur
Einar Guðfinnsson hf., átt í
miklum fjárhagslegum erf-
iðleikum undanfarin miss-
eri.
Á gamlársdag ákvað bæj-
arsjóður Bolungarvíkur að
endurlána Einari Guðfinns-
syni hf., 50 milljóna króna
lán sem sjóðurinn hafði
fengið frá Byggðastofnun og
í þessum mánuði mun annað
50 milljóna króna lán frá
Landsbankanum verða end-
urlánað til fyrirtækisins.
Tíu milljónir króna af lán-
inu sem fyrirtækið fékk á
Gamlársdag fóru í að gera
upp viðskiptaskuldir við
bæjarsjóð og hafnarsjóð og
hluti af láninu fór í að greiða
skyldusparnað starfsfólks og
skuldir hjá bæjarfógetanum
í Bolungarvík.
-s.
Notar þú hvaða Ijósritunarpappír sem er í
jafn ómissandi tæki og Ijósritunarvélin er?
Rekstraröryggi fer eftir gæðum pappírsins.
Veldu öruggan og góðan Ijósritunarpappír.
Ve/du Ijósritunarpappírinn frá prentsmiðjunni
Odda hf. H-PRENT selur pappírinn frá Odda.
IIIKAL /
PÍPULAGNINGAMÓNUSTA
— S 4644 —
Prentaður límmiði - óáprentaður límmiði - Rauður límmiði -gulur límmiði -grænn
límmiði - blár límmiði - bleikur límmiði -ferkantaður límmiðí - kringlóttur límmiði
- sporöskjulaga límmiði - Límmiði með gati - límmiði á disklinginn - límmiði
á videospóluna - límmiði á umslagið - límmiði á pakkann -fæst í H-PRENTI í stór-
um pökkum eða litlum pökkum, jafnvel á rúllum, allt eftir þínum þörfum. Ef við
eigum hann ekki til þá útvegum við hann, skerum hann til eða prentum hann.
Isafjörður:
Gleðilegt nýtt ár!
SAMKVÆMT upplýsingum lögreglunnar á ísafirði voru áramótin með rólegasta móti
og bar lítið á ölvun og ólátum. Sömu sögu er að segja frá Þrettándanum sem nú stóð
upp á mánudag. Skátafélögin á ísafirði og kvenfélagið Hlíf gengust fyrir álfadansi síðast-
liðinn sunnudag og var margt manna mætt á svæðið til þess að sjá hinar furðulegustu
skepnur sem láta sig ekki vanta á þessum tímamótum.
Að álfadansinum loknum fór fram mikil flugeldasýning sem skátarnir sáu um og var hún
hin glæsilegasta. Einn af ljósmyndurum blaðsins, Eyþór Hauksson var staddur í Stóruurð
er Ijósadýrðin byrjaði og tók þá meðfylgjandi mynd. Bæjarins besta óskar lesendum sín-
um nær og fjær gleðilegs árs og þakkar samskiptin á síðastliðnu ári.
-s.
Veisluþjónusta
Nú fara árshátíðii og aðrir marmíagnadir að hefjast. Bjóðum
ykkur upp á veisluþjónustu, ostabakka, ostapinna og veislu-
bakka. Sama verð og í Reykjavík. Höfum verðlista.
Nánari upplýsingar í sima 4368 (Guðrún) og 4483 (Guðbjörg).
Mjólkursamlag
lsfirðingaS3251
RITSTJÓRN S 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560