Bæjarins besta - 08.01.1992, Síða 2
2
BÆJARINSBESIA • Miðvikudagur 8. janúar 1992
—Meðal annars—
-ásýningarsvæði-
MMC Pajero bensín ’88
Ekinn 84.000 km. Verð
1.760.000,- Sk. athugandi.
Subam E-12 6 manna 4x4 '91
Ek. 7.000 Verð 970.000,-
Skipti athugandi.
Subaru station 4x4 '88
Ek. 141.000. Verð 650.000,-
Bein sala.
MMC Lancer station 4x4 '87
Ek. 98.000 Verð 680.000,-
Skipti athugandi.
Subaru Hatchback 4x4 '83
Ek. 110.000 Verð 320.000.-
Bein sala.
Toyota Touring 4x4 '89
Ek. 46.000 Verð 1.190.000,-
Skipti á ódýrari 4x4 fólksb.
Toyota Touring 4x4 1991
Ek. 3.000 Verð 1.350.000,-
Bein sala.
Ú Um 900 bílar á skrá, af öll-
um gerðum og stærðum.
it Mikið úrval af 4x4 fólks-
bílum ogjeppum.
■fr Áhersla lögð á traust og
ömgg viðskipti.
☆ MIÐSTÖÐ BÍLAVIÐ-
SKIPTA Á VESTFJÖRÐUM
BÍLASALAN
ELDING s/f
Skeiði 7, 400 ísafirði
sími 94-4455
Bolungarvíkurkaupstaður
Félagsmiðstöðin
Tópas, Bolungarvík
Auglýst er staða forstöðumanns
Félagsmiðstöðvarinnar Tópas, Bol-
ungarvík.
Starfið felst í umsjón og skipulagi
æskulýðsstarfs í félagsmiðstöðinni
Tópas.
Um er að ræða hlutastarf, sem unn-
ið er síðdegis og um helgar.
Upplýsingar um starfið og launa-
kjör gefur bæjarstjórinn í Bolungar-
vík í síma 94-7113.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar
1992.
Bolungarvík 6. janúar 1992.
Bæjarstjórinn í Bolungarvík.
• Hluti nemenda sem útskrifuðust frá Menntaskólanum á ísafírði á laugardaginn.
Menntaskólinn á ísafirði:
Árshátíð
bílstjóra!
Árshátíð allra bílstjóra verður
haldin í Félagsheimilinu Hnífsdal
laugardaginn 11. janúar kl. 20.30.
Húsið opnar kl. 19.
Matur - skemmtun - dansleikur
BG-flokkurinn leikur fyrir dansi.
Mikið glens og mikið gaman.
Allir með ökuskírteini velkomnir.
Rúta fer strætóleið
að dansleik loknum.
Miðapantanir á Fólks- og
vörubílastöðinni í síma 3418.
Einn stúdent útskrif-
aður á haustönn
SÍÐASTLIÐINN sunnu-
dag fór fram í hátíðarsal
Menntaskólans á ísafírði
brautskráning nemenda sem
luku stúdentsprófi, verslun-
arprófi, vélstjórnarprófi 1.
stigs og lokaprófi í rafvirkj-
un á haustönn.
Alls voru brautskráðir 19
nemendur, 12 á vélstjórnar-
braut, 4 á viðskiptabraut, 2 í
rafvirkjun og 1 stúdent á
náttúrufræðibraut frá öld-
ungardeild. Stúdentinn sem
útskrifaðist að þessu sinni
var Ása Grímsdóttir, kenn-
ari við Grunnskólann á Isa-
firði. Verslunarprófi frá öld-
ungadeild luku fjórar
konur, þær Guðrún
Aspelund, Oddný Bára
Birgisdóttir, Sveinfríður
Högnadóttir og Þorgerður
Kristjánsdóttir.
Skólaprófi í rafvirkjun
(þá eiga viðkomandi eftir að
taka sveinspróf) luku þeir
Henrý Bæringsson og Jón
Þór Birgisson. Tólf nemend-
ur luku síðan I. stigi vél-
stjórnarnáms sem veitir
réttindi til að stjórna vélum
að 300 hestöflum en það
voru þeir Jónas Finnboga-
son, Jón G. Magnússon,
Lárus Lárusson, Snorri V.
Kristjánsson, Björgvin
Hlíðar Kristjánsson, Sævar
Óli Hjörvarsson, Atli Freyr
Guðfinnsson, Atli Geir
Atlason, Þorsteinn Geirs-
son, Sigmundur Ragúel
Guðnason, Sigurður
Hreinsson og Steinþór
Bragason.
Þá má geta þess að einn
nýr kennari hefur verið ráð-
inn í fulla kennslu við skól-
ann en það er Stefán Jör-
undsson, byggingatækni-
fræðingur sem mun taka að
sér stærðfræðikennslu. Þá
hefur Hörður Högnason,
hjúkrunarforstjóri á FSÍ ver-
ið ráðinn í stundakennslu í
hjúkrun á sjúkraliðabraut.
-s.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á ÍSAFIRÐI
Atvinna
Óskum að ráða til starfa nú þegar
eða eftir nánara samkomulagi:
Aðstoðarmatráðskonu
Vaktavinna
— frí aðra hverja helgi.
Læknaritara
Eða starfsmann með góða
vélritunarkunnáttu.
íbúð óskast
Leitum að 3-4ra herbergja íbúð til
leigu fyrir starfsmann, á Eyrinni
eða í nágranni.
Upplýsingar um starf læknarit-
ara og leiguíbúð veitir fram-
kvæmdastjóri en um starf matráðs-
konu, matreiðslumeistari alla virka
daga í síma 4500.
Iþróttir / sund:
Góður árangurá
jólamótum Vestra
SUNDDEILD Vestra
stóð fyrir þremur sund-
mótum yfir hátíðarnar sem
bæði fóru fram í sundhöll
Isafjarðar. Það fyrsta fór
fram laugardaginn 28. des-
ember síðastliðinn, annað
sunnudaginn 29. desember
og það síðasta á Gamlárs-
dag.
Mjög góður árangur varð
á mótunum og bættu margir
met. Meðal þeirra meta sem
slegin voru má nefna að
Pálína • Björnsdóttir setti
Vestfjarða og ísafjarðarmet
kvenna í 200 metra
baksundi kvenna er hún
synti vegalengdina á tíman-
um 2.30.30., cn fyrra metið
var 2.32.72. Þá setti Þorri
Gestsson ísafjarðarmet í
200 metra baksundi karla er
hann synti vegalengdina á
tímanum 2.35.30 en fyrra
metið var 2.45.67.
Edda Jónsdóttir setti ísa-
fjarðarmet kvenna í 200
metra bringusundi á tíman-
um 3.08.09 en gamla metið
var 3.11.72. Jón Smári Jóns-
son setti einnig ísafjarðar-
met í 200 metra bringusundi
karla er hann synti vega-
lengdina á tímanum 2.42.85
en gamla metið var 2.45.88.
Þá setti Aðalheiður Gests-
dóttir Vestfjarða og ísa-
fjarðarmet meyja í 200
metra flugsundi kvenna á
tímanum 3.12.95 en gamla
metið var 3.18.02. Halldór
Sigurðsson setti Vestfjarða
og ísafjarðarmet karla og
pilta í 400 metra bringu-
sundi karla á tímanum
5.23.50 en gamla metið var
5.29.26 og Hlynur Tryggvi
Magnússon setti Vestfjaröa
og Isafjarðarmet pilta í 400
metra baksundi karla á tím-
anum 4.52.18 en gamla met-
ið var 5.07.80.
Sextán önnur Vestfjarða
og Isafjarðarmót voru sett á
mótunum þremur sem of
langt mál yrði að telja upp
en Ijóst er að sundfólkið er í
stöðugri framför. Níutíu
einstaklingssund voru synt
og var um bætingar að ræða
í 67 þeirra sem er frábær ár-
angur. Þá voru sett 27 ísa-
fjarðarmet og 16 Vest-
fjarðamet.
-s.