Bæjarins besta - 08.01.1992, Page 8
— klorfrir
★ Launaseðlar
fyrir öll
algengustu
launaforritin
Lítið inn eða
hringið, áður en
þið leitið annað
■PRENT
H SÓLGÖTU 9 ÍSAFIRÐI
F S 4560 S 4570
Pöbbinn opinn föstudagskvöld kl. 23-03
Pöbbinn opinn laugardagskvöld kl. 23-03.
Verið velkomin
Víkurbær
Skemmtistaður
BolungarvíkS7130
ísáfjörður:
Lögreglumálum
fjölgaði á síðasta ári
LÖGREGLAN á ísa-
firði hefur tekið sam-
an skýrslu yfir fjölda mála í
umdæmi hennar fyrir árið
1991 og kennir þar ýmissa
grasa. Þar kemur m.a.
fram að innbrotum fækk-
aði úr 51 máli árið 1990 í 44
á síðasta ári en þjófnaðar-
málum fjölgar aftur á móti
um 15 mál úr 36 í 51 árið
1991 og munar þar mest
„almenna“ þjófnaði og
nytjastuld á reiðhjólum en
heildarfjöldi mála sem lög-
reglan þurfti að hafa af-
skipti af jókst um 271 mál á
milli ára, úr 1.211 málum
árið 1990 í 1.482 mál árið
1991.
Líkamsárásum fjölgaði
um þrjár úr 36 í 39 og vekur
þar athygli að meiriháttar
líkamsárásum fjölgar um 6
á milli ára sem bendir til að
hrottaskapur sé meiri áber-
andi nú en áður. Eldsvoðar
stóðu í stað á milli ára og
komu 16 mál tengd eld-
svoðum af einhverju tagi
inn á borð lögreglunnar.
Mannslátsmálum fækkaði
um fjögur, úr 6 í 2 og fjár-
svika- og skjalafalsmálum
fjölgaði um tvö úr 30 í 32.
Vestfirðir:
Málum vegna skemmd-
arverka fækkaði mikið á ár-
inu miðað við árið 1990. Á
árinu komu inn á borð lög-
reglunnar 56 mál tengd
skemmdarverkum af ein-
hverju tagi á móti 91 máli
árið 1990. Munar þar mest
unr fækkun á rúðubrotum
en þau voru 28 á árinu 1991
á móti 50 málum árið 1990.
Vinnuslysum fækkaði úr 8
málum árið 1990 í 5 nrál á
síðasta ári en fíkniefnamál
jukust um rúman helming
úr7málum í 15. Flestmálin
voru vegna kannabisefna
10 og þá komu 2 amfetamín
mál inn á borð lögreglunn-
ar og tvö önnur þar sem um
var að ræða önnur efni eða
lyf.
-.9.
Fyrsta barn
ársins 1992
FYRSTA barn ársins á
Vestfjörðum og jafn-
framt annað barn ársins á
öllu landinu kom í heiminn
á Fjórðungssjúkrahúsinu á
ísafirði klukkan 02.51 á
nýársnótt.
Fyrsti Vestfirðingurinn að
þessu sinni var stúlka sem
reyndist vera 3.770 gr. og 52
cm. en foreldrar hennar eru
þau Hildur M. Guðmunds-
dóttir og Óðinn Baldursson,
Fjarðarstræti 55 á ísafirði.
Að sögn Kristínar Jóns-
dóttur, Ijósmóður fæddust
69 börn á FSÍ á síðasta ári
eða 13 færri en árið áður en
þá voru þau 82 sem er með
því mesta frá upphafi. Á
Patreksfirði fjölgaði fæðing-
um aftur á móti um þrjár úr
7 árið 1990 í 10 árið 1991.
-s.
• Jóhann Kárason, formaðurfélags hjartasjúklinga á Vestfjörðum tekur við gjafabréfinu úr
hendi Karvels Pálmasonar.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra:
Gefur 700 þúsund til
kaupa á hjartalínuritstæki
DAGINN fyrir Gamlárs-
dag kom Karvel
Pálmason fyrir hönd heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðherra færandi hendi á
Fjórðungssjúkrahúsið á Isa-
firði og afhenti formanni
Félags hjartasjúklinga á
Vestfjörðum, Jóhanni Kára-
syni gjafabréf upp á kr. 700
þúsund.
Peningunum er ætlað að
verja til kaupa á hjartalínu-
ritstæki sem mun auðvelda
mjög allar álagspröfanir fyr-
ir hjartasjúklinga. Við þetta
tækifæri afhenti Jóhann
Kárason Rauða krossinum
kr. 30 þúsund til kaupa á
hinum nýja sjúkrabíl sem
nýlega var tekinn í notkun á
Isafirði.
-s.
• Fyrsti Vestfirðingurinn sem kom í heiminn á árinu 1992 ásamt foreldrum sínum, þeim
Hildi M. Guðmundsdóttur og Óðni Baldurssyni.
• Hafdís ÍS skipti um eig-
endur rétt fyrir áramótin
er Hrönn hf. keypti skipið
af Magna hf.
ísafjörður:
Hrönn
eignast
Haidísi
s
UTGERÐARFYRIR-
TÆKIÐ Hrönn hf.
gekk 27. desember síðast-
liðinn frá kaupum á m/b
Hafdísi IS, sem var í eigu
útgerðarfélagsins Magna
hf., en eigendur hlutabréf-
anna sem seld voru, áttu
Gunnvör hf., Ishúsfélag
ísfirðinga hf., Bakki hf. og
Eiríkur og Einar Valur sf.
en áður hafði Hrönn hf.
keypt hlutabréf Netagerð-
ar Vestfjarða hf.
Að sögn Þorleifs Páls-
sonar hjá Hrönn hf., er
ætlunin að reka skipið með
sama hætti og gert hefur
verið en það hefur einkum
stundað línuveiðar. Með
kaupunum hyggjast þeir
Hrannar menn renna
styrkari stoðum undir
hráefnisöflun fyrir Ishús-
félag ísfirðinga hf.. en
Hrönn á meirihluta í því
fyrirtæki.
Blizzard skíði
Nordica skíðaskór
Look búningar
R
RAFSJÁ
HÓLASTÍG 6
S 7326
Faxpappír SS
Ódýr og vandaður. ÁvalK á lager. H-PRENTHF.
30,50 og 100 metrar á rúllu. Sólgötu 9 - ©4560
RITSTJÓRN S 4560 • FAX S 4564 • AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT S 4560