Málfríður - 15.05.1994, Qupperneq 29
FRÉTTIR - FRÉTTIR - FRÉTTIR
Frá félagi
frönskukennara
Haldinn var vinnufundur 19.
febrúar þar sem hópumræður
fóru fram og ræddar voru m.a.
kennslubækur, kennsluaðferðir
og EES samningurinn. Evrópska
ritgerðarsamkeppni Alliance
Frangaise fór fram 19. mars s.l.
13 framhaldsskólanemendur
tóku þátt að þessu sinni frá eftir-
töldum skólum, MR, Flensborg,
Fjölbrautaskóla Suðurlands, MH
og MS. Reglurnar kveða á um að
nemendur megi ekki hafa dvalið
lengur en 6 mánuði samfellt í
Frakklandi og ekki vera af
frönskum uppruna. Keppnin fór
fram í 34 Evrópulöndum, veitt
eru verðlaun í hverju landi (2. og
3. verðlaun eru bókagjafir), 1.
verðlaun eru vikudvöl í París og
munu sigurvegararnir hittast í
París (einn frá hverju landi),
dagana 7. til 16. júlí. Að þessu
sinni fjölluðu efnin sem hægt var
að velja um evrópsk málefni
(menningu og pólitík, m.a.
menningarsáttmála þann sem
Frakkar gerðu í GATT viðræð-
unum, fjöldaframleiðslu menn-
ingar eða þjóðareinkenni; sam-
anburður á skólum, lögum og
reglugerðum í viðkomandi landi
með tilliti til atburða í Frakk-
landi). Rétt er að koma því á
framfæri að ritgerðarefnin voru í
þyngra lagi og að frönskukenn-
arar geta haft áhrif á efnisval, ef
þeir koma því á framfæri við
Alliance Frangaise í París fyrir
31. desember ár hvert að höfðu
samráði við Alliance Frampaise í
Reykjavík.
Úrslit keppninnar verða kunn
í kringum miðjan maí.
Það helsta á döfinni á næst-
unni er fyrirhugað námskeið
sem áætlað er að verði haldið
dagana 6.-13. júní n.k. ef næg
þátttaka fæst en frestur til að
tilkynna þátttöku var til 15. apríl
s.l. Námskeiðið ber yfirskriftina
„Analyse des fautes“ og áætlað
er að fá tvo leiðbeinendur frá
Montpellier.
Stjórn félagsins vinnur að
undirbúningi 20 ára afmælis fé-
lagsins á þessu ári en fyrirhugað
er að halda upp á það með
viðeigandi hætti næsta haust.
Petrína Rós Karlsdóttir
Frá félagi
norsku- og sænskukennara
Núverandi stjórn FNOS skipa:
María Þorgeirsdóttir formaður,
Anne Berit Morch varaformaður,
Birgit Nyborg gjaldkeri, Sigrún
Hallbeck ritari og meðstjórn-
endur eru Bjorg Juhlin og Inge-
gjerd Narby.
Norska sendiráðið styrkti tvo
fulltrúa félagsins til að sækja
námskeið í Háskólanum í Ósló,
dagana 4. og 5. júní. Þar var fjall-
að um norsku sem annað mál og
var það mjög áhugavert. í lok
ágúst fóru norskukennarar að
venju með hóp grunnskólanema
til Noregs. Að þessu sinni var
dvalist í skólabúðum í Kristian-
sand. í byrjun október sóttu
tveir félagsmenn kennslubóka-
sýningu í Stokkhólmi en til þess
fékkst styrkur úr sjóði Per Olof
Forshell fyrrverandi sendiherra.
Þá fóru tveir félagsmenn á ráð-
stefnu og kennslubókasýningu í
Ósló í lok október.
Félagið stóð síðan fyrir vel
heppnuðu námskeiði dagana 15.
og 16. október. Þá komu hingað
hjónin Lise Iversen og Lars
Anders Kulbrandstad frá kenn-
araháskólanum í Hamar í Noregi
en þau eru bæði þekktir fyrir-
lesarar þar í landi. Lise fjallaði
um nýjar kenningar um lestur og
lesskilning og hvernig auka megi
orðaforða nemenda. Lars And-
ers nefndi fyrirlestur sinn „Mat
kennara á texta nemanda" og
þóttu fyrirlestrar þeirra mjög
fróðlegir.
Mikil ánægja var með nám-
skeiðið og sóttu það, auk
norsku- og sænskukennara,
dönskukennarar, móðurmáls-
kennarar og nýbúakennarar.
Um þessar mundir er stjórnin
að skipuleggja næsta haustnám-
skeið félagsins auk ýmissa ann-
arra starfa.
María Þorgeirsdóttir
29