Málfríður - 15.09.1997, Page 3

Málfríður - 15.09.1997, Page 3
EFNISYFIRLIT Bls. Málþing STÍL: Námskrárvinna............... 4 Guðrún Halldórsdóttir: „Á móðurmálinu segi ég þnð sem ég vil, á nýja málinu segi ég það sem ég get“.... 6 Árdís Elíasdóttir: Tœlenskunám................. 8 Þórhildur Oddsdóttir og Ósa Knútsdóttir: „Den der skal lœre skal selv arbejde“.................. 9 Jóhanna Björk Guðjónsdóttir: Ritun og myndbönd í frönskukennslu.............. 13 Þórey Einarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir: Námskeið FEKÍ í Bath........ 16 Kolbrún Harðardóttir og Brynja Sigurðardóttir: Schœffergárden og Fyn....... 18 Helga Ágústsdóttir: Ástfanginn af orðsins list og sögum................... 18 Lotte Kristensen: fdeer til dansk............ 19 Rannveig Jónsdóttir: BBC fréttir í skólastofunni. 23 Leo Munro: „Is my guess as good as yours?"................. 25 Hugmyndabankinn............ 27 Nœrmynd.................... 30 Eva Hallvarðsdóttir: Unniö með texta af netinu.. 30 Málfríður Tímarit samtaka tungumála- kennara 2. tbl. 1997 Útgefandi: Samtök tungumála- kennara á íslandi Ábyrgðarmaður: Auður Torfadóttir Ritnefnd: Ásmundur Guðmundsson Guðbjörg Tómasdóttir Ingunn Garðarsdóttir Steinunn Einarsdóttir Prófarkalestur: Gunnar Skarphéðinssoon Setning, prentun og bókband: Steindórsprent-Gutenberg hf. Heimilisfang Málfríðar: Pósthólf 8247 128 Reykjavík Forsíðumyndina tók Ingunn Garðarsdóttir Ritstjórnarrabb Laugardaginn 25. október sl. stóð STÍL, samtök tungu- málakennara á íslandi fyrir málþingi þar sem fjallað var um námskrárvinnu í erlendum tungumálum. Frá þessu þingi er sagt í Málfríði. Ritnefndinni lék forvitni á að vita hvernig útlendingum er kennd íslenska sem erlent tungumál og Ieitaði því til Guðrúnar Halldórsdóttur, skólastjóra Námsflokka Reykja- víkur sem hefur margra ára reynslu á þessu sviði. í kjölfar greinar Guðrúnar skrifar Árdís Elíasdóttir nemandi í 6. bekk MR grein um dvöl sína í Tælandi og þeim erfiðleikum sem mæta íslendingi við nám í gerólíku tungumáli. í blaðinu eru frásagnir af ýmsum námskeiðum. Þórhild- ur Oddsdóttir og Ósa Knútsdóttir fjalla í grein sinni „Den der skal lære skal selv arbejde“ um námskeið sem haldið var sl. sumar á vegum STÍL. Fyrirlesari á námskeiðinu var Jytte Birkebæk og viðfangsefni hennar var eins og nafnið bendir til ábyrgð nemenda á eigin námi. Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, frönskukennari segir frá námskeiði um ritun og myndbönd í frönskukennslu. Þórey Einarsdóttir og Þórhildur Lárusdóttir segja frá námskeiði fyrir ensku- kennara sem haldið var í Bath sl. sumar. Og eins og oft áður var haldið námskeið á Schæffergárden en að þessu sinni var námskeiðið ætlað kennurum sem kenna 11 og 12 ára nemendum og segja þær Kolbrún Hjartardóttir og Brynja Sigurðardóttir frá dvöl sinni þar. Á haustdögum kom hingað til lands sögumaðurinn David Cambell frá Skotlandi. Helga Ágústsdóttir skrifar afar skemmtilega grein um þennan áhugaverða gest. Lotte Kristensen sem kom hingað til lands sem gesta- kennari á vegum danska menntamálaráðuneytisins skrifar greinina „Ideer til dansk“ en þar er að finna margar góðar og hagnýtar ábendingar til dönskukennara. í blaðinu er einnig að finna ýmiss konar hagnýtt efni sem ætti að geta nýst kennurum í starfi. Rannveig Jónsdóttir lýsir því hvernig nota má BBC fréttir í tungumálakennslunni, Leo Munro kynnir okkur skemmtilegan spurningaleik og í hugmyndabankanum er danskt slönguspíl eftir þær Þórdísi Magnúsdóttur og Ágústu Pálu Ásgeirsdóttur. Eva Hallvarðs- dóttir hefur útbúið verkefni út frá texta sem hún leitaði uppi á netinu og að lokum er í blaðinu nýr liður, Nærmyndin, en ætlunin er að þar verði kynntir kennarar og störf þeirra. Góðar ábendingar eru hér vel þegnar og einning viljum við minna á pósthólf Málfríðar en þangað má senda hugmyndir um efni og greinar sem lesendur vilja koma á framfæri.

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.