Málfríður - 15.09.1997, Síða 15

Málfríður - 15.09.1997, Síða 15
því geta þeir komið með ábend- ingar um breytingar. Á þennan hátt fá nemendur tilfinningu fyrir rituðum texta á erlenda tungumálinu og eru líklegri til að skoða eigin texta með gagnrýn- um augum. Við yfirferð texta eru í grófum dráttum fjórar aðgerðir sem koma við sögu: 1) Að taka út óþörf atriði. 2) Að færa til hluta textans, t.d. til að betra samhengi fáist. 3) Að taka út og setja annað í staðinn. 4) Að bæta inn í textann. Það að fara yfir ritaðan texta felur einnig í sér að fara yfir mál- fræði, setningaskipan og staf- setningu en vitanlega má búast við að kennarinn fullvinni þá yfirferð þegar hann fær afurð nemandans í hendur. Vel flest af því sem hr. Des- mougin drap á í sambandi við ritun mætti nota í tungumála- kennslu, bæði í grunn- og fram- haldsskóla. Vandinn sem kenn- arinn gæti sett fyrir sig er sá að ritunarferlið krefst oft mikils tíma og spurningin er því sú hversu mörgum af dýrmætum kennslustundum kennarinn sér sér fært að nota í ritun. Það er því mikilvægt að skipuleggja verkið í smáatriðum þegar vinnuáætlun er gerð í byrjun annar til að ritunin verði hnit- miðuð og árangursrík. * * * ★ * í Iokin ætla ég að fjalla lítil- lega um hinn hluta námskeiðs- ins sem frönskukennarar sóttu en hann bar yfirskriftina Mynd- bönd í frönskukennslw. Ýmis af- brigði franskrar tungu. Bruno Maurer, líkt og Patrick Desmougin, kennir bæði við l’IUFM og Paul Valéry háskóla í Montpellier. Hann skipti sínum hluta námskeiðsins í þrjá þætti og studdist við myndbönd í þeim öllum. Þessi hluti nám- skeiðsins nýtist frönskukennur- um ekki á beinan hátt í kennsl- unni, þ.e. efni hans, eins og það kom fyrir, væri vart hægt að nota í kennslustund í íslenskum framhaldsskóla, til þess er það of þungt. Hins vegar lærðu frönskukennarar heilmikið um ýmis afbrigði frönsku og eru meðvitaðri um þann fjölbreyti- leika sem í þeim felst; með þeim hætti verða þeir líklegri til að miðla þessum fjölbreytileika til nemenda sinna. í grófum dráttum fjölluðu þessir þrír þættir um eftirfar- andi efni: 1) Frönsk tunga í Québec (Kanada), Belgíu og Sviss. Horft var á sjónvarpsfréttir frá Québec og Sviss, þ.e. fréttaþætti sem sjónvarpað var frá stöðvum í þessum ríkjum. Niðurstaðan varð sú að sú franska sem töluð er í Sviss Iíkist mjög frönsku í Frakklandi en er töluð heldur hægar. Hins vegar má til sanns vegar færa að í Québec hefur orðið til franskt tungumál sem er mjög ólíkt frönsku talaðri í Frakklandi hvað varðar bæði framburð og orðaforða. Franskan í Québec lýtur ekki lengur þeim reglum sem settar eru af frönsku akademíunni og hefur skapað sér eigið „málnorm". Einnig var horft á belgísku kvikmyndina C’est arrivé prés de chez vous við misjafnan fögnuð viðstaddra þar sem um er að ræða mjög svarta satíru á belg- ískt þjóðfélag með miklu blóði og ofbeldi. 2) Hvernig mismunandi af- brigði frönsku eru notuð annars vegar til að gera grín og hins vegar í söluskyni. Horft var á franska grínþætti þar sem héraðstengd afbrigði frönsku eru notuð til að koma spauginu á framfæri en slíkt er algengt í Frakklandi, sbr. sveita- maðurinn sem rúllar á r-unum. Einnig var rætt um auglýsing- ar þar sem t.d. notaður er fram- burður frá S-Frakklandi (accent du Midi) til að auglýsa vöru (s.s. mýkingarefni) sem á að bera með sér ferskleika svæðisins. 3) Þeirri spurningu var varp- að fram hvernig frönskumæl- andi fólk utan Frakklands upp- lifir franska tungu og hvernig það notar hana. Horft var á heimildarmynd um belgískt þjóðfélag þar sem tungumálatogstreita á milli Vall- óna og Flæmingja er mjög mikil. Einnig var horft á þátt um söng- konuna Angélique Kidjo sem er upprunnin frá fyrrum frönsku nýlendunni Gabon en hún tók þá ákvörðun að syngja á sínu afríkanska móðurmáli í stað þess að syngja á frönsku sem hefði e.t.v. greitt henni hraðari leið til frægðar. Þá var fjallað um innflytjend- ur frá N-Afríku (Túnis, Marókkó, Alsír) í Frakklandi og horft á tvo heimildarþætti. Annar þeirra, Mémoires d’immigrés, er sérstak- lega athyglisverður. í honum koma fram sjónarmið ungs fólks, afkomenda fyrstu innflytj- endanna, á þá leið að þó að það hafi að öllu leyti alist upp í Frakklandi og tali frönsku eins og Frakkar af frönskum upp- runa, þá sé það sífellt minnt á í hinu daglega lífi að það á annan uppruna. Kemur fram að þetta unga fólk upplifir þetta á mjög neikvæðan hátt enda á það erfitt með að skapa sér sjálfsmynd þegar það nær ekki að samsama sig þjóðfélaginu vegna utanað- komandi skilaboða. í þættinum eru viðtöl við fólk af norður- afrískum uppruna á öllum aldri og er þetta sérstaklega vel unn- inn og fróðlegur þáttur. ***** Þetta fimm daga námskeið fyrir frönskukennara var bæði gagnlegt og fróðlegt að mínu mati. Ritunarhlutinn mun eflaust gagnast á beinan hátt í frönsku- kennslunni og myndbandahlut- inn mun stuðla að því að menn- ingarþátturinn (í orðsins víð- ustu merkingu) í kennslunni verður áhugaverðari og fjöl- breyttari því kennarar eru með- vitaðri um það að þeir eru ekki að kenna tungumál sem er ein- ungis talað innan landamæra Frakklands af Frökkum með „baguette'1 og alpahúfu, heldur af mjög breiðum hópi fólks á stórum landsvæðum sem á það sameiginlegt að flokkast undir það málsvæði sem á frönsku nefnist la francophonie (frönsku- mælandi samfélag). Jóhanna Björk Guðjónsdóttir. 15

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.