Málfríður - 15.09.1998, Page 9
Hlustunarþjálfun með hjálp mynd- og
hljónrbanda.
Kynning á fundarsköpum og hlut-
verkaleikir þar að lútandi.
Spjall urn daginn og veginn.
Styrkur námskeiðanna er sá að:
a) þau eru sniðin að þörfum þátttak-
endanna eftir því sem við verður komið,
b) markmið þeirra er að gera þátttak-
endur hæfari í að hlusta, skilja og tjá sig,
c) kennarar eru tveir og hóparnir fá-
mennir,
d) öll samskipti innan kennslustofunnar
fara franr á dönsku.
Flestir þátttakendanna eru ágætlega læsir á
dönsku, en fmna til vanmáttar þegar kem-
ur að hlustun og munnlegri færni. Svo
vitnað sé í orð þátttakenda: Við fórum í
framhaldsnám til Bandaríkjanna og töld-
um eðlilegt að við myndum nota ensku í
samkiptum á norrænum vettvangi. Þetta
viðhorf breyttist hins vegar þegar á hólm-
inn var komið. Okkur varð ljóst að við
fórum einhvers á mis með því að tala alltaf
ensku og okkur fór að langa til þess að
geta tekið þátt í samræðum á norrænu
máli, þó ekki væri nema milli funda!
Það ber að nefna að námsefni og
kennsluáætlanir standa og falla með þeim
sem leiða námskeiðið, blása lífi í náms-
efnið og virkja þátttakendur til þess að
takast á við gamla kunnáttu á nýjum for-
sendum. Námskeiðin hefðu tæpast náð
þeim vinsældum sem raun bar vitni, ef
þátttakendur hefðu ekki notið styrkrar
leiðsagnar þeirra Agústu P. Agústsdóttur
og Berthu S. Sigurðardóttur. Þeim hefur
tekist að laða fram hjá þátttakendum djúpt
grafna kunnáttu og getað aðstoðað þá við
að gera dönskuna að virku tæki í starfi og
leik.
Brynhildur A. Ragnarsdóttirjorstöðumaður
Norrænu tungumálaráðgjafarinnar
Frá Félagi dönskukennara
Fundur í tilefni af 30 ára afmæli FDK verður haldinn að Hótel Sögu („Skáli“ 2.hæð)
laugardaginn 14. nóvember kl. 11.
Flutt verður lifandi tónlist og framreiddur léttur hádegisverður. Avörp flytja Klaus
Kappel sendiherra Dana á Islandi, Geir Gunnlaugsson forstjóri Marel og Berglind
Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs.
Berglind mun kynna starf Norðurlandaráðs á sviði tungumálasamstarfs og hugmynd-
ir sínar um dönskukennslu sem grunninn að þátttöku íslendinga í formlegu og
óformlegu norrænu sainstarfi.
Eftir fundinn, um klukkan kl 13.30, býður Háskólabíó fundargesti og aðra félaga
FDK hjartanlega velkomna á sýningu danskrar kvikmyndar.
Sjáumst heil!
Stjórnin