Málfríður - 15.05.2002, Qupperneq 13

Málfríður - 15.05.2002, Qupperneq 13
að vafra um netið fyrst og fremst til skemmtunar. Notkun tölvu við skólastörf er frábrugðin þessu. Að mínu mati þýðir t.d. ekki að láta nemendur fara að vinna á tölvu í námi án þess að tryggt sé að þeir skilji reglurnar sem unnið er eftir. Aður en byijað er að vinna með tölvu er því þörf á að gera grein fyrir nýju sameiginlegu kennsluumhverfi þ.e. gera nemendum grein fyrir því til hvers er ætlast af þeim í sambandi við að vinna ákveðið verkefni. 3. Ferilvinna eða TASK-vinna Vefleiðangurinn er aðferð til að búa til kennsluumhverfi og hann getur með góðu móti fallið inn í það sem oftast er kallað ferilvinna/máltökuverkefni eða TASK- vinna. (enska: task; ísl.: viðfangsefhi). Með því að nota TASK-vinnu í tungumála- kennslu tryggir maður: • tjáskipti/samskipti milh nemenda • þróun málakunnáttu nemenda • að innihaldið er í brennidepli • að verkefnin hafa ákveðinn tilgang • að verkefnin leiði til árangurs Vinnuferhð í TASK-vinnunni byggir á: í) Undirbúningsvinnu þar sem áhersla er lögð á: a) Undirbúning á innihaldi. b) Undirbúning nemenda hvað varðar málfræði, málnotkun og fleira. c) Að finna viðeigandi verkefni. 2) Sjálfri TASK-vinnunni, þar sem áhersla er lögð á: a) Að skipuleggja verkefnið. b) Að vinna verkefnið. c) Að nemendur íhugi hvernig þeir vinna og hvað þeir eru að læra. 3) Mati, með því er átt við: a) Verkefnaskil (skriflegt og/eða munn- legt). b) Málnotkunar- og málfræðiæfingar o.fl. Segja má að vefleiðangurinn sé tæki/að- ferð sem nota má til að vinna sjálfaTASK- vinnuna þ.e. við skipulagningu og úr- vinnslu verkefnisins. I undirbúnings- og matsvinnunni er einnig hægt að nota önn- ur forrit og annað efhi af netinu. í eftirfar- andi töflu er að finna tillögur um hvaða forrit/miðil er hægt að beita/nota í sam- bandi við framkvæmd; 1) undirbúnings- vinnunnar, 2) TASK-vinnunnar og 3) mats- vinnunnar. Miðill/forrit Dæmi Notkun Upplýsingar og efni Vefurinn, CD-ROM Undirbúningsvinna/upplýsingasöfnun Málþj álfunarforrit Gagnvirk innfyllingarverkefni, „drills" o.fl. Undirbúningsvinna/málþjálfun, málnotkun Ævintýraleikur, sýndarleikur o. fl. TASK-vinna/ Gagnvirk forrit leysa vandamál („problem solving'j Boðskiptamiðill Tölvupóstur, fréttir TASK-vinna/ spjallrásir og fleira samskipti, upplýsingar Vefleiðangur Notað til að safna TASK-vinna/ upplýsingum um leysa vandamál ákveðið efni („problem solving") Glæruforrit Powerpoint Matsvinna/ notuð til að kynna verkefnið. Ritvinnsluforrit Word,Word Perfect, Matsvinna/ Lotus ferilritun Málþj álfunarforrit Gagnvirk Matsvinna/ innfýllingarverkefni, ,,drills“ og fleira málþjálfun eftir verkefnaskil 13

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.