Málfríður - 15.05.2002, Blaðsíða 14

Málfríður - 15.05.2002, Blaðsíða 14
Vefleiðangurinn getur hjálpað nemendum að íhuga hvernig þeir vinna og hvað þeir eru að læra. Vefleiðangurinn er m.ö.o. leið sem hægt er að fara til að vinna TASK-vinnuna. Helstu kostir við að nota vefleiðangur eru þessir: • Nemendur eru leiddir markvisst gegnum ákveðið námsefni. • Vefleiðangurinn setur ramma og út- skýrir hvaða reglur gilda fyrir verk- efnið. • Vefleiðangurinn getur hjálpað nem- endum að íhuga hvernig þeir vinna og hvað þeir eru að læra. • Þó vefleiðangrar séu oftast upp- byggðir eins (kynning, verkefni, krækjur, vinnuferiU og mat) þá eru þeir mjög sveigjanlegir. (Skoðaðu einnig http://members.tripod.com/MsDSmith/ til að sjá vefleiðangur sem er gerður fyrir tungumálakennslu) 4. Dæmi um notkun vefleið- angra í dönskukennslu Skoðum dæmi um hvernig hægt er að nota vefleiðangurinn í tungumálakennslu. Dæmið er tekið úr dönskukennslu í fram- haldsskóla. Samkvæmt námsáætlun eiga nemend- ur að lesa skáldsöguna „Babettes gæste- bud“ eftir Karen Blixen. Að auki eiga nemendur að finna upplýsingar um höf- undinn. Hér er um að ræða frekar hefð- bundið verkefni, sem hægt er að fjalla um á hefðbundinn hátt.Til að gera þetta meira spennandi fyrir nemendur og vinnuna markvissari getur kennarinn unnið þetta sem ferilverkefni/máltökuverkefni eða TASK-verkefhi. Undirbúningur: í 1. tíma tjá nemendur sig um hvað þeir vita nú þegar um Karen Bhxen. 1. Hugflæði á dönsku þar sem kennar- inn skrifar upp á töflu þær hug- myndir sem nemendurnir koma með. 2. Hópnum er skipt niður í pör (nem- andi A og nemandi B). 3. Nemendur fá tvo texta sem báðir fjalla um atburð í lífi Karenar Bl- ixen. Nemandi A fær A- textann og nemandi B fær B-textann. Hvor texti er u.þ.b. ein A-4 blaðsíða að lengd. 4. Þegar nemendurnir eru búnir að lesa textann tekur kennarinn text- ana aftur. Nemandi A segir nem- anda B ffá textanum sínum (á dön- sku) og öfugt. 5. Allir A-nemendur safnast nú í hóp eða hópa og endurskrifa textann (á dönsku) sem B-nemendurnir lásu. B-nemendurnir reyna að endur- skrifa textann (á dönsku) sem A- nemendurnir lásu. 6. Hóparnir kynna texta sína hver fyr- ir öðrum (upplestur). Síðan er hægt að vinna áffam með textana með því að kennarinn ruglar þeim saman eða útbýr innfyllingarverkefni byggt á efni og orðaforða textanna. Á þennan hátt kynnast nemendur efninu og fá ákveðinn orðaforða sem kemur að gagni seinna. Heima byrja nemendur að lesa „Babettes Gæstebud“. I 2. tíma ffæðast nemendur meira um líf Karenar Blixen. 1. Sýnd eru smábrot úr myndinni „Out of Affica“ sem fjallar um líf Karen Blixen (leikin af Meryl Streep) í Affíku og sambandi henn- ar við Dennys Finch Hatton (Ro- bert Redford). 2. I framhaldi af því fá nemendur smá „innlegg" frá kennaranum um líf Karenar Blixen (fyrirlestur á dönsku). 3. í lok tímans er farið aðeins í fyrstu kaflana í „Babettes Gæstebud" og sérstök orð og orðaforða. (,,drills“ og innfyflingaræfingar). TASK-vinnan: I 3. tíma er vefleiðangur um Karen Blixen 14

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.