Málfríður - 15.05.2002, Blaðsíða 15
kynntur. Hægt er að skoða hann með því
að fara inn á eftirfarandi slóð: http://dan-
ska.khi.is / fjernundervisn-
ing/webquest/blixen/wehquest bl-
ixen.htm
Vefleiðangrinum er skipt niður í
• Kynningu
• Verkefni
• Krækjur sem skiptast í
a) „Baggrund.“
b) „Bibhografier.“
c) „Om Karen Blixen.“
d) „Rungstedlund.“
e) „Dennys Finch Hatton."
f) „Karen Blixens forfatterskab.“
g) „Karen Blixens hus i Afrika.“
Þetta er gert til að gera leitina að les-
efni markvissari.
• Vinnuferli
• Mat
Vefleiðangurinn á að vera staðsettur á net-
þjóni skólans þannig að nemendur geti
einnig nálgast vefleiðangurinn úr heimilis-
tölvu.
I 4. tíma vinna nemendur með vefleið-
angurinn annað hvort í tölvustofunni eða
á fistölvu. Hluti verkefnisins er m.a. að
skila svörum við spurningum úr bókinni
„Babettes gæstebud“. Svörin á að senda
kennara í tölvupósti. Þegar nemendur eru
búnir að senda svörin fer kennarinn yfir
þau og gefur „feed-back“ í leiðinni.
Einnig geta nemendur komið með spurn-
ingar varðandi texta og efni í vefleið-
angrinum.
í 5. tíma er bekknum skipt í hópa og
hver hópur fær það verkefni að endursegja
kafla í bókinni. Endursögninni þarf að
skila á tölvutæku formi og síðan verður
hún sett á netið. Þetta er gert til að hjálpa
nemendum með lesturinn. Einnig er
gagnvirkt próf fyrir fyrstu fimm kaflana í
vefleiðangrinum.
Mat
I þessu tilviki þurfa nemendur að skila
efhismikilh lokaritgerð á dönsku. Gert er
ráð fyrir að nemendur skfli fyrst glós-
um/punktum varðandi efnið. Þetta er gert
tfl þess að fá nemendur til að hugsa um
innihald og uppbyggingu ritgerðarinnar
áður en þeir byrja að skrifa. Þegar nem-
endur eru búnir að skila lokaverkefninu er
farið yfir ritgerðina og hún metin með tfl-
hti tfl innihalds, málfars, o.s.ffv.
Lokaverkefnið gæti einnig verið munn-
legt þar sem nemendur segja firá Karen Bl-
ixen á snældu eða í fyrirlestrarformi.
Að lokum getur kennarinn útbúið
málnotkunaræfingar sem tengjast helstu
villum sem nemendur gera, þannig að
málfræðin og málþjálfunin sé í samhengi
við efni og málfar nemenda.
Heimildir
Bente Schwartz: Informationsteknologi og fol-
keskolen — en udfordring. Kobenhavn. 1997.
Bernie Dodge: Some Thoughts About Web Quest.
San Diego State University. 1997.
Bernie Dogde: „The Web Quest page“. 1998. Á
eftirfarandi slóð:
http://edweb.sdsu.edu/people/bdodge/Pro-
fessional.html
Jane Willis: A Framework for Task-Based Learning.
Longman Handbooks for Language Teachers.
1996.
Michael Svendsen Pedersen og Kent Andersen:
Hvad venter vi pá? Uddannelsestyrelsens tema-
hæfte serie 4. Kobenhavn. 2000.
Sprogforum 20/2001. Temanummer om TASK.
Kobenhavn. 2001
Sófn vefleiðangra.
Vefleiðangrar unnir af tungumálakennurum á Islandi:
http://danska.khi.is/fiernundervisn-
ing/ webquest/safhsida.htm
http://www.hi.is/~thosk/ verkskil/
Vefleiðangurinn
á að vera stað-
settur á netþjóni
skólans þannig
að nemendur
geti einnig nálg-
ast vefleiðangur-
inn úr heimilis-
tölvu.
Vefleiðangrar unnir af kennurum frá öðrum löndum:
http://webquest.sdsu.edu/ matrix.html
Michael Dal,
lektor við Kennaraháskóla Islands
15