Málfríður - 15.05.2002, Side 20
tökufræði þ.e. að gengið er út frá forsend-
um lesanda þegar unnið er með bók-
mennta- og rauntexta.
Danskt mál og málnotkun III (2 ein.). A
þessu námskeiði er stefnt að því að auka
enn frekar leikni nema í færniþáttunum
fjórurn. Einnig er fjallað um hvernig megi
beita textagreiningu til að meta þyngd og
einkenni mismunandi texta.
Eftirfarandi námskeið eru í boði í ensku:
Enskt mál og málnotkun I (3 ein.). A
þessu námskeiði er fjallað um enska mál-
kerfið, málfræðihugtök, málfræðireglur,
málsnið og málnotkunarreglur. Einnig er
lögð áhersla á ritun texta af ýmsum gerð-
um.
Menning og þjóðlíf ( enskumælandi lönd-
um I (2 ein.). Námskeiðið fjallar um marg-
breytilegar hliðar á bresku þjóðlífi eins og
það birtist í bókmenntum, fjölmiðlum og
daglegu lífi fólks. Vinna í námskeiðinu
krefst alhliða málþjálfunar.
Enskt mál og málnotkun II (3 ein.). Fjall-
að er um uppbyggingu texta, orðræðu-
greiningu og hlutverk orðaforða. Lestur
og greining á ólíkum textagerðum. Auk
lesturs er þjálfun í ritun texta af ýmsum
toga.
Enskukennsla fyrir unga byrjendur (2
ein.). Lögð er áhersla á að kennaranemar
tileinki sér aðferðir og vinnubrögð sem
hæfa ungum byijendum. Fjallað er um
markmið, leiðir og aðferðir, einkum þær
sem tengjast hlustun, töluðu máli, leikjum,
söngvum og leikrænni tjáningu.
Enskukennsla í efri bekkjum grunnskóla (4
ein.). Þetta námskeið tengist vettvangs-
námi í ensku sem fer fram á sama misseri.
Lögð er áhersla á skipulagningu kennslu,
markmið og leiðir, námsefni og ítarefni og
komið inn á kennslu allra færniþátta.
Enskt mál og málnotkun III (2 ein.). A
námskeiðinu er fyrst og fremst fjallað um
talað mál og eðli þess. Nemar fá þjálfun í
að beita málinu við ýmsar aðstæður, taka
þátt í umræðum, lesa upp, segja ffá og
segja sögur. Auk þess fer fram þjálfun í rit-
uðu máh.
Menning og þjóðlíf í enskumœlandi lönd-
um II (4 ein.). A námskeiðinu kynnast
nemar menningu og þjóðlífi í ýmsum
enskumælandi löndum. Lesin verða bók-
menntaverk, dagblöð og greinar, auk þess
sem myndbönd og efni af veraldarvefnum
verður notað.
Nánari lýsingar á námskeiðum og aðrar
upplýsingar er að finna á vef Kennarahá-
skóla Islands http: //www.khi,is auk þess
sem undirrituð gefa allar nánari upplýs-
ingar. A vefnum er einnig að finna upplýs-
ingar frá Símenntunarstofnun KHI.
Það er ljóst að bæði námskráin og nýtt
námsefni gera meiri kröfur til kennara en
áður. Kennaraháskólinn vill leitast við að
styrkja kennara í starfi, koma til móts við
þá og opna skólann enn meir fyrir starf-
andi kennurum.
Auður Torfadóttir dósent
audurt@khi.is. s: 563 3817
Michael Dal lektor
michael@.khi.is. s: 563 3821
Samuel C. Lefever lektor
samuel@.khi.is. s: 563 3843