Bæjarins besta - 07.01.2016, Qupperneq 4
4 Fimmtudagur 7. JANÚAR 2016
Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740
Afgreiðsla og ritstjórn: Silfurgötu 1, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
Ritstjórnargrein
Nýtt ár nýtt ár
Spurning vikunnar
Ferðu í messu yfir hátíðirnar?
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
Alls svöruðu 629.
Já alltaf, sögðu 172 eða 27%
Stundum, sögðu 175 eða 28%
Nei aldrei, sögðu 282 eða 45%
Nú höfum við kvatt enn eitt árið og nýtt og spennandi ár er
framundan. Forsætisráðherra segir okkur að hætta að kvarta og
forsetinn ætlar að hætta að vera forseti. Veðurguðinn tekur mildi-
lega á okkur svona fyrstu daga ársins og dagarnir fara að lengjast.
Margir höfðu skoðun á því hver ætti að vera Vestfirðingur ársins
en flestir voru þó á sömu skoðun, Kristín Þorsteinsdóttir sund-
drottning hlaut tæp 70% atkvæða og er hún vel að þessum titli
komin. Kristín hefur staðið sig með eindæmum vel á árinu og rað-
að inn verðlaunum, hún er sterk og metnaðarfull og stefnir ótrauð
áfram. Kristín býr ekki við kjöraðstæður hér á Ísafirði til að stunda
sína íþrótt, hér er aðeins 16 m sundlaug en á mótum keppir hún í
50 m sundlaugum. Hér hefur hún mikla yfirburði og oft ein að æfa.
Árangur hennar er því einstakur og sýnir hvílíkt heljarmenni hún
er. Við óskum henni innilega til hamingju með þennan verðskuld-
aða heiður.
Þröstur Leó Gunnarsson hlaut allmörg atkvæði en hann bjargaði
tveimur skipfélögum sínum þegar Jón Hákon BA sökk út af Aðal-
vík í júlí, einn maður fórst. Þröstur hefur frá slysinu lagt áherslu
á að slysið og aðdragandi þessi verði rannsakaður. Björgunarbátar
opnuðust ekki og allt of langur tími leið þar til menn áttuðu sig á
að skipið væri í hættu.
Sú nýbreytni var tekin upp í þessu fyrsta blaði nýs árs að hripa
niður það sem fréttnæmast þótti á miðlum okkar á liðnu ári, skrifa
nokkurskonar annál ársins. Annállinn er nú svona á léttum nótum
og mest í punktaformi.
Bæjarins besta og bb.is líta með bjartsýni til framtíðar, af okkar
góða fólki hér á Vestfjörðum er alltaf eitthvað að frétta og við ætl-
um að koma því öllu til skila, eins samviskusamlega og við getum.
Sem fyrr eru allar ábendingar um fréttnæma viðburði og fallegar
myndir vel þegnar því við getum ekki verið allstaðar.
Við óskum lesendum okkar velsældar og ómældrar hamingju á
nýju ári og þökkum lestur á liðnum árum.
BS
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða
Umsóknarfrestur
til og með
22. janúar
U.þ.b. 60 milljónir
til ráðstöfunar
• Veitir styrki til atvinnuþróunar- og nýsköpunar-
verkefna, menningarverkefna og stofn- og
rekstrarstyrki til menningarstofnana
• Kemur í stað Menningarráðs Vestfjarða og Vaxtar-
samnings Vestfjarða
• Allar upplýsingar og sérstakt umsóknareyðublað
á www.vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur
Umsóknir sendast á uppbygging@vestfirdir.is
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er rekinn innan
vébanda Sóknaráætlunar Vestfjarða og er í umsjón
Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Umsóknarfrestur til og með föstudeginum 22. janúar 2016
Þröstur Leó Gunnarsson var
valinn maður ársins af hlustend-
um Rásar 2. Þröstur bjargaði
tveimur skipsfélögum sínum
þegar fiskibáturinn Jón Hákon
Þröstur Leó maður
ársins hjá Rás 2
Þröstur Leó Gunnarsson. Mynd: RUV.is
frá Bíldudal fórst út af Aðalvík í
sumar. Þröstur hefur frá slysinu
barist fyrir því að báturinn verði
tekinn upp og slysið rannsakað
í þaula.
Þröstur er búsettur á Bíldudal
ásamt fjölskyldu sinni og óskar
bb.is honum innilega til hamingju
með verðskuldaðan titil.