Bæjarins besta - 07.01.2016, Síða 7
fimmtudagur 7. JANÚAR 2016 7
Sunddrottningin Kristín Þor-
steinsdóttir er Vestfirðingur
ársins 2015. Kristín hlaut yf-
irburðakosningu í valinu sem
fór fram á fréttavefnum bb.is í
desembermánuði. Oft hefur meiri
spenna einkennt kosningarnar, en
núna voru það tveir einstaklingar
sem röðuðu inn atkvæðum, þau
Kristín og Þröstur Leó Gunnars-
son sem var í öðru sæti.
Kristín hefur lengi iðkað sund
og verið að gera góða hluti í
íþróttinni síðustu ár, sem hefur til
að mynda skilað henni titlinum
íþróttamaður Ísafjarðarbæjar tvö
ár í röð. Í nóvember keppti Krist-
ín á sínu stærsta móti til þessa,
Evrópumeistaramóti DSISO sem
fram fór á Ítalíu. Þar gerði hún
sér lítið fyrir og setti hvorki fleiri
né færri en tvö heimsmet, í 25m
flugsundi og 100m skriðsundi,
og níu Evrópumet. Þar toppaði
hún sjálfa sig og aðra, æ ofan í
æ og kom heim með fimm gull-
verðlaunapeninga, einn silfur og
einn brons. Að auki var hún kosin
efnislegasti sundmaður mótsins
af þjálfurum og fararstjórum
liðanna sem þar kepptu.
Kristín og móðir hennar Sig-
ríður Hreinsdóttir voru í opnuvið-
tali í 47. tölublaði Bæjarins besta
í lok nóvembermánaðar. Þar
kemur glögglega fram að Kristín
hefur einstakan persónuleika, er
ósérhlífin, öguð og mikill dugn-
aðarforkur. Viðtalið í heild sinni
má nálgast á vef Bæjarins besta
undir tölublaðaliðnum.
Í umsögnum sem kjósendur
létu fylgja kosningunni var
meðal annars sagt um Kristínu:
„Kraftmikil, dugleg og heillandi
persónuleiki. Metnaðarfullur
íþróttamaður með markmið.“
„Kristín hefur sýnt og sannað að
hún er verðug fyrirmynd í leik og
starfi. Margfaldur heimsmeistari
og yndisleg í alla staði.“ „Frábær
íþróttakona og fyrirmynd. Gerir
alltaf sitt besta með bros á vör.“
Kristínu var fært viðurkenn-
ingarskjal til staðfestingar á
valinu, farandgrip frá Gullauga
sem Vestfirðingur ársins hefur
hjá sér fram að næsta vali, sem og
glæsilegan eignargrip smíðaðan
af Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið.
Þröst Leó þarf vart að kynna
en hann er einn ástsælasti leikari
íslensku þjóðarinnar. Þröstur er
Bílddælingur og hefur hann varið
löngum stundum á æskuslóðun-
um, þar sem hann hefur stundað
sjómennsku. Hann var meðal
skipverja á fiskibátnum Jóni
Hákoni sem fórst út af Ritnum
Kristín Þorsteinsdóttir
Vestfirðingur ársins 2015
í byrjun júlímánaðar. Þröstur
vann mikið björgunarafrek er
hann komst á kjöl eftir að bátn-
um hvolfdi, þegar hann togaði
tvo félaga sína upp úr sjónum,
Björn Magnússon skipstjóra og
Guðmund Reyni Ævarsson stýri-
mann. Fjórði maðurinn, Magnús
Kristján Björnsson, drukknaði.
Þröstur hefur eftir slysið vakið
athygli á öryggismálum sjó-
manna, t.d. hugsanlegum göllum
í björgunarbúnaði. Hann var á
dögunum kosinn maður ársins í
kosningu Rásar2.
Í umsögnum um Þröst var hann
sagður hetja og þar væri á ferð
góður og gegnheill drengur. Aðr-
ar umsagnir voru meðal annars:
„Hann vann þrekvirki í sumar
þegar hann bjargaði tveimur
skipsfélögum sínum. Svo er hann
svo hógvær og æðrulaus“ og
„Barátta hans fyrir betri vinnu-
brögðum á rannsókn sjóslysa.“
Bæjarins besta óskar þeim
innilega til hamingju með kosn-
inguna og þakkar lesendum
þátttökuna.
Aðrir sem fengu atkvæði í
kosningunni að þessu sinni eru:
Áhöfnin á Mardísi, Sigfús Ön-
undarson og Jóhann Sigfússon.
Gauti Geirsson, Guðjón M.
Þorsteinsson, Kristín Jóna Þórar-
insdóttir, Jón Guðni Pétursson,
Hjörtur Traustason, Baldur Ben
Ólafsson, Mikolaj Ólafur Frach,
Ásgeir Guðmundur Gíslason,
Óskar Jakobsson og Gísli Einar
Árnason, Magnús Hauksson,
Magna Björk Ólafsdóttir, Björg-
unarfélag Ísafjarðar, Sigurjón
Sigurðsson og Halldór Svein-
björnsson, Marinó Hákonarson,
Ásgeir Överby, Benni Sig.,
Guðrún Kristín Guðfinnsdóttir,
Ómar Karvel Guðmundsson og
starfsfólk Orkubús Vestfjarða.
Á síðasta ári var það hjúkr-
unarfræðingurinn Magna Björk
Ólafsdóttir sem varð hlutskörpust
í valinu. Áður hafa fengið nafn-
bótina Vestfirðingur ársins þau
Guðni Páll Viktorsson (2013),
Agnes M. Sigurðardóttir, bisk-
up Íslands (2012), Örn Elías
Guðmundsson, Mugison (2011),
Benedikt Sigurðsson (2010),
Halldór Gunnar Pálsson (2009),
Egill Kristjánsson (2008), Arna
Sigríður Albertsdóttir (2007),
Sunneva Sigurðardóttir (2006),
Sigríður Guðjónsdóttir (2005),
Örn Elías Guðmundsson, Mugi-
son (2004), Magnús Guðmunds-
son (2003), Hlynur Snorrason
(2002) og Guðmundur Halldórs-
son (2001).