Bæjarins besta - 07.01.2016, Page 11
fimmtudagur 7. JANÚAR 2016 11
Ólafs. Dýrafjarðardagar voru á
sínum stað, sem og hið árlega
og fjöruga Ögurball. Þrátt fyrir
banka- og pósthúsleysi héldu
Tálknfirðingar sitt Tálknafjör í
tíunda sinn.
Guðmundur Fertram, fram-
kvæmdastjóri Kerecis var út-
nefndur sem „Frumkvöðull árs-
ins” af Viðskiptablaðinu.
Dragnótabáturinn Jón Hákon
BA sökk út af Aðalvík og fórst
með honum einn maður, þremur
var bjargað. Slysið hefur haft
talsverð eftirköst, ekki síst vegna
þess að björgunarbátar opnuðust
ekki.
Eftir nokkuð japl, jaml og
fuður hefur nýtt og sameinað
íþróttafélag á norðanverðum
Vestfjörðum fengið nafnið Vestri.
Ágúst.
Nýr eigandi, Bryndís Sigurðar-
dóttir, tekur við bb.is og Bæjarins
besta fyrsta dag ágústmánaðar,
það þótti þokkalega fréttnæmt.
Sömuleiðis heyrðust þau tíðindi
að búið væri að ráða Höllu Ólafs-
dóttur sem starfsmann RÚV á
Vestfjörðum og hún myndi mæta
þegar liði eitthvað á haustið.
Afhendingarhátíð hjúkrunar-
heimilisins Eyri var haldin með
kurt og pí, þó eiginlega bara með
kurt og pí hafi verið fjarverandi.
Fulltrúar Ísafjarðarbæjar (kurt)
mættu samviskusamlega til að
afhenda þetta glæsilega húsnæði
en fulltrúar viðtakenda, Heil-
brigðisstofnunar Vestfjarða (pí)
létu ekki sjá sig, né heldur heil-
brigðisráðherra eða fulltrúi hans.
Þetta þótti mörgum undarlegt.
Kæra Eygló, Sýrland kallar,
Núpsbræður urðu tafarlaust
við kallinu og buðu húsakynni
sín í Dýrafirði til afnota fyrir
stríðshrjáða meðbræður okkar í
veröldinni.
Steinshús opnaði í Félags-
heimilinu á Nauteyri, helgað
minningu Steins Steinars og
Raggagarður fagnaði 10 ára
afmæli með mikilli hátíð. Fisk-
vinnsla Flateyrar hóf störf og þar
stendur Margrét Kristjánsdóttir
í brúnni.
Act Alone sló í gegn á Suður-
eyri eina ferðina enn, litli bærinn
fyllist af gestum og listafólki.
Ævar Einarsson slær ekki slöku
við með Noggann og góð þátttaka
var í ferðinni á Norðureyri þetta
árið. Agnarsmá flugvél TF-LSD
nauðlenti í Álftafirði, mikil mildi
að engin skyldi slasast.
Mál málanna á Ísafirði um
verslunarmannahelgina er Mýr-
ar boltinn, þátttaka var ágæt en
eitthvað var veðrið að stríða
móthöldurum.
Sandkastalakeppnin í Holti
var á sínum stað og gríðarvel
sótt, þrátt fyrir leiðindaveður.
Sandsballið á Ingjaldssandi stóð
fyrir sínu og Súðvíkingar héldu
sína Bláberjadaga.
September
Sjálfsbjörg hélt sinn fyrsta
Landsfund í Bolungarvík en
salurinn í Félagsheimili Bol-
ungarvíkur er vel búin og hjóla-
stólafær. Á þinginu voru Birna
Hjaltalín Pálsdóttir og Messíana
Marsellíusardóttir sæmdar gull-
merki Sjálfsbjargar.
Réttir voru haldnar víða eins og
lög gera ráð fyrir í september og
virðist fé hafa skilað sér bæði feitt
og fallegt af fjalli. En hjá útverði
Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða í
Bolungarvík var starfsmönnum
heitt í hamsi vegna uppsagnar
Huldu Karlsdóttur, ekki síst
vegna ófaglegra vinnubragða
yfirmanna HVEST.
Önfirðingurinn Andrea Rán
Snæfeld Hauksdóttir, knattspyrn-
ukona úr Íslandsmeistaraliði
Breiðabliks var valin efnileg-
Víkingahátíð í Dýrafirði.
Mýrarboltinn.