Bæjarins besta - 07.01.2016, Blaðsíða 12
12 Fimmtudagur 7. JANÚAR 2016
Útför í Ísafjarðarkirkju laugardaginn 9. janúar kl. 13.00
Finnur Magnús Gunnlaugsson
f. 8. janúar 1958 - d. 31. desember 2015
verður jarðsunginn í Ísafjarðarkirkju en jarðsettur á Flateyri.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Rauða Krossinn á Ísafirði.
Arnaldur Máni Finnsson, Karna Sigurðardóttir, Jóakim og Þorfinnur
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir og fjölskylda
María Gunnlaugsdóttir og fjölskylda
Halldóra V. Gunnlaugsdóttir og fjölskylda
Bergljót Tulinius Gunnlaugsdóttir og fjölskylda
Birna Sigríðar Gunnlaugsdóttir og fjölskylda
Einar Þór Gunnlaugsson og fjölskylda
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Friðgeir Einarsson
byggingameistari
Traðarstíg 11, Bolungarvík
sem lést í Bolungarvík hinn 23. desember, verður jarðsunginn
frá Hólskirkju í Bolungarvík föstudaginn 8. janúar klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð Hólskirkju. Reiknings-
númer: 0174 – 18 – 911908, kennitala: 630169-5269.
Margrét Kristjánsdóttir,
Kristján Jónsson
og barnabörn
Skúli Gunnarsson
Stig Arne Wadentoft
Ása Ásmundsdóttir
Margrét Jónsdóttir
Einar Þór Jónsson
asti leikmaður Pepsídeildar en
Vottarnir Simon og Christina
yfirgáfu Ísafjörð eftir átta ára
veru þar.
Hægt var að hlusta á sögur af
ömmum í Edinborg og á hljóm-
sveitina Dimmu í Bolungarvík,
hvort tveggja einstök upplifun.
En fréttir bárust af því að hætt
var við uppbyggingu nótaþvotta-
stöðvar á Þingeyri og Ice Water
Sources ehf hefði ekki fengið lóð
fyrir vatnsverksmiðju við Máva-
garð á Ísafirði. Úlfar Önundarson
ræsir nýtt fyrirtæki á Flateyri,
hann ætlar að hreins saltið sem
kemur frá Fiskvinnslu Flateyrar.
Landsbankinn tilkynnti lokun í
Bolungarvík, á Suðureyri, á Flat-
eyri og á Þingeyri, uppi varð fótur
og fit og niðurstaðan varð algjör
lokun á Flateyri og Suðureyri en
knappur og stopull opnunartími á
Þingeyri og í Bolungarvík.
Ópera Vestfjarða frumsýndi
sitt fyrsta verkefni „Eitthvað
sem lokkar og seiðir“ og fjallaði
það um söng- og leikkonuna
Sigrúnu Magnúsdóttir sem nefnd
hefur verið „óperettudrottning
Íslands”. Sigrún Pálmadóttir
söng hlutverk nöfnu sinnar.
Litli leikklúbburinn var með
kvöldskemmtun í tilefni 50
ára afmælis og Elfar Logi og
hans fólk henti í Víkingahátíð í
Haukadal.
Iceland Got Talent hófst með
prufum í Edinborgarhúsinu, þar
stigu margir á stokk.
Í lok mánaðar bárust fréttir af
uppsögnum á Tálknafirði þegar
Þórsberg hf tók ákvörðun um að
loka vinnslunni og selja skip.
Október
Valkyrjur Vestfjarða hóuðu
saman ráðstefnu í tilefni kvenna-
frídags og kosningaafmælis
kvenna, Í kjölfar Bríetar kalla
þær samtökin og var ráðstefnan
gríðar vel heppnuð. Um það bil
hundrað gestir og fyrirlesarar
bæði fræðandi og skemmtilegir. Í
kjölfar ráðstefnunnar var stofnuð
FKA deild á norðanverðum Vest-
fjörðum, FKA stendur fyrir félag
kvenna í atvinnulífinu.
Þann 26. október voru 20 ár
frá því snjóflóð féll á Flateyri og
20 manns fórust, þess minntust
Flateyringar með fallegri stund í
Flateyrarkirkju.
Þau undur og stórmerki gerð-
ust að þokkalega stór ísjaki sigldi
í rólegheitum inn Önundarfjörð,
alveg inn að Valþjófsdal þar sem
hann svo bráðnaði og hvarf.
Kvikmyndin Þrestir sem tekin
var að mestu á Flateyri var frum-
sýnd í Ísafjarðarbíói, myndin
hefur hlotið mörg verðlaun og
þykir mjög áhrifamikil.
Framkvæmdir hófust við
strandblakvöll í Tungudal og
heimildarmyndin Veðrabrigði
var frumsýnd, myndin fjallar
um og gerist á Flateyri. Gissur
Páll Gissurarson og Halldór
Smárason voru með tónleika í
Bolungarvík en karlakórinn Ernir
kvaddi stjórnendur sína til margar
ára, þær Beötu Joó og Margréti
Gunnarsdóttur með kveðjutón-
leikum í Ísafjarðarkirkju.
Guðbjartur Hannesson þing-
EPTA keppnin er eina tónlist-
arkeppnin fyrir nemendur í
klassískri tónlist á Íslandi. Sex
nemendur fóru frá Ísafirði í þessa
Mótmæli á Þingeyri.
Ráðstefna kvenna.
Tindabykkjan.
maður kjördæmisins lést eftir
stutta baráttu við krabbamein.
Nóvember
Kristín Þorsteinsdóttir sund-
kona setti tvö heimsmet og 9
Evrópumet á Evrópumeistara-
móti á Ítalíu. Þetta er þeim mun
meira afrek þegar tekið er tillit
til þess að hún æfir í 16 m laug,
oftast ein.
Mikolaj Ólafur Frach sigraði
í flokki 18 ára og yngri, í EPTA
píanókeppninni í Kópavogi en
keppni. Svavar Knútur söng sig
inn í hjörtu Vestfirðinga, eina
ferðina enn sem og Mugison,
Skúli mennski og poppprinsinn
Páll Óskar. Eiríkur Örn upplýsir
um heimsku sína í Edinborg en
Píratar vilja að Vestfirðir verði
sjálfstætti ríki ef ekki tekst að
færa meira vald til fjórðungsins.
Rythmatik gefur út sína fyrstu
plötu og spilar á Iceland Airwa-
ves en Jón Gnarr gerir allt vitlaust
með bók sinni Útlaginn sem fjall-
ar um ár hans á Núpi í Dýrafirði.
Kristín Þorsteinsdóttir.