Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.02.2016, Page 2

Bæjarins besta - 18.02.2016, Page 2
2 Fimmtudagur 18. febrÚAr 2016 Háls- nef- og eyrna- læknir á Ísafirði Ólafur Guðmundsson Háls- nef- og eyrna- læknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 24. – 26. febrúar. Tímapantanir í síma 450 4500, á milli kl. 08.00 og 16.00 alla virka daga. HEILBRIGÐISSTOFNUN VESTFJARÐA Dansbylting í Stjórnsýsluhús- inu föstudaginn 19. febrúar kl. 11.45 í boði UN Women á Íslandi Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta frá því við lok seinni heim- styrjaldar. Þær eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu of- beldi, mansali og kynlífsþrælkun. Í ár tileinkum við dansinum konum á flótta sem leggja líf sitt að veði í leit að öruggara lífi fyrir sig og börn sín Allir eru hjartanlega velkomnir í Stjórnsýsluhúsið þann 19. febrúar stundvíslega kl. 11.45 til að taka þátt í dansbyltingu! Byltingin er haldin um allan heim og með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karlmanna, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra. Okkar trú er sú að það sem sam- einar okkur er sterkara en það sem sundrar okkur. Í fjórða sinn ætlum við að sam- einast fyrir hugrökkum konum um allan heim sem berjast gegn mótlæti, óréttlæti og misbeitingu í daglegu lífi. Við ætlum að veita þeim samstöðu og dansa af krafti. Hátt í 10 þúsund hafa komið saman um land allt síðastliðin fjög- ur ár og fylkt liði á dansgólf lands- ins. Í ár verður dansað í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupsstað og á Höfn í Hornafirði. Í ár pússum við dansskóna enn betur! UN Women hvetur alla til að rísa upp gegn óréttlæti heimsins fyrir heimi án ofbeldis og mæta með Fokk ofbeldi húfuna í dansinn, bera hana með stolti og vekja um leið fólk til vitundar um ofbeldið og óöryggið sem konur á flótta og börn þeirra búa við um þessar mundir. Hægt er að kaupa Fokk ofbeldi húfu á 3.900 kr. í verslunum Eymundsson um land allt. UN Women á Íslandi hvetur alla til að næla sér í húfu og gefa um leið ofbeldi fingurinn. Eins skorar UN Women á Íslandi á vinnustaði, skóla og vinahópa til að mæta og taka þátt í byltingunni með dansinn að vopni. Ekki missa af stærstu dansveislu heims! Aðgangur ókeypis Myllumerkið er #milljardurr- is16 og #fokkofbeldi Konur á flótta þurfa vernd og öryggi • Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta frá því við lok seinni heim- styrjaldar. • Um 500 þúsund konur og börn flýja nú heimalönd sín og leggja leið sína til Evrópu • Talið er að 12% kvenna sem ferðast yfir Miðjarðarhafið séu með barni • Gríðarleg aukning hefur orðið á mæðradauða síðan flóttamanna- straumurinn hófst • Konur og stúlkur á flótta eiga í stöðugri hættu á að vera beittar ofbeldi, kynferðislegri misnotkun eða mansali – Sjónarmið – Inga María Guðmundsdóttir Sögupersónur í þessari til- búni dæmisögu eru Óli og Siggi. Óli er 38 ára fjölskyldu- maður, gamall skáti, núver- andi björgunarsveitarmaður og áhugamaður um útivist, hreyfingu og samveru með fjölskyldunni. Þessi áhuga- mál sameinar hann gjarnan þegar fjölskyldan fer í langa göngutúra með hundinn, hann Snata, sem þau ættleiddu hjá Dýrahjálp Íslands. Þegar atvik- ið sem hér er til umfjöllunar, átti sér stað voru þeir Snati á leið heim eftir góðan göngutúr, og Óli hlakkaði til að eiga notalegt föstudagskvöld með fjölskyldunni. Siggi er fermingarbróðir Óla og gamall skólafélagi en síðustu áratugina hafa þeir ekki rekist mikið hvor á annan, ekki fyrr en þeir rákust bókstaflega saman á bílastæðinu fyrir fram- an Vínbúðina, fimm mínútur í sjö á föstudagskvöldi. Ekki er gott að segja hvor þeirra varð valdur að árekstrinum, Snati hefur kannski kippt heldur mikið í húsbónda sinn á svell- inu og Siggi skautað einbeittur á blankskónum af öllum sínum þunga, með það markmið að ná í Ríkið fyrir lokun. Að kaupa bjór með snakkinu var Sigga efst i huga þar sem hann hljóp-skautaði yfir bílastæðið með hálfreykta sígarettu í annarri hendinni og síðasta pulsubitann í hinni. Og þá skullu þeir saman! Byltan var slæm og það þurfti sjúkrabíl til að koma Sigga og Óla undir læknishendur. Það er bara einn læknir á vakt og þá er það hin stóra spurning um forgang. Hvor þeirra á rétt á að fá aðhlynningu fyrst og hvor þarf að bíða? Nú veit ég nákvæmlega ekki neitt um forgangsröðun sjúklinga á bráðadeildum sjúkrahúsa, en ég myndi giska á að best sé að huga fyrst að þeim sem væri meira slasaður – er það ekki? Æ, ég viðurkenni að þetta var nú svolítið kvikindislega uppsett hjá mér. Fer mörgum orðum um hvað Óli er mikill fyrirmyndarborgari og gef í skyn að Siggi hugsi fyrst og fremst um lífsins nautnir, og sé kannski ekki alltaf sá ábyrg- asti. Eins og það skipti einhverju máli þegar fólk verður veikt eða slasast og þarf að leita á náðir heilbrigðiskerfisins! Eða hvað? Skiptir það kannski máli? Manneskja sem lifir lífi sínu eftir öllum ráðleggingum og stöðlum sem yfirvöld gefa út með það að markmiði að minnka líkur á sjúkdómum, á sú manneskja kannski meiri rétt á þjónustu heilbrigðiskerfisins en manneskja sem spáir meira í verð, þægindi eða bragð þegar verslað er í matinn og situr kyrr við tölvuna frá 8–5? Þegar sófa- kartaflan veikist, ætli hún upplifi skömm yfir því að þurfa að nota dýr úrræði heilbrigðiskerfis sem fjölmiðlar segja okkur á hverjum degi að ráði ekki við meira? Þó að dæmið um Sigga og Óla hafi verið tilbúningur, þá hef ég undanfarin ár heyrt ýmis- legt sem segir mér að ekki eru allir sjúklingar jafnir. Ég hef verið á mannamótum þar sem sagðar eru fréttir af fólki og man eftir nokkrum skiptum þar sem frásegjandinn bætir aftan við sjúkrasögu: „En það er nú honum sjálfum að kenna.“ Og svo er gjarnan bætt við í undrun „En hún reykti aldrei og hjólaði alltaf í vinnuna“ þegar einhver, sem lifað hefur dyggðugu lífi, fær krabbamein. Ég verð reyndar að viðurkenna að þeir sem vilja skipta sjúkling- um í verðuga og óverðuga, minna mig á Lykla-Pétur og Gullna hliðið. Lykla-Pétur stendur við hliðið að himnaríki og passar að syndugir sleppi ekki þangað inn. Lykla-Pétrar heilbrigðiskerfisins vilja sem betur fer ekki senda synduga sjúklinga til helvítis, nei þeir komast inn í heilbrigð- iskerfið en með einhvers konar siðferðislegri sjálfsábyrgð „Þetta er nú honum sjálfum að kenna“. En er þetta ekki bara allt í lagi? Ef það er tölfræðileg fylgni milli einhverra þátta í lífi okkar sem við getum stjórnað og því að þurfa meiri og dýr- ari heilbrigðis þjónustu, á það nokkuð að vera viðkvæmt mál? Sumir eru óheppnir og glíma við veikindi og sjúkdóma þrátt fyrir að hafa lifað frómu lífi. Aðrir hunsa staðla yfirvalda um hollt líferni og gera hluti sem þeir vita að fylgir hætta. Ef til vill er það bara hið besta mál að minna þá á eigin ábyrgð, það hvetur þá til að bæta úr ráði sínu og fælir aðra frá að gera sömu mistök. Það má kannski færa rök fyrir því, sérstaklega í þjóðfélagi sem leggur áherslu á hagkvæmni og hagræðingu. En skiptingin í dyggðuga sjúklinga og synduga virðist ekki alveg vera á hreinu. Hvað með slys á skíðum, við fjallaklifur, við keyrslu yfir hámarkshraða og/eða slæmar aðstæður nú eða við að ganga yfir svellbunka á skóm sem henta engan veginn til þess. Hvað með íþróttameiðsl? Íþrótt- ir valda mjög mörgum slysum og endurhæfing eftir íþróttaslys er oft löng og dýr. Samt sjást blaðagreinar um kostnað þjóð- félagsins vegna íþróttameiðsla ákaflega sjaldan en greinar um kostnað vegna offitu eru svo til daglegt brauð. Lausleg leit í Google á „íþróttameiðsl kostn- aður” skilaði 77 niðurstöðum en leit á „offita kostnaður” skilaði 48.000 niðurstöðum Kannski vantar okkur bara Lykla-Pétur í vinnu á sjúkra- húsið, fá alvöru fagmann í flokkunina? Inga María Guðmundsdóttir Syndugir sjúklingar Fánasmiðjan ehf. Ísarði óskar eftir að ráða starfsmann til framleiðslu á fánum, límmiðum og eiri skyldum vörum. Um er að ræða ölbreytt starf og nauðsynlegt að umsækjandi sé metnaðarfullur og geti unnið sjálfstætt. Skilyrði er að umsækjandi ha sæmilega tölvukunnáttu og góða þjónustulund. Ekki er nauðsynlegt að hafa reynslu í silkiprentun, aðeins áhuga á að læra og þor til að prófa sig áfram. STARFSKRAFTUR ÓSKAST Aðrar hæfniskröfur : Metnaður - Frumkvæði - Stundvísi - Geta til að vinna sjálfstætt Áhugasamir ha samband við skrifstofu Fánasmiðjunnar í síma: 577 2020 fyrir 1.mars

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.