Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.03.1993, Side 1

Bæjarins besta - 24.03.1993, Side 1
VESTFJÖRÐUM AÐILIAÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 1993 12. TBL. • 10. ÁRG Verð kr. 150,- ísafjörður: Bæjarstarfsmenn skammaðir - sjá bls. 2 Flateyri: Dómur fallinn í skotmálinu - sjá bls. 4 Leiklist: Baldur Hreins- son í spjalli - sjá bls. 6 Seljalandsdalur: Mesti snjór í áratugi - sjá bls. 9 Vegskálar: JFE með lægsta tilboðið - sjá baksíöu OPID KL. 09-12 OG KL. 13-17 FLUGLEIDIR - SÖLUSKRIFSTOFA - MJALLARGÖTU 1 • ÍSAFIRDI KRÁARSTEMMMNG Lifandi tónlist laugardagskvöldkl .22-01 Mánagötu 1 ísafirði, S 4306 ísafjörður: Einar Garðar vill annan stað undir sorpeyðingarstöð Á FUNDI bæjarstjórnar Isafjarðar í síðustu viku lagði Einar Garðar Hjalta- Ison, forseti bæjarstjórnar og framkvæmdastjóri Fisk- markaðs Isafjarðar, fram þá tillögu að fyrirhugaðri sorp- eyðingarstöð sem rísa á, á uppfyllingunni á Suður- tanga, yrði fundinn annar staðar. Einar Garðar segir að fjölmargir hafi haft sam- band við hann og aðra bæjarfulltrúa og óskað eftir því að þeir tækju málið upp innan bæjarstjórnar. Einar Garðar Hjaltason. „Ég lagði fram þá tillögu, í eigin nafni, að stöðinni yrði fundinn annar staður. Af- greiðslu þeirrar tillögu var frestað,” sagði Einar Garðar í samtali við BB. „Það er verið að tala þarna um sorporkustöð. Orkan sem á að koma frá henni er 1,5 megavött sem er ekki mikil orka — að verðmæti þremur til fimm milljónum á ári. Ef þær eru þrjár þá er orkan tíu þúsund króna virði á dag, ef þær eru fimm þá er verðmætið þrettán þúsund. Yfirvöld gefa það út að fjar- lægðarmörkin frá orkuverinu eða sorpeyðingarstöðinni skuli veraábilinuþrjú til fimm hundruð metrar, innan þess er hættusvæði. Svæðið þarna niður frá er hins vegar byggt upp fyrir hafsækna starfssemi. Það heyrir undir hafnarstjórn og hún hafnaði staðsetning- unni á sínum tíma. Matvæla- fyrirtækin þarna í grennd hafa einnig gert athugasemdir við staðsetninguna. Og í sumar á að rísa gámaplan við Sunda- höfn en hún er framtíðar vöru- höfn Norður-Isafjarðarsýslu, þaðan verða bæði fryst og fersk matvæli flutt út og planið á að rísa ! um tvö hundruð metra fjarlægð frá stöðinni. Það eru áhöld um hvort á að blanda saman matvælaiðju og sorpeyóingu og ég tel ekki rétt að blanda þessu tvennu saman fyrir tíu þúsund krónur á dag. Sorpeyðingarstöð veitir held- ur ekki mörgum atvinnu og kæmi þarna önnur starfsemi þá fengju þar örugglega fleiri atvinnu. Það er enginn að agnúast út í stöðina sem slíka, því hún fullnægir öllum kröfum, eða undirbúninginn, hún hefur verið góð. Það er staðarvalið sem verið er að gagnrýna. Þetta er dýr lóð og það fer mikið pláss undir þessa sorp- eyðingarstöð og aðstöðuna sem henni þarf að fylgja og ég tel lóðina of verðmæta til að vera með sorpeyðingarstöð á henni. Við erum líka stöðugt að reyna að framleiða sem besta vöru sem fullnægir ýtrustu gæðakröfum og það er spurning hvort sorpeyð- ingarstöð á þessum stað dregur ekki úr trausti á afurðunum,” sagði Einar Garðar Hjaltason forseti bæjarstjórnar Isafjarð- ar. -hj. Bolungarvík: - tilboð væntanlegt frá Ósvör fyrir helgi ÞROTABU Einars Guð- Stefán scgir að ekki hafi finnssonar í Bolungarvík mun ekki gera togarann Dagrúnu lengur út og mun skipið því stöðvast að af- loknum yfirstandandi túr. Skiptastjóri þrotabúsins segist eiga von á tilboði frá hinu nýstofnaða hluta- félagi Ósvör fyrir helgina. „Það stóð aldrei til að fara í einhverja langvinnaút- gerð. Við ákváðum í upp- hafi að binda ekki skipið en það er ekki rétt að halda þcssu lcngur áfram, það var heldur aldrei meiningin enda ekki hlutverk þrotabús að standa í slíkum rekstri,” sagði Stefán Pálsson skipta- stjóri þrotabús EG í samtali við BB. Stefán er þessa daganna staddur í Bolungar- vík til að vinna að málefnum þrotabúsins. enn komið tilboð frá hinu nýstofnaða hlutafclagi Ós- vör S Bolungarvík í togarana tvo Dagrúnu og Heiðrúnu. Hann segist þó eiga von á tilboði frá Ósvör fyrír helgi. „Ég á von á tilboði frá Ósvör um kaup á togurunum á fimmtudag, eða alla vega fyrir helgína.” Heiðrún hefur verið í slipp undanfarið eins og kunnugteren hún mun losna úr honum í kvöld. Togarinn siglir þá tíl Bolungarvíkur þar sem hann verður bundinn við bryggju. Ljóst er að þrotabúið mun hvorugan togarinn senda á veiðar. „Því rniður, við vonunt bara að cinhverjir aðrir geti drifið í þessari útgerð,” sagði Stefán Pálsson skipta- stjóri þrotabús EG. _hj. Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði: Hatrammar deilur fram- kvæmdastjóra og Mtrúa hans - sumir stjórnarmenn vilja gefa framkvæmdastjóanum kost á að segja starfi sínu lausu, en segja honum upp, verði hann ekki við því. Málið sprottið vegna misskilnings, segir formaður stjórnar FSÍ DEILAN kom upp á yfir- borðíð á stjórnarfundi sjúkrahússtjórnar Fjórð- ungssjúkrahússins áísafirði (FSÍ). Þar var lagt fram bréf frá Guðna Guðnasyni fuil- trúa Guðmundar Marinós- sonar framkvæmdastjóra sjúkrahússins, þar sem Guðni sagðist eiga inni ógreidda yfirvinnu. Einnig óskaði Guðni eftir því að við hann yrði gerður starfs- samningur og starfslýsing samin vegna starfs hans. í framhaldi af þessu spruttu upp deilur þar sem Guð- mundur lét þau orð falla að Guðni hefði týnt fjórum milljónum króna sem hann gæti ekki gert grein fyrir h vað orðið hcfði um. Guðni segir aó með þessu sé Guðmundur að saka hann um fjárdrátt. Guðni óskaði eftir því að stjóm FSÍ léti rannsaka hvort einhverjar fjarhæðir vantaði. Stjórnin varð við þéirri ósk og vék Guömundi og Guðna frá um vikutíma meðan rann- sóknin stæði yfir. Fylkir Ágústsson segir mál- ið sprottið vegna misskiln- ings; Guðmundur hafi ekki verið að saka Guðna um þjófnað, héldur benda á skekkju í tékkheftinu. Fylkir segir að ekkert hafi komið fram sem bendi til að peninga vanti. Guðmundur Marinósson neitar að tjá sig um málið á þessu stigi. Sjá nánar síðu 2. ■hj.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.