Bæjarins besta - 24.03.1993, Page 4
4
BÆJARINS BESTA • Miövikudagur 24. mars 1993
Óháð vikublað
á Vestfjörðum,
Útgefandi:
H-prent hf.
Sólgötu 9,
400 ísafjörður
8 94-4560
i 94-4564.
Ritstjóri:
Sigurjón J.
Sigurðsson
8 4277 &?
985-25362.
Ábyr gð armenn:
Sigurjón J.
Sigurðsson og
Halldór
Sveinbjörnsson
8 4101 &?
985-31062.
Blaðamaður:
Haraldur
Jónsson.
Útgáfudagur:
Miðvikudagur.
Prentvinnsla:
H-prent hf.
Bæjarins besta
er aðili að
samtökum
bæjar- og
héraðsfrétta-
blaða.
Eftirprentun,
hljóðritun,
notkun ]jós-
mynda og
annars efnis er
óheimil nema
heimilda sé
getið.
Opið hús hjá Björgunarsveitinni Tindum:
Sveitin tekur í notkun
nýjan og fullkominn
bj örgunar sveitarbfl
BJÖRGUNARS VEITIN Tindar í Hnífsdal tók síðastliðinn
sunnudag í notkun einn öflugasta og fullkomnasta björgunar-
sveitarbíl á norðanverðum Vestfjörðum. Af því tilefni var
félagið með opið hús í bækistöð sveitarinnar að Strand-
götu 7 í Hnífsdal og leit fjöldi manns við hjá sveitinni í tilefni
þessa áfanga.
Að sögn Magnúsar Geirs
Helgasonar formanns Tinda er
hér um mjög fullkominn bíl
að ræða og vænta þeir Tinda-
menn mikils af honum í fram-
tíðinni. „Bifreiðinerafgerð-
inni Nissan Patrol dísel árgerð
1993. Hann er mikið breyttur
og á 38 tommu dekkjum.
Meðal þess búnaðar sem
settur hefur verið í bílinn er
Intercooler, sem eykur kæl-
inguna á vélinni, þá eru loft-
driflæsingar á honum sem hægt
er að læsa bæði að framan og
aftan. A honum er öflugt spil
og loftdæla. Þá er fjarstýrt
leitarljós og „fiskiauga” en það
er sérstakt ljós til að nota í
skafrenningi auk tveggja 170
watta Ijóskastara. Þessu til við-
bótar má nefna að í bílnum eru
þrjár talstöðvar og GPS-stað-
setningartæki. Farsímann vant-
ar enn, en við vonumst til að
úr því rætist mjög fljótlega.
-Breytir tilkoma bílsins
miklu fyrir sveitina?
Óshlíö:
Harður árekstur
,,Já það gerir hann. Allur
viðhaldsskostnaður verður
miklu minni en á gamla bílnum
sem var orðinn 15 ára gamall
og þá er hann miklu hentugri í
okkar starfi. Við höfum gert
nokkuð af því að sækja fólk í
hús t.d. þegar þurft hefur að
rýmahúsíHnífsdal vegnasnjó-
flóðahættu og þá hefur oft
verið erfitt að komast til og
frá. A nýja bílnum eigum við
að komast nánast hvert sem
er. Þá vorum við með Ós-
hlíðina í huga þegar spilið
keypt. Nú eigum við að vera í
stakk búnir til að draga upp
bíla og sjúklinga ef á þarf að
halda.”
Bifreiðin er eins og áður
sagði af Nissan Patrol gerð og
er hún keypt af Bílaleigunni
Ernir á Isafirði, umboðsaðila
Ingvars Helgasonar hf. í
Reykjavík. Fullbúin kostaði
hún til björgunarsveitarinnar
2,6 milljónir króna og sagði
Magnús hana ekki að fullu
HARÐUR árekstur varð á
Óshlíð skömmu eftir mið-
nætti aðfararnótt síðast-
liðins laugardags og hafnaði
annar bíllinn utan vegar eftir
áreksturinn.
Ökumenn bílanna voru einir
í bílunum og sluppu þeir með
smáskrámur. Annar bíllinn er
talinn gjörónýtur eftir árekst-
urinn, og hinn er mikið
skemmdur.
-s.
Nokkrir félagar í Tindum
raða sér upp við nýja bílinn
í tilefni dagsins. Aftari röð
frá vinstri: Páll Hólm, Unnar
Astþórsson, Guðmundur
Páll Óskarsson, Örn Óli
Andrésson og Sævar Óli
Hjörvarsson. Fremri röð frá
vinstri: Helgi Hjartarson,
Róbert Friðbjarnarson,
Halldór Óli Hjálmarsson og
Ólafur Hjálmarsson.
greidda en vonaðist til að því
takmarki yrði náð á þessu ári.
Kaupin á bílnum hafa verið
fjármögnuð með kaffisölu
sveitarinnar auk þess sem flug-
eldasalá sveitarinnar hefur
gefið gott af sér og þá hefur
rekstur félagsheimilisins í
Hnífsdal gert sitt í fjármögn-
uninni. Til viðbótar þessu hafa
bæði fyrirtæki og einstaklingar
styrkt sveitina með fjárfram-
lögum. BB óskar félagsmönn-
um í Tindum til hamingju með
bílinn. -s.
Skotmálið á Flateyri:
Dæmdur í fjögurra mánaða
skilorðsbundiö fangelsi
Á MÁNUDAGINN var
kveðinn upp dómur í Hér-
aðsdómi Vestfjarða í skot-
málinu svokallaða á Flat-
eyri. Ákærði var dæmdur
í fjögra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi.
Ákæran á hendur ákærða
var í tveimur liðum. Annars
vegar var hann kærður fyrir
hassneyslu og hins vegar
fyrir að hafa skotið af hagla-
byssu á tvo menn og með
því stofnað lífi þeirra og
heilsu í augljósan háska.
Ákærði vardæmdurískil-
orðsbundið fangelsi í fjóra
mánuði og fellur refsing
niður haldi hann almcnnt
skilorð næstu tvö árin. Þá
voru tvær haglabyssur á-
kærða gerðar upptækar.
I dómsúrskurði er tekið
tillit til þess að ákærði var
með hreint sakavottorð fyrir
brotið.
Það var Jónas Jóhanns-
son héraðsdómari Vest-
fjarða sem kvað upp dóm-
inn. -hj.
IÖRGUNAR
SVEITIN
í leiðara 29. janúar 1992 gerðum við fórréttindin í þjóðfélaginu
að umtalsefni að gefnu tilcfni.
„Gjörningurinn þegar Sameinaðir verktakar létu 90Ö mílljónir
fljúga út og inn uni götótt skattakerfi til þess ein§ að losna við
skyldur samfélagsins, undírstrikaði rækilega óréttlætið í skatta-
málum. sem ríkt hefur áratugum saman. Höfundar skattalaganna,
sem bera öðrum fremur ábyrgð á þessu „siðlausa en löglega”
athæfi, standa berstrípaðir á torgi siógæðisins og fá ekki skýlt nekt
sinni.”
Á götóttu, ranglátu og siðspillandi skattakerfi bera þíngmenn og
ríkisstjómir undanfarinna ára og áratuga fulla ábyrgð. Þar er
enginn undanskilinn. Vandlæting surnra þingmanna yfir atferli
verktakanna varsýndarmennskaaf sama toga og tilburðirþein-a til
lagfæringa á skattakerfinu í stjómarandstöóu. tilburóir sem jafnan
fuku út í veður og vind með stjómarsetu og ráðherrastólum.
„En forréttindi má finna á tJeiri stöðum en í skattakerfinu.
I3annig er gífurlegur munur á aðstöðu manna þegar þeir komast á
eftirlaunaaldur. Húrrahrópín verða ekki mörg yfir rénindum verka-
mannsins eða gangastúlkunnar á sjúkrahúsinu. Það verða há-
værari meðal margra annarra stétta aó ekki sé rninnst á eftirlaun
þingmanna og ráðherra, sem margir hverjir fara fyrst að þéna
eitth vað að ráði þegar þeir komast á þau margfóldu cftirlaun scm
„kerfið þcirra” býr þeim.”
Lífeyrisréttindi foiTéttindastéttanna eru á dagskrá. Fyrrum þing-
maður, ráóherra og: bankastjóri, í einni persónu, fær allt að
tuttugufaldan ltfeyri verkamanns til framfærslu í ellinni. Og þessí
ágæti maður þarf ekki að loknu dagsverki að hafa áhyggjur af því.
hvort sjóðurinn hans eigi fyrir eftirlaununum eða ekki. Ríkíð sér
unt sína. Ríkið borgar.
Og nú hefur enn einni aóalmannastéttinni skotið upp á for-
réttindahimininn: Leiðtogum Samvinnuhreyfingarinnar.
Leiðtogum sem Samvinnuhreyfingin á íslandi fól forsjá sína.
Leiðtogum hreyfingarinnar, sem stofnuð var á Ystafelli í Köldu-
kinn fyrir níutíu árum, sem fræðslusamband, og varð i áranna rás
aó einum mesta risa í athafnasögu þjóðarinnar, en endaði sem
skúffufyrirtæki í ofvöxnu mínnismerki við Kirkjusand í Reykjavík,
eftir háeff brotabrotin, sem það hafði verið kurlað niður í, höfðu
meira og rninna horfið í vörslu lánardrottna.
Leiðtogar Samvinnuhreyfingarinnar gefa hinum stjórunum ekkert
eftir nema síður sé. Eftírlaun toppanna nema litlum fimnt til sex
milljónum á ári. Samkvæmt útreikningi nema skuldbindingar Líf-
eyrissjóðs og Sambandsins rúmum átta hundruð milljónum vegna
tuttugu manna, þar af beint úr sjóðum Sambandsins um 540
milijónum!
Og fyrir þessu lítilræði þurftu forustumenn samvinnuhug-
sjónarinnar á íslandi að strita í heil fimmtán ár! Berum það saman
við venjulega launþega, sem þurfa að streöa fyrir brauómolunum
sínum frá unglingsárum til elli.
Hvaða ályktanir skyldu leiðtogar bændasamtaka, sem með
stolti litu á Sambandið sem flaggskip sitt, draga þessa dagana?
Hvað skyIdi kotbóndinn. sem á undanfömum árum hefur orðið að
skerðá lífsafkomu sína rneð níðurskurði á bústofni hugsa? Varla
er honum hlátur í huga.
Þegár ekið er um Köldukinn fer ekki hjá því að steinsúla mikíl
við bæinn Ystafell veki athygli vegfarenda. Þetta minnismerki um
stofnun Sanibands íslenskra samvinnufélaga.
Minnismerkið á Ystafclli mun láta á sjá eins og önnur mannanna
verk. Tímans tönn sér fyrir því. En hvað sem því líður mun
steinsúlan um áraraðir verða minnisvarði um þær hugsjónir sem
frumkvöðlar samvinnuhreyfingarinnar ólu meó sér.
Það er aftur á rnóti næsta víst að eftirlaunastallurinn senr
leiðtogamir hafa sett sjálfa sig á verður brothættari.
s.h.