Bæjarins besta - 29.09.1993, Síða 10
10
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 29. september 1993
Halldór
Jónatans
SPAUGARI síðustu viku,
Sölvi R. Sólbergsson, deildar-
tæknifræðingur hjá Orkubúi
Vestfjarða á ísaflrði skor-
aði á Halldór Jónatansson
verkstjóra innanbæjarkerfis
Orkubús Vestfjarða í Bol-
ungarvík að koma með
næstu sögu og hér kemur
framlag hans:
Það var áhugasamur lax-
veióimaður sem ákvað að
bregða sér í laxveiði kvöld
eitt í september. Ain var að
vísu í einkaeign en honum
fannst það nú ekki koma að
sök þar sem orðið var hálf-
dimnit og það sæi nú hvort eð
er enginn hvað hann væri að
bauka. Hann stendur hinn
ánægðasti á bakkanum og sér
þá skyndilega hvar landeig-
andinn er kominn hinu meginn
á bakkann, svo hann sér þann
kost vænstan að flýta sér í
burtu og það ekki seinna en
strax. Hleypur hann sem mest
hann má meðfram bakkanum
og sér þá hvar landeigandinn
hleypur líka af stað. Etja þeir
kapphlaup þarna sitt hvoru
meginn við bakkann og hlaupa
báðir sem mest þeir eiga.
„Hann skal nú ekki ná mér
núna helvískur,” hugsar veiði-
maóurinn með sér. Hann nær
að kornast undan eigandanum,
upp á veg og drífur sig heim.
Hann er nú aldeilis feginn að
hafa sloppið í þetta skiptið, ja
og þau fyrri líka því þetta var
nú hans helsta sport aó veiða
án veiðileyfis.
í vinnunni daginn eftir hittir
hann vin sinn og veiðifélaga
og segir honum farir sínar ekki
sléttar kvöldið áður og spyr
hvort vinurinn hafi ekki farió
í veiði líka. Jú, hann hafði nú
reyndar gert það og hafði
svipaða sögu að segja. Höfðu
þeir þá verið þarna báðir fél-
agarnir á sama tíma og hlaupið
eins og skrattinn sjálfur væri á
hælunum á þeim sitt hvoru
meginn á bakkanum. Land-
eigandinn mun hafa verið í
fastasvefni og fjarri góðu
gamni það kvöldið.
Eg varpa núna boltanum til
ísafjarðar og skora á Sigur-
laug Baldursson vörubílstjóra
að koma með nœstu sögu.
ísafjörðtrr:
Áhöfnin á Guðbjarti
æl'öi björgun úr sjó
í síðustu landlegu áhafnarinnar á skuttogaranum
Guðbjarti tók hún sig til og æfði björgun úr sjó. Var
þetta gert til að viðnalda kunnáttu skipveria og fór
æfingin fram við sfðu Guðbjartar þar sem nann lá í
ísafjarðarhöfn. Var áhöfnin ánægð með hvemig til
tókst er Ijósmyndari blaðsins leit við rétt í þann mund
er æfingunni íauk.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á æftngunni og sýnir
önnur þetrra hluta áhafnarinnar við að hvolfa gúmmí-
björgunarbát og hin sýnir þann hluta áhafnarinnar scm
var uppi á dekkt. F.v. Gréuir Þórðarson, skipslióri, Sigþór
Sigurðsson, Stefín Reynir Kristjánsson, Miguel Rodríguez
og Ingvar Antonsson.
Bolungarvík:
Dagrún með 35 tonn
efitir fjóra daga
Dagrún IS landaði í Bolungarvík í gær 35 tonnum af
blönduðum afla og var þetta í annað skiptið á §órum
dögum sem skipið kemur inn til löndunar, en skipið var
einnig í landi a föstudaginn um kom þá með 40 tonn af
þorski auk þess sem sett var í einn gám.
Heiðrún landaði einnig í gærdag 25 tonnum afblönduðum
afla og Flosi landaði 15 tonnum af rækju. I síðustu viku
komu tvö loðnuskip til Bolungarvíkur. Sighvatur Bjarnason
VE landaði 437 lestum og Kap VE landaði 633 lestum. Tólf
færabátar voru á sjó frá Bolungarvík í síðustu viku og fengu
samtals 5,6 tonn. Aflahæstur var Tóti með 1,2 tonn t einum
róðri. Þrír netabátar fóru einnig á sjó í vikunni og fengu þeir
2,6 tonn í átta róðrum. Aflahæstur var Sigurgeir Sigurðsson
með 1,2 tonn í fjórum róðrum. Ellefu línubátar fengu 16
tonn í síðustu viku og var Snorri afi aflahæstur með 3,9 tonn
í þremur róðrum. Þá voru fjórir dragnótabátar á sjó og
fengu 5,2 tonn í níu róðrum. Aflahæstur var Jakob Valgeir
með 2,4 tonn í þremur róðrum.
Súðavík:
Góður rækjuafli
Góður rækjuafli hefúr borist á land í Súðavík að
undanfömu. Á fimmtudag í síðustu viku kom Haffari
með 44 tonn og á laugardag kom Orrinn með 37 tonn
af rækju.
Á mánudag kom síðan Kofri með 38 tonn af rækju og
sama dag kom skuttogarinn Bessi að landí með 35 tonn
af blönduðum afla eftir rúmlega fimm sólarhringa úti-
veru. Virðist sem afli togaranna hafi farið ört minnkandi
að undanförnu eftir skotið um miðjan mánuðinn.
ísafjörður:
Pólsvogir um
borð í Blæng
Á sjávarútvegssýningunni
sem lauk í Reykjavík fyrir
stuttu, staðfestu fúlltrúar
Póls-rafeindavara hf. á Isa-
firði og Síldarvinnslunnar
á Neskaupstað, samning um
kaup Síldarvinnslunnar á
fimm vogum frá Póls í
rækjuvinnslulínu í hinn
nýja togara sinn Blæng NK.
I vinnslulínunni verða
þrjár flokkunarvélar og sem
fefa 25 tonna sólarhringsaf-
öst, sem er með því afkasta-
mesta sem gerist um borð í
íslensku skipi. Hluti Póls í
línunni er eins og áður sagði
fimm vogir til vigtunar og
skömmtunar í pakkningar
ásamt hugbúnaði til eftirfits.
Á sjávarútvegssýningunni
sýndi Póls-rafeinaavörur hf.
einnig nýjan formflokkara,
sem vakið nefúr mikla athygli
sem og samvalslínu, sem
hentar vel til vinnslu í smá-
pakkningar.
fsafjörður;
Hrannar-
menn hand-
sala pöntun
Það voru fleiri en Póls-
rafeindavörur hf., sem
gerðu samninga á sjávarút-
vegssýningunni. Rafboði-
Rafur hf., í Garðabæ gerði
samning um sölu á tog-
vindukerfi í togarann Víði
frá Akureyri og er kerfið
hliðstætt pví sem sett var
upp í Skutíi ÍS-180.
„Síðan er búið að hand-
sala við okkur pöntun á
öllum mótorum og stjórn-
búnaði fyrir togvindur og
hjálparvindur fyrir nýsmíð-
ina fýrir Hrönn h£, á ísa-
firði, sem nú gerir Guð-
björgina út. Þetta hvort
tveggja er liðugar hundrað
miljjonir og vinna fyrir verk-
stæði okkar fram á næsta ár
og því mikilvægt fyrir okk-
ur/ sagði Ásgeir Erling
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins í samtali
við Verið, sjávarútvegsblað
Morgunblaðsins.
Ásgeir Erling er ísfirð-
ingum að góðu kunnur en
hann var meðal annars
framkvæmdastjóri Pólstækni
hfi, um árabil.
Þingeyri:
Framnesið
með 68 tonn
Framnesið frá Þingeyri
kom til heimahafnar sinnar
á föstudag með 68 tonn af
þorski eftir viku útiveru.
Dragnótabátar staðarins
fóru í prjár ferðir í vikunni
og var neildaraflinn 5,4
tonn. Aflahæstur var Mýrar-
fell með 2,8 tonn í einni sjó-
ferð. Aðeins einn handfæra-
bátur fór á sjó frá Þingeyri í
síðustu viku, Stígancfi sem
fékk 250 kg., í einni sjóferð.
Sléttanesið er enn úti af
Reykjanesi, þar sem skip-
verjar reyna að ná sem mestu
af karfa og grálúðu.
ísagörður:
Júlíus með 35 milljón
króna aflaverðmæti
Frystitogarinn Júlíus Geirmundsson kom til ísafjarðar
á fimmtudag í síðustu viku með um 300 tonn upp úr sjó að
verðmæti um 35 milljónir króna.
Á laugardaginn kom síðan rækjutogarinn Skutull með
140 tonn afrækju, en hann mun hafa farið á sjó síðastliðna
nótt eftir viðgerðir á skut en eins og kemur fram annar
staðar hér í blaðinu, sigldi Arnarfelhð á Skutul á laugar-
daginn og olli á því nokkrum skemmdum. Á laugardag
landaði einnig Hersir, 30 tonnum af rækju.
Á mánudag landaði síðan Guðmundur Péturs 25 tonnum
af rækju og 2 tonnum af fiski, Hafberg kom með 30 tonn af
rækju, PálIPálsson kom með 90 tonn, mestmegnis þorsk og
Guðbjartur landaði 60 tonnum af þorski. I gær lönduðu svo
Stefmr 37 tonnum og Auðunn 25 tonnum en hann er
gerður út á línu.
ATVINNA
Óskum eftir harðduglegum og
jákvæðum starfskrafti til að annast sölu
ogkynningarávandaðriíslenskrimatvöru
í verslunum, mötuneytum og víðar.
Laun samkvæmt afköstum.
Upplýsingar í síma 91-674433.
Til sölu - Skipagata 8
Tilboð óskastí Skipagötu 8, ísafirði, sem er
240 m2 raðhús m. bílskúr, suðursvölum og
rœktaðri lóð.
Uppiýsingar gefa Valgerður og Haukur í
síma 3583.