Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.12.1993, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 29.12.1993, Blaðsíða 1
OHAÐ FRÉTTABLAÐ / A VESTFJÖRÐUM AÐILIAÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 19931 52. TBL. • 10. ÁRG Verð kr. 170,- með virðisaukaskatti ísafjöröur: Starfsfólk FSÍ vill Bónus - sjá baksíðu BB - viötal: Börn hins rauða ísafjarðar - sjá bls. 6, 7, 8 og 9 Æskuminning: Húsið góða - sjá bls. 5 Skíði: Stefni hátt á Ólympíu- leikunum - sjá bls. 2 ísafjöröur: Hékk á lýginni - sjá baksíðu FLUGLEIDIR - SOLUSKRIFSTOFA - MJALLARGÖTU1 • ÍSAFIRÐI OPIÐ KL. 09-12 OGKL. 13-17 Fjölritunarþjónusta - stórt og smátt - ódýrt H-PRENT HF. SÍMI 4560 Rafn Svansson skipstjóri á Skutli fær sér hér sneið af tertunni góðu að afloknu góðu ársverki. Hluti áhafnarinnar stendur fyrir aftan Rafn en til hliðar við hann er framkvæmdastjórinn Magnús Reynir Guðmundsson. Skvtull kom með 300 millión krónn oflaverðmæli nð Inndi - útgerðin bauð til veislu er áhöfnin kom í jólafrí RÆKJUTOGARINN Skutull ÍS frá ísafirði kom úr sinni siðustu veiðiferð á þessu ári 21. desember síðastliðinn. Er skipið hafði lagst að bryggju um klukkan átta um morguninn, hélt framkvæmdastjóri útgerðarinnar Magnús Reynir Guð- mundsson, áhöfninni smá veislu en tilefnið var að markmiði útgerðarinnar um 300 milljóna króna aflaverðmæti á árinu, hafði verið náð. „Við settum okkar þetta marknnð í haust og það náðist núna fyrir jólin. Það er erfitt að segja endanlega til um afla- verðmætið en það er í kringum 301 milljón krónur. Þetta er mjög góður árangur. Það getur verið að einhver rækjuskip sem hafa verið á fjarlægum miðum séu með meira aflaverðmæti en þetta er mjög góður árangur. Þetta er helmingi meira afla- verðmæti en árið á undan þó svo að það sé ekki alveg mark- tækt,” sagði Magnús Reynir. Skutull fiskaði 1.240 tonn af rækju á hefðbundnum mið- umviðíslandáárinu, 183tonn komu af Dohmbankanum og 119 tonn komu af Flæmska hattinum svokallaða. Samtals gera þetta um 1.540 tonn af rækju á árinu. Hásetahlutur á Skutli á árinu 1993, miðað við að sami maður hafi verið á skipinu allt árið, er 4.660 þúsund en þess skal getið að enginn skipverji var allt árið á skipinu enda túramir a.m.k. þriggja vikna langir. Skipstjórar á Skutli eru þeir Rafn Svanssonog Om Stefáns- son og var Rafn við stjóm- völinn er skipið kom að landi fyrir jólin. Þá kom skipið með 50 tonn eftir viku útivem og aflaverðmætið var um átta milljónir króna. „Til hamingju með 300 milljónirnar og gleðileg jól” stóð á tertunni sem áhöfnin gæddi sér á að morgni þriðjudagsins 21. desember síðastliðinn. Langadalsá kvikmynduð: Baldurssonar kvikniyndagerðarmanns er þessa dagana að ljúka víð gerð niyndar um Langadalsá í ísafjarðardjúpi en áin hefur uni árabil verið eins vinsælasta og gjöfuiasta á Vcstfirðinga auk Laugardalsár. ,,Það var hann Dúi (Steinþór Friðriksson) sem kom mcð hugmyndina að þessari mynd. Hann átti þrjá daga í ánni, frá l.-4.september síðastliðinn og þá daga l'óru tökur fram. Þetta erekki heimildarmyndum ána sjálfa heldur lýsír hún veíðiferð nokkurra félaga. Viðbyrjuðum á því að aka eftir ánni cn hún er svo löng og veiðistaðimir nutrgír aö það var illmögulegt að taka alla veiðistaðina inn í myndina. Aðcins voru teknir þeir staðir þar sem ftskaðist og þeir voru nokkuð margir. Veiðifélagamirfengu 131axaí túrnum og sýnir myndin við- ureignír vciðimannanna við nokkra þeirra. M>ndin verður til sölu, bæði hjá mér og hjá Dúa og mun hún kosta um 2.000 krónur. Hún er 50 mín- útur að lengd og heitír „Langa- dalsá á haustdögum 1993". Veður til myndatöku var eins og þest verður á kosið og því er hér um skemmtilega mynd fyrir Veíðimennáð ræða,” sagði Fjölnir. Fjölnir hefur nýlokið við gerö heímildarmyndar um Póls-rafeindavörur hf. á Isa- firði auk þess sem sagt hefur verið frá því hér í blaðinu, er hann kynnti myid sína um skyr og skyrgerð. Ymislegt fleira er á döfinni hjá þessum unga kvikmyndagerðarmanni og bíða eflaust margir veiðimenn eftír fleiri myndum af vest- firskum ám frá Fjölni, Dúa og félögum. ísafjörður: RITSTJÓRN S 4560 • FAX ® 4564 - AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT ”ZT 4570

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.