Bæjarins besta


Bæjarins besta - 29.12.1993, Síða 2

Bæjarins besta - 29.12.1993, Síða 2
2 EÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 29. desember 1993 Ásta S. Halldórsdóttir skíðadrottning: , Stefni háHá Óiympíuieikunum ÁSTA S. Halldórsdóttir skíðakona frá Bolungarvík er fyrir löngu orðin landsfræg fyrir afrek sín á sviði svigskíðaíþróttarinnar en hún er í íslenska skíðalandsliðinu sem keppa mun á Ólympíuleikunum í Lillehammer í Noregi í febrúar næstkomandi. Ásta er stödd í Bolungarvík þessa dagana, hún hyggst hafa hér tíu daga viðd völ yfír jólin til að safna orku fyrir átökin framundan, eins og hún komst sjálf að orði. Blaðamaður BB átti stutt spjall við hana er hún var við útréttingar á ísafirði síðastliðinn mánudaginn og rakti hún þá það helsta sem hún hefur haft fyrir stafni undanfarið ár en það eina sem frést hefur af henni í vetur, er að reglulega birtast örstutt fréttaskot í dagblöðunum þess efnis að Ásta hafí enn og aftur náð stórkostlegum árangri. „Ég hef nú verið að vasast í ýmsu þetta árið. I fyrrasumar var ég nær einungis við þrek- æfmgar, lyftingar og hlaup hér á Isafirði. Ég fór líka tvær skemmtilegar skíðaferðir á Snæfellsjökul en ég hefði nú viljað fara oftar. Svo hélt ég aftur utan til Svíþjóðar í haust, þar sem ég hélt áfram námi mínu við háskólann í Oster- sund. Meðal annars fór ég í þriggja vikna skíðaferð ásamt skóla- félögum mínum á jökul í Noregi sem heitir Juvas. En frá og með 10. nóvember var kominn nægur snjór fyrir okkur til að stunda skíða- iðkunina í grennd við skólann, þ.e.a.s. í 120 kílómetra fjar- lægð frá Ostersund. Stundum förum við jafnvel enn lengra, því það er ágætis skíðastaður um 30 kílómetrum utar við þann fyrri. Þannig er, að þegar rútan ekur okkur kvölds og morgna á skíði, þá notum við tímann og sofum í henni - bæði vegna þess að maður er svo syfjaður á morgnanna og svo segir þreytan fljótt til sín eftir æfingamar þegar komið er fram á kvöld. Þama er um daglegar ferðir að ræða en hver nemandi æfir ekki oftar en þrjá til fjóra daga í viku til þess að komast yfir bóklegt námsefni afgang vik- unnar. Svo reynir maður að æfa lyftingar eða að komast á skíði um helgar í staðinn fyrir þann tíma sem tapast við bóka- lesturinn.” - Hvemig færðu daginn til að ganga upp hjá þér, mér heyrist þú eingöngu vera á skíðum eða við bókalestur? „Já, bóknámið hefur ekkert gengið of vel - en gengur samt. Þegar skíðaæfingunum er lok- ið, þá bíða skólabækumar eftir manni á skrifborðinu ákvöldin. Ég er 1 svokölluðum „frjáls- um áföngum”. Það þýðir að ég ræð magni námsefnisins og hversu hröð yfirferðin er. Skólinn hefur aðallega sérhæft sig í viðskiptafræðum en alls er í honum um 4000nemendur, þar af em um 900 nýir. Þrátt fyrir smæð sína er hann alveg sambærilegur Háskóla Is- lands.” Ég á mikið eftir - Samtímis því að æfa sam- fellt og stunda heimalær- dóminn, hefur þú verið iðin við skíðamótin í haust, hvaða mót er þama um að ræða? „Jú, ég hef hef haft töluvert að gera við skíðamót, það em Evrópubikarmótin. Ég tók þátt í fjómm sameiginlegum mót- um í Noregi í nóvember þar sem ég náði þriðja sæti í stór- svigi og sjöunda sæti í risa- stórsvigi. Svo tók ég þátt í fjórum rnóturn í Spindleruv í Tékklandi, þar náði ég ellefta sæti í svigi og svo keppti ég í St. Sebastian í Austurríki þar sem ég náði sjötta sæti, einnig í svigi.” - Um síðustu mánaðamót varðst þú í öðm sæti á svig- móti í Kimna í Svíþjóð og í haust gat reglulega að líta fréttir af stórkostlegum árangri þínum í bloðunum, þar sem því var m.a. slegið upp að þú værir í þínu besta formi til þessa - hvert er þitt eigið álit? , ,Maður er náttúmlega aldrei fullkomlega ánægður. En því er ekki að neita að mér hefur gengið alveg rosalega vel það sem af er þessa vetrar. Reyndar hefur mér gengið rnikið betur heldur en undanfama tvo vetur. Ég náði góðurn árangangri á FIS mótinu á Isafirði í vor, þar að auki varð breytt skíðatækni í fyrravetur mér mjög til góða og fyrir vikið mætti ég sterkari til leiks í vetur. En ég veit sjálf að ég get gert mikið betur, ég á mikið eftir - ég trúi því allavega.” Mikill munur að hafa sjukraþjalfa - Stóra stundin rennur upp í febrúar, þe^ar þú öðm sinni tekur þátt í Olympíuleikum en í þetta sinn ertu í enn betra formi. Hvemig hefurðu hagað æfingum? „Æfingamar hafa í raun staðið yfir í tvö ár og þjálfunin byggist á fjölda smáatriða. Auk skólaæfinganna hef ég keppt töluvert í vetur og á enn nokkur mót eftir fram að Olympíu- leikunum. Ég tek þátt í fjómm mótum á Spáni sem hefjast 8. janúar næstkomandi. Því næst tek ég þátt í tveimur mótum í Sviss og framhaldið er svo að mestu óráðið en það er þó ljóst, að undir lok janúarmánaðar tek ég mér einhvers konar ,Jtvíldar” viku í Svíþjóð fyrir Olympíuleikana sem hefjast 12. febrúar.” - Nú hefur Sigurveig Gunnarsdóttir sjúkraþjálfi við Fjórðungssjúkrahúsið á Isa- firði verið valin sjúkraþjálfi í Olympíuför ykkar. Það er ekki nóg með að hún sé fyrsti sjúkraþjálfinn með íslensku skíðalandsliði á Olympíu- leikum, heldur er hún að auki ísfirsk og stómm hluta lands- liðsins vel kunn. „Já, þaö er mjög gott aðhafa einhvem með í ferðinni sem við þekkjum mjög vel og það var mjög jákvætt framtak hjá íslensku Olympíunefndinni aó leyfa keppendunum sjálfum að velja sér sjúkraþjálfa og hún mun verða okkur til núkillar hjálpar. Ég tognaði til dæmis á ökkla á síðustu Olympíuleikum í Al- bertville í Frakklandi og ég gat með engu móti skilið frönsku- mælandi sjúkraþjálfana og þá var það enskukunnátta fara- stjórans sembjargaði mér.” - Ef þú lítur um öxl, yfir árið 1993 sem nú er brátt liðið á enda, hvað er þaó þá sem stendur upp úr? „Þegar ég kom heim síðast- liðið vor, þá veitti það mér mikla ánægju að sjá hvað ég hafði bætt mig mikið yfir veturinn. Stærstu stundimar hjá mér voru að ná ellefta sætinu í Tékklandi og svo sjötta sætinu á því næsta sem haldið var í Austurríki. Svo ekki sé nú minnst á það að sigra FIS mótið héma á Isafirði síðast- liðinn vetur með sex sekúndna mun.” - Asta, ein spurning að lokum; hvert er takmark þitt í Lillehammer í febrúar? „Ég set markið á fimmtánda sætið en rnyndi al veg sætta mig við hvað sem er undir tutt- ugasta sætinu,” sagði Asta Halldórsdóttir. -hþ.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.