Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 2

Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 2
2 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 Ritstjórnargrein Þær eru svo litlar og heimskar Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740 Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560 Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir. Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is Prentvinnsla: Litróf ehf. Upplag: 2.200 eintök Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll heimili á norðanverðum Vestfjörðum Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði ISSN 1670-021X Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. „Konur eru svo litlar og heimskar, auðvitað eiga þær ekki að fá sömu laun og karlmenn“ sagði þingmaður í bandaríska þinginu, bara í síðustu viku, ekki í byrjun síðustu aldar. Konur geta ekki trommað og fá tónlistarverðlaun bara af því þær eru konur sagði ungur maður í íslenska útvarpinu í vikunni. „Það er ekkert launamisrétti milli kynja“ segir dómsmálaráðherra og stöku þingmenn klappa í kórnum, gætu rétt eins verið að staðfesta skoðun ráðherrans á að jörðin væri flöt. Við getum ferðast bæði í tíma og rúmi og hvarvetna fengið staðfest að jafnrétti hefur ekki náðst og áfram þarf að berjast. Það er launa- misrétti, það eru færri konur í stjórnmálum, það eru eiginlega engar konur að stjórna stórfyrirtækjum og enn bera konur mesta ábyrgð á rekstri heimilis, um þetta þarf ekki að þræta. Það eru núna hundrað ár síðan konur í Pétursborg fóru í verkfall 8. mars til að krefjast betri kjara og friðar og þrátt fyrir mikla mótspyrnu pólitískra afla héldu konurnar sínu striki. Fjórum dögum síðar sagði keisarinn af sér og bráðabirgðastjórn veitti konum kosningarétt. Fjór- um árum síðar eða árið 1921 ákvað Alþjóðasamband kommúnista að samþykkja tillögu Clöru Zetkin að 8. mars yrði baráttudagur kvenna, að Hitler skyldi síðan breyta þeim degi í alþjóðlegan mæðradag er ákaflega táknrænt en upphafning móðurhlutverksins er áhrifaríkt kúgunarverkfæri. Taktu pláss, til tilbreytingar eru slagorð alþjóðabaráttudags kvenna árið 2017 en dagurinn er haldinn hátíðlegur 8. mars ár hvert. Og hér á Bæjarins besta var þetta tekið bókstaflega því í stað lítilfjörlegs áttblöðungs kemur nú spikfeitt blað og það er fullt af konum, af konum í atvinnurekstri. Og við komumst bara í tæri við lítinn hluta þeirra kjarnakvenna sem reka sín eigin fyrirtæki hér á svæðinu. Blaðið er stútfullt af fyrirmyndum, af sögum af konum sem þora og það er ekki bara í íþróttum sem þörf er á fyrirmyndum. Framlag kvenna til atvinnulífs er oft falið, fyrirtæki þeirra eru oft lítil, eins og reyndar langstærstur hluti íslensks atvinnulífs en þeim gengur almennt vel. Kærar þakkir konur fyrir að bregðast vel við óskum okkar um greinar. Við þurfum að ganga saman, upphefja bæði móður- og föðurhlut- verk og taka sameiginlega ábyrgð á að fæða og klæða. Auðlindir okkar felst ekki bara í jarðhita og fallvötnum, hún felst í okkur sjálfum, orkunni í hverjum einstaklingi. BS Á dögunum opnaði Fjóla Bjarnadóttir í Bolungarvík heimasíðuna www.adstandandi. is. Það verkefni þróaðist út frá framhaldsnámi hennar í hjúkr- unarfræði. Fjóla hafði lokið diplomanámi í stjórnun innan heilbrigðisþjónustu en það snýst mikið um peningahliðina á kerf- inu. Það var svo í meistaranámi við Heilbrigðisvísindasvið HA í öldrunarfræðum sem Fjóla fékk mikinn áhuga á aðstandendum og samskiptum þeirra við heil- brigðisstarfsfólk, einnig sam- skiptum á milli aðstandanda og ástvina þeirra sem eru að missa heilsuna, þurfa aukna aðstoð, heimahjúkrun, leggjast inn á hjúkrunarheimili o.s frv. Því varð úr að gera heimasíðu sem yrði miðlæg fyrir aðstand- endur aldraðra, en síðan er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða. Síðan geymir upplýsingar tengdar því er nákominn einstakl- ingur þarf á aðstoð að halda, það getur reynst erfitt að vita hvert á að hafa samband. Þetta geta verið fyrirspurnir um allskyns kvilla, til dæmis að nálgast göngugrind, hjólastól, heimahjúkrun, lyfjatil- tekt og margar upplýsingar sem er erfitt að leita eftir þegar þú veist ekki hvert á að leita. Þessi þjónusta er í boði fyrir aldraða á Íslandi, en upplýs- ingarnar eru í dag á tugum eða hundruðum staða víðsvegar um netið, það getur reynst mikið torf að komast í gegnum þann frum- skóg. Samkvæmt niðurstöðu úr þarfagreiningu sem Fjóla vann í meistaranáminu er mikil þörf meðal aðstandenda á upplýsinga- gjöf sem þessari. Fjöldi aldraðra og aðstand- endur þeirra hefur fjölgað mikið undanfarin ár og áratug og fyrir- séð að þessi hópur muni stækka mikið á næstu árum í takt við breytta aldursdreifingu þjóðar- innar. Mikil tækifæri liggja því í að bjóða upp á slíka upplýs- ingagjöf og sterk fyrirtæki eru að bjóða þjónustu á þessum markaði. Nú hefur hið endanlega mark- mið náðst, þ.e að opna fullbúinn upplýsingavef fyrir aðstandendur aldraða Íslendinga. Aðstandandi, verkefni sem hefur það markmið að auka lífsgæði aldraðra Einarhúsið í Bolungarvík Þær Fjóla Bjarna og Anna Björg Petersen eiga og reka ásamt mönnum sínum, þeim Benedikt Sigurðssyni og Magn- úsi Pálma Örnólfssyni Einars- húsið í Bolungarvík og Litla Gistihúsið á Ísafirði. „Mikil aukning er í ferðamannaiðnaðin- um og í raun er hann rétt að byrja hérna hjá okkur“ segir Fjóla og henni finnst þetta skemmtilegt verkefni og krefjandi. Einarshúsið á sér mikla sögu, þar er rekinn matsölustaður þar sem lagt er upp úr fersku fiskmeti beint úr faðmi hafsins og gisting sem hefur mikið aðdráttarafl á ferðamenn. Sögusýning er í hús- inu ásamt merkilegum munum sem gaman er að skoða. Húsið á sér langa sögu harma og hamingju. Eftir að hafa nánast grotnað niður í svaðið hefur það verið endurgert og er í dag rekið sem gisti- og veitingahús, sem stendur við smábátabryggjuna á besta stað í bænum, þetta er stór- merkilegt hús með mikla sögu. Það var byggt 1904 af miklum athafnamanni, Pétri Oddssyni og konu hans, Guðnýju. Pétur átti, vægast sagt, öm- urlega ævi í húsinu vegna þess að hann missti nánast alla fjöl- skyldu sína úr berklum. Á 23 ára tímabili fylgdi hann fjórtán líkum frá þessu húsi. En það hefur tví- skipta sögu harma og hamingju, því eftir lát Péturs, flytur Einar Guðfinnsson, sem flestum er af góðu kunnur í húsið með sína fjölskyldu, býr þar í um þrjátíu ár og á þar góða ævi. Ferðamönnum er sögð þessi saga, og þykir þeim mikið til koma. Yfir sumartímann er maður við mann í Einarshúsi og er mark- miðið að auka gegnumstreymið yfir vetrartímann. „Bolungarvík er svo falleg og mikið að sjá og skoða. Við höfum svo margt hérna upp á að bjóða. Mér finnst við ekki eiga að vera spéhrædd við að sýna það. Þegar ég fer erlendis finnst mér ekkert skemmtilegra en að sjá menningu hvers staðar fyrir sig. Því sé ég til dæmis laxeldið sem tækifæri í ferðaþjónustu. Þar væri jafnvel hægt að leyfa ferðamanninum að taka þátt, fóðra eldið, borða laxinn svo í Einarshúsi til dæmis“ segir Fjóla að lokum. Fjóla Bjarnadóttir. 8. mars Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.