Bæjarins besta - 08.03.2017, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Þegar þetta er ritað þá er 1.
mars árið 2017 en það er einmitt
afmælisdagur verslunarinnar Jón
og Gunnu og er verslunin 28
ára í dag. Það voru konur sem
stofnuðu verslunina í upphafi
og hefur hún alltaf verið rekin af
konum. Hér verður farið yfir sögu
verslunarinnar í nokkrum orðum.
Verslunin Jón og Gunna var
stofnuð 1. mars 1989 á Ísafirði af
fjórum konum, frumkvöðlunum
Svanlaugu Guðnadóttur og Ólöfu
(Lóu) Veturliðadóttur sem þá
áttu snyrtivöruverslunina Krismu
og þeim Svanhildi Þórðardóttur
og Herdísi Viggósdóttur sem
ráku barnafataverslunina Legg
og Skel. Ásta Svana Ingadóttir
og Anna Guðrún Sigurðardóttir
keyptu hlut frumkvöðlanna í
versluninni árið 1998. Sigríður
Jóna Sigurjónsdóttir keypti síð-
an helmingshlut í versluninni
þann 2. febrúar árið 2000 af
Ástu Svönu og rak hana með
Önnu Guðrúnu Sigurðardóttur til
ársins 2007 þegar Sigríður Jóna
festi kaup á öllum rekstrinum
og rak verslunina ein frá þeim
tíma til ársloka 2015, þegar
eigendaskipti urðu og núverandi
eigendur sem eru mæðgurnar
Gyða Björg Jónsdóttir og Dagný
Finnbjörnsdóttir.
Fyrstu árin var verslunin stað-
Á vordögum ætlar Guðrún
Hanna Óskarsdóttir að opna
lítið kaffihús að heimili sínu í
Neðri-Breiðadal í Önundarfirði,
að hennar sögn einum fallegasta
firði landsins. Á Kaffi Sól verður
boðið upp á þjóðlegar veitingar
eins og til dæmis hveitikökur
með hangikjöti, rúgbrauð með
reyktum rauðmaga, rjómapönnu-
kökur og ýmislegt fleira.
Kaffi Sól verður opið alla daga
frá kl. 11:00 – 18:00 frá 15. maí
til 1. október en eftir þann tíma
verður tekið á móti hópum eftir
pöntunum.
Neðri-Breiðadalur er vel í sveit
sett, stendur hátt undir Breiða-
dalsstiga, einu svipmesta fjalli
fjarðarins og með gríðarfallegt
útsýni yfir Önundarfjörð, eins
er bærinn nokkuð nálægt þjóð-
veginum og því ekki úrleiðis að
kíkja í kaffi og með‘í hjá Gunnu.
Jón og
Gunna
verslun
sett í útjaðri bæjarins, inni í Ljóni
(þar sem Betra bak er nú) en hefur
verið starfrækt í miðbæ Ísafjarðar
frá desember 2003.
Jón og Gunna verslun hefur
haft gott orðspor enda hafa
tryggir og ánægðir viðskiptavinir
í gegnum tíðina getað verslað í
heimabyggð vandaðan og vin-
sælan fatnað fyrir bæði dömur og
herra. Viðskiptavinir eru þó ekki
eingöngu af heimasvæði heldur
koma þeir frá öllum hornum
landsins auk þess sem erlendir
gestir sem dvalið hafa á svæðinu
hafa notið þess að versla vandaða
vöru og njóta góðrar þjónustu.
Einnig hefur fyrirtækið unnið sér
gott orðspor meðal birgja bæði
innanlands og erlendis.
Það má vel segja að Jón
og Gunna verslun sé rótgróið
kvennafyrirtæki í miðbæ Ísa-
fjarðar með góða viðskiptavild,
trygga viðskiptavini og tækifæri
til vaxtar m.a. með tilkomu
aukinnar vakningar fyrir versl-
un í heimabyggð og aukinnar
verslunar ferðamanna á svæðinu.
Gyða Björg Jónsdóttir og Dagný Finnbjörnsdóttir.
Kaffi Sól
Guðrún Hanna Óskarsdóttir.