Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Side 14

Bæjarins besta - 08.03.2017, Side 14
14 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 Ég og maðurinn minn, Ívar Kristjánsson, vorum búin að vera með þá hugmynd í nokkur ár að opna okkar eigið gistiheimili. Vorum búin að spyrjast fyrir um einhver hús en lítið um svör. Gerðar voru áætlanir en við þorðum ekki að ganga alla leið. Árið 2014 voru ákveðin tíma- mót í lífi mínu er ég greindist með krabbamein og gekkst undir allar þær meðferðir sem því fylgir. Eftir að að hafa klárað það stóra verkefni með hjálp alls þess frábæra fólks sem ég hef í kringum mig var komið að því að finna sér eitthvað að gera og kannski ekki mikið um vinnu á Flateyri á þeim tíma. Við hjónin settumst niður við eldhúsborðið heima hjá okkur í Litlabýli og aftur kom þessi hugmynd um að opna gistiheimili. Ég með mínar brenndu og hálf vönkuðu heilasellur gerði kostnaðaráætlun og hóf leit að húsnæði, en til að byrja með gekk það nú ekki vel. En, að lokum fundum við hið fullkomna hús en þá var ekki hægt að fá leyfi fyrir að reka gistiheimili í því. Ég get alveg sagt að á þessum tímapunkti var ég alveg við það að hætta við þetta allt saman (enda var ferlið farið taka lengri tíma en sjálf krabbameinsmeðferðin). En þá kom sú frábæra hugmynd að við myndum gera Litlabýli (okkar hús) að gistiheimili og bara flytja okkur í annað hús. Ekki þurfti að breyta miklu enda nýbúið að taka mikið af Litlabýli í gegn, heldur bara að koma okkur út og gera klárt. Litlabyli Guesthouse var svo opnað í ágúst 2015 með fjórum uppábúnum herbergjum með morgunverði. Litlabyli er opið allt árið og alla daga ársins. Haustið var mjög rólegt og lítið um bókanir, en svo gerðist eitt- hvað þegar við vorum loksins komin með meðaleinkunn á þeim bókunarsíðum sem við erum á. Við reyndum að nota tímann meðan var rólegt og bæta við herbergi með sérbaðherbergi fyr- ir sumarið 2016. Sumarið 2016 gekk ótrúlega vel og við fengum tæplega 700 skemmtilega gesti sem skiluðu okkur frábærum umsögnum, sem dæmi erum við með einkunn uppá 9,3 á Booking, 5 af 5 á Tripadvisor og superhost á Airbnb eftir árið 2016. Árið 2017 lítur út fyrir að vera enn betra miðað við þær bókanir sem nú þegar eru komnar. Ásamt því að vera með gisti- heimilið tókum við líka að okkur tjaldsvæðið á Flateyri (bara svona til að hafa eitthvað að gera) og er það opið frá miðjum maí og fram í endaðan september ef veður leyfir. Einnig erum við með gistingu úti á Sæbóli á Ingjaldssandi undir nafninu Sæból Farm þar sem boðið er uppá gistingu yfir sumar Að þora að stíga skrefið mánuðina í einstakri afskekktri náttúru fjarri netsambandi og í litlu farsímasambandi. Ég er svo fegin að hafa loksins þorað með hjálp mannsins míns að taka þetta skref að láta gamlan draum rætast. Starfið mitt er ótrúlega fjölbreytt, gefandi og ekki síður lærdómsríkt að heyra frásagnir frá gestum um eitthvað sem manni finnst hversdagslegt en er þeim ómetanlegt og fallegt. Þannig lærir maður að meta allt það fallega sem við höfum í kringum okkur hvort sem það er landslag, veðrið eða fólkið. Ég hvet allar þær konur sem eru að veltast með eitthvað en láta ekki verða að því, hvað er það versta sem gæti gerst??? Jafnframt að búa sig undir að það koma örugglega einhver nei og gengur kannski ekki alveg eins og í sögu að komast af stað, bara ekki gefast upp. Kristín Pétursdóttir Litla byli Guesthouse Snyrtistofan Mánagull í Bol- ungarvík er rótgróið fyrirtæki en það var stofnað 2. ágúst árið 2001. Eigandi og stofnandi er Ragnhildur Helga Benedikts- dóttir sem eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1993 fór suður í nám við Förðunarskóla Íslands og í kjöl- farið snyrtifræði við Fjölbraut- arskólann í Breiðholti. Með nýfædda dóttur og þriggja ára son útskrifaðist svo Ragnhildur með hæstu einkunn vorið 1999. Eftir útskrift flutti fjölskyld- an vestur og námssamningur tekin í Snyrtihúsi Sóleyjar og sveinsprófið í höfn í maí 2001 en meistaraprófið var komið í hús ári síðar. Rekstur Mánagulls hefur gengið vel og státar af traust- um og góðum viðskiptahópi sem hefur farið ört stækkandi með tilkomu Bolungarvíkur- ganga. Ragnhildur segist ekki hafa séð eftir því skrefi að hefja eigin rekstur og vinnan sé bæði skemmtileg og gefandi. Á stofunni hafa starfað allmargir snyrtifræðinemar og starfstúlkur sem að mati forstjórans hafa allar verið framúrskarandi starfsmenn. Fyrir utan hefðbundna þjón- ustu býður Mánagull upp á hágæða snyrtivörur til sölu, til dæmis Academie snyrtivörur og var Mánagull söluhæsta snyrtistofan í október í fyrra. „Snyrtistofan Mánagull er stór hluti í mínu lífi og vona ég að svo megi vera lengi lengi í viðbót. Ég hlakka til á hverjum degi að koma í vinnuna og hitta viðskiptavini mína“ segir Ragn- hildur að lokum. Snyrtistofan Mána- gull í Bolungarvík Kristín Pétursdóttir. Ragnhildur Helga Benediktsdóttir.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.