Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Qupperneq 16

Bæjarins besta - 08.03.2017, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 Miðtún 16 400 Ísafjörður Eignin er skráð 265,3 fm. Húsið skiptist m.a. í stofu, borðstofu, fimm rúmgóð herbergi og tvö baðherbergi. Húsið er einstaklega vel staðsett. Stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, skóla og útivistarsvæði. Verð 41 millj. Andri Guðlaugsson Löggiltur fasteignasali andri@eignamidlun.is 662 2705 Sverrir Kristinsson Löggiltur fasteignasali sverrir@eignamidlun.is NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA Fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Miðtún á Ísafirði. Sala fasteigna frá 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík OPIÐ HÚS laugardaginn 11. mars milli 13:00-14:00 Fallegt útsýni til austurs út á fjörðinn Borea Adventures er fyr- irtæki sem einblínir á ævin- týraferðamennsku á Ísafirði og Hornströndum. Nanný Arna Guðmundsdóttir er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, sem er í örum vexti og miklum metum hjá ævintýraþyrstum ferðalöng- um hvaðanæva af. „Ævintýri Borea Adventures á sér langa sögu og tengist fyrst og fremst ástríðu okkar fyrir heima- bænum Ísafirði og Hornströnd- um, sem og útivistarævintýrum. Ég hef svo auðvitað sérstaklega sterkar taugar til Hornvíkur, en ég á ættir að rekja þangað“, segir Nanný og heldur áfram. „Amma mín ólst þar upp og ég hafði heyrt sögur þaðan alla tíð.“ Borea Adventures var stofnað árið 2006 og Nanný talar um að helsti hvatinn á bakvið stofnun þess hafi verið sá að fyrstu eigendur þess hafi lengi gengið með þann draum í maganum að geta komið á legg ævintýraferða- mennsku fyrir vestan. „Við vorum fullkomlega meðvituð um hvaða möguleika þetta svæði hefur upp á að bjóða, þegar kemur að ævintýralegum áfanga- stöðum. Fyrst og fremst þyrsti okkur í að gefa fólki tækifæri á að upplifa Vestfirði eins og við heimamenn höfum gert alla tíð. Vestfirðir hafa upp á svo margt að bjóða, en við höfðum á þessum tíma gert svo lítið í því.“ Nanný bendir á að Vestfirðir séu ekki í alfaraleið ferðamanna og að of lítið hafi verið gert til að auka ferðamannastrauminn hingað. „Ég hef þekkt þetta stórbrotna umhverfi frá blautu barnsbeini og vissi að þarna væri tækifæri sem væri ekki hægt að sleppa,“ segir Nanný og bætir við að fyrirtækið hafi nú nýtt sér sér- stöðu Vestfjarða, þ.e. að vera úr alfaraleið. „Það er mikill kostur í þeim mikla ferðamannaflaumi sem hefur verið á Íslandi að vera úr alfaraleið. Það er alltaf ákveðinn hópur ferðamanna sem er að leita að einhverju sem er sérstæðara og ekki eins ásótt. Við eigum að nota okkur það til góðs.“ Nanný segir að við stofnun fyrirtækisins, hafi aðal áherslan verið á skútuferðir en fljótlega bættust við styttri dagsferðir og lengri ferðir þar sem gist var í tjöldum, sem hentuðu fyrir breiðan hóp fólks, sem og lengri einkaleiðangrar til afskekktra staða á norðurslóðum, eins og til Hornvíkur, Grænlands og Jan Mayen. „Í dag er fyrirtækið rekið allan ársins hring, þó svo auðvit- að séu ennþá ónýtt tækifæri yfir vetrartímann og ásóknin mest á sumrin,“ segir Nanný og heldur áfram. „Fyrirtækið er alltaf að auka umfang sitt og bíður nú upp á fjölmargar ferðir í nágrenni Ísa- fjarðar, sem og á Hornströndum. Við tökum svo að okkur allskon- ar sérferðir, sem teygja þá anga sína víða um land og stundum út fyrir landsteinana.“ Eitt af stærstu verkefnum Borea Adventures hefur verið að gera upp Kvíar, gamalt eyðibýli í Jökulfjörðunum. Kvíar er hjartað í mörgum ferða fyrirtækisins, allan ársins hring. Yfir vetrartím- ann eru vinsælustu ferðirnar refa- ljósmyndaferðir og skíðaferðir. Gönguferðir og kayakferðir hafa átt vinninginn yfir sumartímann. „Kvíar er verkefni sem okkur þykir alveg ótrúlega vænt um og við höfum lagt hjarta og sálu okkar í,“ segir Nanný. „Þetta hefur tekið langan tíma og ótrú- lega vinnu, en nú sjáum við fyrir endann á því og bjóðum upp á dásamlegar ferðir í þetta ævin- týralega hús á hjara veraldar.“ Hornvík hefur einnig verið miðdepill í mörgum af vinsæl- ustu ferðum Borea Adventures. Aðdráttarafl Hornvíkur er ólýsanlegt. „Þar komum við upp grunnbúðum yfir sumar- mánuðina, í góðu samstarfi við landeigendur á svæðinu og bjóðum fólki að koma í ferðir,“ segir Nanný, „þar er gist í fyrsta flokks tjöldum, með beddum og ýmsum þægindum, sem fólk á kannski ekki endilega að venjast í útilegum almennt.“ Bora Adventures leggur mikla áherslu á umhverfið og allar ferðirnar eru unnar með það að markmiði að vera í fullu sam- ræmi við náttúruna. „Við berum mikla virðingu fyrir náttúrunni og það skiptir okkur öllu máli að skilja ekki eftir okkur nein fótspor.“ Segir Nanný. „Megin- markmið okkar er að ferðast með litla hópa og skilja ekki eftir okkur nein ummerki. Þetta er það málefni sem brennur hvað mest á mér, enda hef ég mikinn áhuga á verndun náttúrunnar og sjálf- bærni.“ Nanný bætir við að allt nesti í ferðirnar sé útbúið á kaffi- húsinu Bræðraborg, sem einmitt er rekið af Borea Adventures. „Við reynum að nota eins mikið af hráefni frá svæðinu og hægt er. Það hefur gefist mjög vel og er ég mjög stolt af þeirri vinnu.“ „Rekstur Borea Adventures er ómetanlegt ævintýri og ómæld vinna,“ segir Nanný, „sem ekki er unnin nema að baki búi ástríða fyrir verkefninu. Eins og kjör- orðin okkar lýsa kannski einna best. Borea Adventures er ekki bara fyrirtæki, heldur lífstíll.“ Ómetanlegt ævintýri og ómæld vinna Nanný Arna Guðmundsdóttir.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.