Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 20
20 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Kristín Þórunn Helgadóttir er
konan á bak við Fjöruperlur, skart
sem unnið er úr klóþangi sem
víða má finna í íslenskum fjörum
en sennilega fáum hugkvæmst að
úr þeim mætti gera skartgripi.
Kristín Þórunn, sem iðulega
er kölluð Giddý af vinum og
vandamönnum, er Dýrfirðingur
í húð og hár. Dóttir hjónanna
Helga og Jónu í Alviðru þar sem
hún fæddist og ólst upp í fimm
systkina hópi. Hún flutti sig svo
yfir til Þingeyrar þar sem hún
býr með manni sínum Brynjari
Kristín Þórunn og
Fjöruperlurnar
Gunnarssyni. Kristín segir að
hún hafi varið miklum tíma í
fjörunni í uppvextinum, hún hafi
alltaf verið mikið náttúrubarn og
farið eigin leiðir.
Aðdragandann að fæðingu
Fjöruperlnanna er að rekja til
upphafs tíunda áratugarins eftir
að Kristín, sem er mikil hand-
verkskona, tók til við að höggva
út í rekavið. Þá var hún oft í
fjörunni við efniviðaröflun og þar
var klóþangið: „Mér fannst það
svo fallegt og langaði að búa til
skart úr því. Í framhaldinu gerði
ég mér hálsmen með einni kúlu,
sem ég skartaði gjarnan. Fyrir
tilviljun var mér svo nokkru síðar
boðið að koma og skoða vinnu-
stofu Georgs Hollanders heitins,
sem þá var með Stubbasmiðjuna
í Eyjafirði. Í heimsókninni var
ég með klóþangshálsmenið góða
og hann fór að spyrja úr hverju
menið væri og þegar ég svaraði
því að það væri úr klóþangi sagði
hann að þetta væri verðlaunahug-
mynd. Í framhaldinu réðst ég í
að framleiða. Ég sótti um að fá
að sýna á Handverki og hönnun
árið 2010 og ég vissi að ef ég
kæmist þar inn væri hugmyndin
góð. Ég komst inn og hef verið
þar á hverju ári síðan. Eins hef
ég verið að handverkssýningunni
á Hrafnagili síðan að ég byrjaði
að framleiða.“
Fjöruperlurnar og handverk
Kristínar hafa víða vakið eftirtekt
fyrir gott handbragð og frumlega
hugmynd og var hún til að mynda
valin handverksmaður ársins árið
2014 á handverkssýningunni að
Hrafnagili og sama ár var hún
sæmd frumkvöðlaverðlaunum
Ísafjarðarbæjar.
„Náttúran er besti hönnuður-
inn. Kúlurnar voru til staðar í
fallegum litum. Ég þurfti bara
að finna leið til að ná kúlunum
úr þanginu. Það tók mig nokkur
ár að þróa verkið áfram að því
sem það er í dag og svo er nafnið
Fjöruperlur fengið af því hvernig
þangið er unnið í kúlur sem eru
þá perlur úr fjörunni.“
Neyðin kennir naktri konu að
spinna segir gamall íslenskur
málsháttur sem enn heyrist
reglulega. Sérstaklega þá ef
aðstæður í lífinu knýja okkur
stundum til að gera eitthvað sem
við hefðum ekki annars gert.
Kristín var í vinnu við Lands-
bankann á Þingeyri og stundaði
handverkið í hjáverkum, en svo
lokaði Landsbankinn útibúinu og
þá vantaði hana vinnu og tók hún
Kristín Þórunn Helgadóttir.
þá ákvörðun að setja enn meira
púður í Fjöruperlurnar. Kristín
segist fyrst og fremst líta á sig
sem einstakling í rekstri og hafa
þá bjargföstu trú að jafnt skuli
fram komið við alla og hún vilji
sjá launajafnrétti bundið í lög.
Kristín fjárfesti í litlu húsi í
Húsasmiðjunni, færanlegri hand-
verkssölubúð, sem hún setti niður
á Ísafjarðarhöfn síðasta sumar:
„Ég ákvað að prófa að selja
farþegum skemmtiferðaskipanna
vörurnar og það gekk betur en ég
hafði þorað að vona. Svo nú er ég
bæði að höggva út í rekavið, sem
og að vinna skartgripi úr klóþangi
og ég stefni ótrauð á að mæta á
bryggjuna aftur í vor.“