Bæjarins besta - 08.03.2017, Side 28
28 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017
Að baki Klæðakoti standa
þær Anna Jakobína Hinriksdótt-
ir Hnífsdælingur og Halldóra
Björk Norðdahl Ísfirðingur.
Anna Jakobína er klæðskeri að
mennt en Dóra Björk framleiðir
Dórukots vörurnar. Í Klæðakoti
reka þær alhliða hannyrða- og
barnafataverslun og eru með
saumaverkstæði þar sem Anna
Jakobína sinnir fatabreytingum
og viðgerðum og Dóra Björk
framleiðir vörur sínar sem hún
selur um allt land gegnum eigin
netverslun, sem og í nokkrum
verslunum.
Fyrir 5 árum ákvað Dóra Björk
að kanna á Ísafjarðar markaðnum
hvort einhver væri til í að opna
með sér saumastofu þar sem
Dórukot framleiðslan var farin að
taka full stóran hluta heimilisins.
Anna Jakobína var snögg að
svara og þær hittust strax daginn
Klæðakot
Anna Jakobína Hinriksdóttir og Halldóra Björk Norðdahl.
eftir og voru komnar með hús-
næði við Aðalstræti 17 í gömlu
málarablokkinni innan mánaðar.
Þar opnuðu þær saumastofu og
litla vefnaðarvöruverslun 23.
mars 2012.
Þær stöllur festu svo kaup á
húsnæðinu við Aðalstræti 27 og
opnuðu þar 14. september 2014
undir merkjum Klæðakots, en
fram að því hafði Dóra saumað
undir merkjum Dórukots og
Anna Jakobína undir merkjum
Klæðis. Þegar í nýju verslunina
var komið jókst vöruúrvalið heil
ósköp. Þær bættu við garni og
lopa, útsaum og öllum möguleg-
um aukahlutum og hefur úrvalið
aukist jafnt og þétt síðan þá.
Síðasta haust bættu þær svo við
barnafötum frá Joha fyrir 0–12
ára og í síðustu viku bættu þær
enn við er þær opnuðu netversl-
un þar sem finna má allar vörur
verslunarinnar undir slóðinni
http://klaedakot.is.
Dóra og Anna Bína segjast
aldrei hafa skilgreint sig neitt
sérstaklega sem konur í atvinnu-
rekstri, aðspurðar um hvað þær
legðu áherslu á sem slíkar, heldur
bara sem tvær manneskjur að
reyna að reka fyrirtæki, þó þær
segi vöruúrvalið sannanlega
frekar kvenlægt. „Áherslur okkar
hafa alltaf verið að bæta vöru-
úrvalið í bænum. Við höfum
forðast að taka inn vörur sem fást
annarstaðar í bænum og frekar
einbeitt okkur að því sem vantar
og að vera með fjölbreytt úrval,
til að gera bæinn okkar betri.“
Svanni veitir ábyrgðartryggingar til fyrirtækja í eigu kvenna en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu.
Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu.
Gerð er krafa um að verkefnð leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:
• Markaðskostnaðar
• Vöruþróunar
• Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.
Lán skal að jafnaði ekki fara yfir 10.milljónir króna.
Með umsókn skal skila eftirfarandi gögnum:
• Viðskiptaáætlun
• Fjárhagsáætlun
• Endurgreiðsluáætlun
• Staðfestingu á eignarhaldi fyrirtækis
Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is og er
umsóknarfrestur til og með 3.apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins í síma 531-7080 eða í netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna
auglýsir eftir umsóknum um ábyrgðartryggingar