Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 29

Bæjarins besta - 08.03.2017, Síða 29
MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 29 Sætt og salt er súkkulaðifram- leiðsla í Súðavík sem framleiðir dýrindis súkkulaði sem hefur skotist upp á stjörnuhimininn og þykir hin mesta munaðarvara. Stofnandi og eigandi fyrirtæk- isins er Elsa Borgarsdóttir, hún kemur frá Ísafirði, þar sem hún fæddist árið 1966. Hún hefur komið víða við á lífsleiðinni, til dæmis getið sér gott orð sem hönnuður undir merkjum Ískeldu og hefur hún einnig mikla og víð- tæka reynslu úr matvælaiðnaði og kom að bakarísrekstri í tæp 20 ár á, en hefur síðustu ár rekið verslun og mötuneyti svo ýmis- legt sé nefnt. Hún er nú búsett í Súðavík ásamt eiginmanni og börnum Vorið 2015 hóf hún fram- leiðslu á súkkulaði í Súðavík sem byggði á uppskriftum frá fyrri tíð, en þá bættust við saltflögur frá Saltverki í Reykjanesi sem einnig er í Súðavíkurhreppi. Fram- leiðslan fékk vinnuheitið Sætt & salt og hefur það verið skráð hjá Einkaleyfastofu og stefnt er að því að reksturinn verði gerður að einkahlutafélagi á vordögum. Verkefnið hefur verið á borði Ný- sköpunarmiðstöð á annað ár og segir Elsa að sá stuðningur hafi verið henni ómetanlegur - ásamt öllu því góða fólki sem hefur Sætt og salt komið að Sætt & Salt. Sætt & Salt er handunnið gæðasúkkulaði framleitt er af alúð og vandvirkni í Súðavík og er hjá fyrirtækinu lögð áhersla á sjálfbærni og virðingu við samfé- lagið og umhverfið. Súkkulaðið er tilvalinn matarminjagripur, en sú tegund minjagripa hefur mikið sótt í sig veðrið síðustu ár, jafnframt því sem það er góð gjöf fyrir öll tækifæri. Í dag framleiðir Sætt og salt þrjár tegundir af dökku súkkulaði með viðbættum fræjum, berjum og saltflögum frá Saltverki. Síðan er sérframleiðsla á hvítu súkkulaði í tengslum við jól, páska og haustið þar sem notuð eru fersk aðalbláber í framleiðsluna og eru nú á teikniborðinu fleiri tegundir af Sætt & Salt súkkulaði. Hugmyndin að súkkulaði- framleiðslu vaknaði fyrst árið 2003 þegar ég byrjaði í Bak- aríinu, heillaðist ég strax af fjölbreytileika súkkulaðisins og möguleikaum þess við fram- leiðslu, ég drakk í mig allan fróðleik og nýtti mér aðstöðu mína. Blandan af Sætt & Salt súkkulaði varð til á þessum árum og leyndist hún í huga mér í áratugi þar til hún vaknaði á ný Reksturinn hefur vaxið og vaxið að sögn Elsu. Í dag eru sölustaðir orðnir hátt í 20 víða um land og fer þeim fjölgandi. Elsa segir markmiðið vera að skapa Sætt & Salt sérstöðu sem gæða matarminjagripur á vel völdum söluaðilum, þar sem áhersla er lögð á persónuleg tengsl við hvern og einn, þar sem vörunni er fylgt eftir. „Í dag stend ég frammi fyrir því að vera búin að sprengja utan af mér húsnæðið og er næsta skref að finna stærra. Draumurinn er að geta sameinað framleiðsluna og gæða kaffíhús þar sem boðið verður uppá konfekt, súkkulaði og aðrar vörur úr héraði.“ Segir Elsa um næstu skref. Aðspurð um hvað hún leggur áherslu á við reksturinn segir Elsa það vera vandvirkni, sjálfbærni og að bjóða upp á fyrsta flokks vöru, þar sem unnið er í samstarfi og af virðingu við náungann: „Oft er nú sagt að við konurnar séu ekki nógu frakkar eða kaldar að stökkva varðandi áhættur í rekstri, hefur það verið okkur stundum fjötur um fót. Ég hef haft það að leiðarljósi að halda í lestina en passa mig á að missa ekki af henni. Að vera með skýra mynd og áætlun varðandi hvert skal stefna, stíga skrefin varfærn- islega og leita ráða hjá þeim sem vita betur.“ Elsa Borgarsdóttir. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur rekið starfsstöð á Ísafirði frá árinu 2007. Á starfsstöðinni hafa Sigríður Ó. Kristjánsdóttir og Arna Lára Jónsdóttir starfað saman frá upphafi en Þórarinn Bjartur Breiðfjörð Gunnarsson verkefnisstjóri Fab Lab hefur starfað hjá Nýsköpunarmiðstöð frá árinu 2014. Þar sem blaðið nú er tileinkað konum mun áhersla vera lögð á þau verkefni Nýsköpunar- miðstöðvar sem einkum henta þeim. Sú þjónusta sem ávallt er í boði hér á Ísafirði er leiðsögn eða handleiðsla. Leiðsögn er einstaklingsmiðuð þjónusta sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir frumkvöðlum endurgjalds- laust meðal annars við þróun viðskipta- og vöruhugmynda, stofnun og rekstur fyrirtækis, gerð viðskiptaáætlana, leit að samstarfsaðilum og styrki og fjármögnun. Leiðsögn er veitt á staðnum, gegnum síma og í auknum mæli um netið með aðstoð fundabúnaðar. Um langt skeið hefur Ný- sköpunarmiðstöð Íslands boðið upp á sérstök námskeið ætluð konum sem eru með viðskipta- hugmynd og vilja hrinda henni í framkvæmd, Brautargengi. Brautargengi er námskeið sem er sniðið sérstaklega að þörfum kvenna sem vilja hrinda við- skiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur og kvenna sem eru þegar í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðin hafa verið haldin í Reykjavík frá árinu 1997 og frá 2003 einnig á landsbyggðunum. Ríflega 1200 konur hafa sótt þessi námskeið frá upphafi. Markmiðið með Brautargengi er að styðja konur til framgangs í rekstri fyrirtækja. Meginskil- yrði eru að þátttakandi hafi viðskiptahugmynd til að vinna með, sé að hefja rekstur eða sé nú þegar í rekstri og að þátttakandi skuldbindi sig til þess að vinna að gerð viðskiptaáætlunar sinnar. Á námskeiðinu ljúka þátt- takendur við vinnu að eigin viðskiptaáætlun og öðlast þekk- ingu á grundvallaratriðum við stofnun fyrirtækis og fái hagnýta þekkingu á þáttum sem lúta að fyrirtækjarekstri s.s. markaðs- málum, fjármálum og stjórnun. Kennslufyrirkomulagið er í formi fyrirlestra, verkefnavinnu og heimavinnu. Þátttakendur fá einnig leiðsögn hjá starfsmönn- um Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Brautargengi er 90 kennslu- stunda námskeið sem kennt er einu sinni í viku í 4 klst. í senn, samtals í 15 vikur. Námskeiðið er haldið tvisvar á ári í Reykjavík, á haust og vor- önn. Eitt námskeið á ári er haldið á Akureyri og svo erum við á öðrum stöðum á landsbyggðinni á vorin. Síðasta vor var haldið námskeið á Egilsstöðum og hófst námskeið á Sauðárkróki 1. febrúar sl. Á Vestfjörðum hafa verið haldin Brautargengisnám- skeið á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Frá árinu 2013 hefur Nýsköp- unarmiðstöð Íslands í samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði og sveitarfélögin á norðan- verðum Vestfjörðum rekið Fab Lab smiðju sem er til húsa í Menntaskólanum á Ísafirði. Fab Lab smiðjan er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, konum og körlum tækifæri til að þjálfa sköpunar- gáfuna og hrinda hugmyndum Konur í nýsköpun sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Starfsmenn Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands á Ísafirði og um allt land eru ávallt tilbúnir að aðstoða við framgang við- skiptahugmynda. Við bjóðum Vestfirska frumkvöðla velkomna á skrifstofuna okkar í Vestra- húsinu og Fab Lab smiðjuna í Menntaskólanum. Arna, Sirrý og Þórarinn Verkefnastjórar hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Fab Lab smiðjan er í Menntaskólanum á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.