Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.03.2017, Page 32

Bæjarins besta - 08.03.2017, Page 32
32 MIÐVIKUdagUr 8. MARS 2017 Haldið hefur verið upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars í 106 ár. Ef eitthvað er, hefur mikilvægi þessa dags auk- ist undanfarin ár ekki síst vegna þess hve sótt er að réttindum kvenna víða um heim. Vax- andi bókstafstrú, hægriöfgar, stríðsátök o.fl. beinist m.a. gegn réttindum kvenna. Því er mikil- vægt að sýna samstöðu, skerpa á baráttumálunum og styðja mann- réttindabaráttu um allan heim. Ísland hefur verið í efsta sæti jafnréttislista World Economic Forum undanfarin átta ár. Það þýðir að bilið milli kvenna og karla er minnst hér á landi miðað við þær mælingar sem listinn byggist á. Það þýðir ekki að hér sé jafnréttinu náð og að óhætt sé að halla sér aftur á bak í stólnum og dæsa. Síður en svo. Það hefur verið afar athyglisvert að fylgjast með umræðum um launamisrétti kynjanna að undanförnu. Allt í einu kemur fram hópur fólks sem neitar því að hér sé launamisrétti . Fjöldamargar kannanir sýna fram á launamisrétti þó að búið sé að reikna inn menntun, vinnu- tíma, starfsreynslu o.fl. Launa- munurinn mælist allt frá 5% upp í 17% eftir því hvernig reiknað er. Það er líka hægt að skoða launa- muninn á annan hátt, með því að skoða heildarlaun. Hvernig stendur á því að konur hafa um 70% af heildarlaunum karla? Hvaða sögu segir það okkur um mat á störfum, hlutastörf, ólaun- aða vinnu á heimilum, ábyrgð á börnum og ættingjum, lífsgæði karla og kvenna? Af hverju eru konur enn í þessari stöðu? Vilja karlar endilega vinna yfirvinnu? Vilja karlar ekki hafa tíma fyrir fjölskyldu sína og hugsa vel um heilsuna? Þurfum við ekki að breyta umræðunni og horfa á heildarmyndina? Málefnin eru ótal fleiri. Jafn- réttisfræðslu á öllum skólastigum þarf að efla og beina sjónum að jafnréttisuppeldi laust við bláu og bleiku staðalmyndirnar. Forystan í atvinnulífinu er enn ótrúlega karllæg þrátt fyrir kynjakvóta í stóru fyrirtækjunum. Þar er svo sannarlega verk að vinna. Menningin og listirnar eru líka mjög karllægar, sbr. kvikmynda- iðnaðinn okkar. Við þurfum að beina sjónum að stöðu ýmissa hópa eins og fatlaðra og fólks af erlendum uppruna sem er því miður mismunað á margvíslegan hátt. Að ekki sé minnst á kyn- bundið ofbeldi, hatursorðræðu og hrelliklám (og annað klám) þar sem er svo sannarlega verk að vinna. Það er eftir svo miklu að slægj- ast fyrir samfélagið að koma á kynjajafnrétti og jafnrétti fyrir alla. Betri líðan, meiri lífsgæði, betri nýting á mannauðnum, meiri samkeppnishæfni, meira réttlæti og vonandi meiri jöfn- uður. Þetta á ekki síst við um landsbyggðirnar. Víða á norð- urhveli jarðar er þróunin sú að konurnar fara í burtu til að mennta sig og snúa ekki til baka vegna karlrembu og einhæfni í atvinnulífinu. Nokkuð sem við þurfum að gefa gaum. Takið þátt í baráttu dagsins, beitið ykkur hvar sem hægt er. Stöndum vörð um kynjajafnréttið. Kristín Ástgeirsdóttir Horfum á heildarmyndina Kristín Ástgeirsdóttir.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.