Bæjarins besta - 10.01.1996, Síða 12
Búsáhöld
og gjafavörur
Verkfæri
á frábæru
veröi
<$**■!!%
ísafjörður
Gleði á Hlíf
Síðastliðinn sunnudagkl. 15,
efndu Kiwanismenn á Isafirði
til sinnar árlegu Þrettándagleði
á Hlíf, dvalarheimili aldraðra
á Isafirði.
Skemmtunin, sem nú var
haldin í 20. skipti, sóttu um
eitt hundrað íbúar á Hlíf og var
góður rómur gerður af þeim
skemmtiatriðum sem boðið var
upp á. Meðal annars sungu tvær
ungar stúlkur nokkur lög, aðrar
tvær léku saman á fiðlu auk
þess sem boðið var upp á ljóða-
lestur og fleira. Þrettándagleði
íbúa á Hlíf lauk síðan með dansi
um kl. 18.30.
ísafjörður
Orri á sjó í
næstu viku
Að undanfömu hafa staðið
yfir aðalvélarskipti á tog-
aranum Orra frá Isafirði, en
vél skipsins skemmdist mikið
er skipið var að veiðum fyrir
áramótin.
Að sögn Hans W. Haralds-
sonar hjá Norðurtanganum,
ganga aðalvélaskiptin vel og
er ráðgert að skipið geti haldið
til veiða í næstu viku. I gærdag
voru tveir franskir sérfræð-
ingar væntanlegir til bæjarins
til að yfirfara vélina, stilla og
prófa og reiknaði Hans með að
þeirri vinnu lyki um næstu
helgi.
I næstu viku fer Guðbjartur í
slipp í Reykjavík og verður
hann þá afhentur nýjum eig-
endum frá Noregi.
Þingeyrí
Sléttanesið
í öðru sæti
Aflahæstu íslensku skipin í
Smugunni veiddu á árinu 1995
allt upp í sexfaldan þorskkvóta
sinn á Islandsmiðum. Afla-
hæsta skipið í Smugunni á
síðasta ári var Akureyrin EA
með 2.256 tonn, en þorskkvóti
skipsins á Islandsmiðum er 873
tonn óslægt.
I öðru sæti var frystitogarinn
Sléttanes frá Þingeyri sem
veiddi samtals 2.110 tonn í
Smugunni, en þorskkvóti þess
hér heima er 734 tonn miðað
við óslægðan fisk. Alls sóttu
48 skip afla í Smuguna en frá
upphafi Smuguveiða haustið
1993 hafa 82 skip tekið þátt í
þessum veiðum og dregið rúm-
lega 80 þúsund tonn úr sjó.
S/éttanes ÍS. Áhöfn skipsins fékk nýiega viðurkenningu fyrir sérvinnsiu á afurðum á Evrópumarkað.
Viðurkenning fyrir sérvinnsiu á Evrópumarkað
Áhöfnin á Sléttanesinu heiðruð
Nýlega fékk áhöfnin á árifráíslenskumsjávarafurðum. fyrir framangreinda sérvinnslu viðurkenningu að ræða fyrir
Sléttanesi ÍS frá Þingeyri Viðurkenningin er bæði fyrir sem aftur hefur skilað sér í áhöfnskipsinssemskilarsérí
viðurkenningu fyrir sérvinn- magn og gæði en áhöfnin hefur þessari viðurkenningu auk hærra áframhaldandi samningum.
slu á Evrópumarkað ásíðasta lagt sérstaka áherslu á að vinna afurðaverðs. Hér er um mikla
Brotist inn á sfmaiínuna hjá sveitarstjóranum
Hringt oft og lengi í símatorg
- „símareikningarnir heima hafa verið óeðlilega háir undanfarin tvö ár og því mun ég krefjast
lækkunar á þeim,” segir Júnas Ólafsson, sveitarstjúri
Sveitarstjórinn á Þingeyri,
Jónas Olafsson, hefur lagt fram
kvörtun til Pósts og síma vegna
óeðlilega hás reiknings á einka-
síma sínum 456-8150, en hann
nam um 20 þúsundum króna á
síðasta tímabili, á sama tíma
og sveitarstjórinn var að mestu
að heiman vegna sumarleyfa.
Athugun Pósts og síma hefur
leitt í ljós að „brotist hefur
verið inn” á símalínu sveitar-
stjórans í gegnum tengibox
utan við heimili notandans og
síðan hringt á hans kostnað í
símatorg og talað oft og lengi.
Yfirverkfræðingur Pósts og
síma hefur látið hafa eftir sér
að reikningur Jónasar fyrir um-
rætt tímabil verði lækkaður og
að málinu verði ekki vísað til
lögreglurannsóknar þar sem
ekki eru taldar lfkur á að sannað
verði hver var að verki.
„Að mínu áliti hefur þetta
staðið yfir um tveggja ára
skeið. Ég borga nú af 15
símum, heima og í vinnunni en
heimareikningurinn hefur verið
óeðlilega hár undanfarin ár. Ég
er búinn vera að skamma
konuna mína fyrir hvað hún
talaði mikið en hún sagðist al-
saklaus og nú þegar komið er í
ljós að einhver draugur hefur
verið á línunni, verð ég að sjálf-
sögðu að biðja hana afsökunar
á sköntmum mínum. Það tíma-
bil sent síðasti reikningur nær
yfir, vorum við hjónin að
stórum hluta erlendis og því
gat reikningurinn ekki staðist.
Ég bað um skýringu á reikn-
ingnunt og þegar hún kont, kom
hið rétta í ljós. Ég mun að
sjálfsögðu krefjast þess að
reikningar síðustu tveggja ára
verði teknir til skoðunar og
lækkunar,” sagði Jónas Olafs-
son í samtali við blaðið.
Jónas Ólafsson,
sveitarstjóri á
Þingeyri.
Y firverkfræðingur
Pósts og síma taldi
nánast víst að sá sem
hefði misnotað sím-
ann í þessu tilviki væri
annar notandi á Þing-
eyri en Jónas taldi ó-
varlegt að halda því
fram án frekari rann-
sóknar. „Ég hef ekki
fengið neina leiðrétt-
ingu ennþá en hún
kemur vonandi. Þetta
hefur haldið áfram
fram á þennan dag en
þeir hjá Pósti og síma
eru vonandi búnir að loka fyrir
þetta. Mér finnst varasamt að
segja að þetta eigi sér stað hér
heima en ef svo er verða þeir
að upplýsa það. Þetta er leið-
indamál sem stofnunin verður
að finna lausn á,” sagði Jónas.
ísafjörður
Híu mill-
júna Audi
Fyrsti vinningur í áramóta-
útdrætti Happdrættis Háskóla
Islands sem dreginn var út á
gamlársdag kom á seldan miða
á Isafirði.
Vinningurinn sem er bifreið
að gerðinni Audi A8 að verð-
mæti 9,4 milljónir króna verður
afhentur í Reykjavík síðar í
mánuðinum. Vinningshafinn
vill ekki láta nafns síns getið.
Fiateyri
JEgir í veik-
indaleyíi
Ægir Hafberg sem gegnt
hefur starfi sparisjóðsstjóra
Sparisjóðs Önundarfjarðar
hefur fengið leyfi frá störfum
vegna veikinda og verður hann
frá vinnu fram í maí nk.
A meðan mun Steinar Guð-
mundsson, stjórnarformaður
sparisjóðsins gegna embættinu
en við embætti stjórnarfor-
manns tók Garðar Þorsteins-
son.
ísafjörður
Breytingar
hjá Póls
Skipulagsbreytingar munu
vera á döfinni hjá rafeinda-
fyrirtækinu Póls-rafeinda-
vörum hf., á Isafirði og munu
þær taka gildi frá og með næstu
mánaðarmótum.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins munu helstu breyt-
ingarnar verða þær að nýr
framkvæmdastjóri verður ráð-
inn og hefur nafn Arnar Ingólfs
verið nefnt í því sambandi.
Guðmundur Marinósson, sem
gegnt hefur stöðunni mun því
vera á förum frá fyrirtækinu.
ísafjörður
Jafntefli
Handknattsleikslið Boltafélags
Isafjarðar tók á móti Armanni
í 2. deildinni í handknattleik í
íþróttahúsinu á Torfnesi á
laugardaginn.
Leiknum sem var mjög jafn
og spennandi iyktaði með jafn-
tefli. 28-28. Markahæstir í liði
BI voru þeir Jakob Jónsson
með 11 mörk, Guðjón Rúnars-
son með 5 mörk og Sveinn
Guðjónsson með 4 mörk.