Bæjarins besta - 31.07.1996, Blaðsíða 9
Einn af dagskráriiðum ísafjarðarhátiðar varopnun fiskmarkaðar íNeðstakaupstað. Þar sýndu þessar
ungu stúikur meðai annars hvernig saitfiskurinn var þurrkaður fyrr á öidinni.
Velheppnaðri Ísafjarðarhátíð lauk á sunnudag
Ísafjarðarhátíðinni iauk síðan með söng við varðeid
í Stóruurð.
Veðurguðirnir f aðalhkitverkinu
Velheppnaðri Ísafjarðarhátíð lauk á sunnudagskvöld með söng við varðeld í Stóruurð. Að sögn
Þórunnar Gestsdóttur, ferða- og upplýsingafulltrúa ísafjarðarbæjar var þátttaka góð í flestum
þeim dagskrárliðum sem boðið var upp á og komu fjölmargir „gantlir” ísfirðingar auk annarra
gesta til bæjarins vegna hátíðarinnar. „Hátíðin tókst alveg þokkalega enda voru veðurguðirnir í
aðalhlutverkinu alla daga hátíðarinnar nteð sól og blíðviðri. Við þurftum aðeins að sleppa einum
dagskrárlið, lautarferð í Tungudal. Það var mjög góð þátttaka í öllum þeim siglingum sem boðið
var upp á sent og á útimarkaðnum, bryggjuballinu og þeim dagskrárliðum sem fram fóru í Neðsta-
kaupstað,” sagði Þórunn.
Hátíðin hófst kl. 15 á föstudag með opnun útimarkaðar á Silfurtorgi en þar skemmtu sér ungir
sem eldri í hinum ýmsu leiktækjum auk þess sem leikhópurinn Purka flutti leikþátt. Um kvöldið
var boðið upp á grillferð með Halldóri Sigurðssyni ÍS um Isafjarðardjúp, Hótel Isafjörður og Litli
leikklúbburinn stóðu fyrir sýningu á tveimur einþáttungum á hótelinu og boðið var upp á siglingu
nteð Fagranesinu út í Vigur. Á laugardag hófst dagskráin með siglingu Fagranessins á fengsæl
fiskimið. Þá var boðið upp á gönguferð um Naustahvilft, siglingu með Blika inn í Æðey og
gönguferð um Eyrina á ísafirði sem endaði í Neðstakaupstað þar sem stóð yfir fiskmarkaður.
Þar var einnig boðið upp á sögustund fyrir yngstu kynslóðina og á sama tíma stóð yfir
knattspyrnuleikur á milli stjórnenda ísfirskra fyrirtækja á Torfnesvelli. Um kvöldið var síðan
bryggjuball við Sundahöfn þar sern fjölmargir gestir skemmtu sér við harmonikku undirleik. Á
sunnudag hófst hátíðin með siglingu að Snæfjallaströnd þar sem farið var til kirkju í Unaðsdal. Þá
var boðið upp á gönguferð um Hnífsdal, grillferð unt Djúp og dagskrá hátfðarinnar lauk síðan nteð
blysför frá gamla sjúkrahúsinu að Stóruurð, þar sem sungið var við varðeld.
Samhliða hátíðarhöldunum fór fram sýning í Slunkaríki á verkum barna frá leikskólanum
Hlíðarskjóli þar sem þenra sýningarinnar var landbúnaður.
Fjöimargirgestir kynntu sérþað sem íboði vará útimarkaðnum á Siifurtorgi.
Á meðan skemmti yngsta kynsióðin sér í hinum ýmsu ieiktækjum sem sett
höfðu verið upp í tiiefni hátíðarinnar.
MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1996
9