Bæjarins besta - 31.07.1996, Blaðsíða 11
msi
*UOTT
HYGUR
SKISAGAN
•- ,é
■^gSKr^sSý-
?j{h j fjj{ }\f
j-jÁmúm'jwuj'A,
fiminnJLUj'hJi ou
fimu ímm um
Óskar Hallúórsson með 45 tonn
Skafti landaði á ísafirði 23. júlí 120 tonnum af blönduðum afla. Rannsóknaskipið Ámi
Friðriksson landaði 25. júlí 6 tonnum af rækju, og svo aftur 27. júlí 4 tonnum af fiski. Oskar
Halldórsson landaði 22. júlí 40 tonnum af rækju og aftur 26. júlí 45 tonnum af rækju. Páll
Pálsson landaði síðan 85 tonnum af blönduðum afla 27. júlí.
Tvetr úanskir toðnubátar
{ síðustu viku lönduðu í Bolungarvík 30 færabátar 83.8 tonnum í 76 róðrum. Þar var Fannar SK
aflamestur með 6.5 tonn í 3 róðrum. Fjórir dragnótabátar lönduðu 29.2 tonnum í 9 róðrum.
Guðný var aflamest með 8.9 tonn í 2 róðmm. Einn línubátur, Völusteinn, landaði 5 torinum í
4 róðmm. Þrír loðnubátar, þar af tveir danskir, Strpmfjord og Strpmegg, lönduðu 743 tonnum
og 827 tonnum 23. júlí, og Höfrungur landaði°28. júlí 818 tonnum. Tveir úthafsrækjubátar
lönduðu 70 tonnum í 3 löndunum. Emma landaði 50 tonnum í 2 róðrum 24. og 28. júlí. Síðan
landaði Stakkur 20 tonnum 25. júlí.
Bessl væntantegur umJóttn
Ekkert var landað í Súðavík í síðustu viku. Bessi hefur verið að fiska um 6-7 tonn á dag af
lélegri rækju eða iðnaðarrækju. Hann mun landa í St.John's, Kanada um miðjan ágúst en ekki
er búist við honum hingað til lands fyrr en um jólin.
Fjórir af fimm læknum HSÍ
hætta störfum á morgun
Einn læknir veróurstarfandi við Heilsugæslustöðina á ísafirði frá
og með morgundeginum 1. ágúst, takist samningar ekki á milli
heilsugæslulækna í landinu og ríkisvaldsins fyrír míðnætti í kvöld.
Fimm heilsugæslulæknar eru starfandi við Heilsugæslustöðina á
ísafirði og munu fjórir þeirra láta af störfum við stofnunina, hafi
samningar ekki náðst. Einn heilsugæslulæknanna, Friðný
Jóhannesdóttir, sagði ekki upp störfum og mun því afleysingalæknir
hennar, Jón Tómasson sjá um vaktir Friðnýjar, en hún er sjálf í
sumarleyfi um þessar mundir. Læknarnir fjórir sem sagt hafa upp
störfum munu áfram sinna bráðatilfellum auk þess sem þeir munu
sinna störfum sínum við Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði. „Það
verður einn læknir að störfum við stofnunina í stað fimm, ef
samningar nást ekki fyrir 1. ágúst. Það segir sig sjálft að þjónustan
skerðist til muna þegar fjórir af fimm læknum stofnunarinnar láta
af störfum, en víð munum reyna að sinna allri heilsugæslu eftir
bestu getu. Einhver bið getur orðið á að fólk fái tíma hjá lækni, en
öll bráðaþjónusta verður veitt," sagði Sigrún C. Halldórsdóttir,
staðgengill Guðjóns Brjánssonar, framkvæmdastjóra Heilsu-
gæslustöðvarinnar á ísafirði í samtali við blaðíð.
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
ÍSAFJÖRÐUR:
Fjardarstræti 13: Neðri hæð ásamt íbúðarherbergi í kjallara
og bílskúr. Verð 6.100.000,- Hagstæð greiðslukjör.
Mjallargata 6: Norðurendi 2x40m24 herbergjaásamttvöföldum bílskúr.
Laus. Verð: 3.800.000,-
Mánagata 6: Efri hæð 155m2 5-6 herbergja. Laus fljótlega.
Urdarvegur 60: Glæsilegt raðhús, alls rúmlega 200m2, ásamt bílskúr.
Skipti á minni eign á eyrinni koma til greina.
Silfurgata I 1: 3ja herbergja íbúð á I. hæð. Verð: 4.000.000,-
Stakkanes 6: Rúmlega 140m2 raðhús ásamt bílskúr og sólstofu.
Strandgata7: Nýuppgerttvílyfteinbýlishúsúrtimbri.Verð: 7.500.000,-
Sunnuholt I: Eitt glæsilegasta einbýlishúsið í bænum. 277m2
ásamt 40m2 bílskúr.
Dalbraut 10: I 15m2 einbýlishús ásamt bílskúr. Skipti áíbúð í Hafnarfirði
komatil greina. Verð: 7.800.000,-
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3. hæð. Verð: 3.600.000,-
Urðarvegur 60: Glæsilegt raðhús ósamt bílskúr.
Fjarðarstræti 13: Neðri hæð. Verð 6.100.000,-
BOLUNGARVÍKi
Dísarland 8: Tvílyft einbýlishús með innbyggðum bílskúr, samtals 290m2.
Mög gott útsýni.
Hafnargata 46: Tæplega 120m2 íbúð á efri hæð ásamt innbyggðum
bílskúr á neðri hæð. Laus. Verð: 1.000.000,-
Miðstræti 6: Gamalt einbýlishús úr timbri. Selst ódýrt.
Hlíðarstræti 7: I I0m2 einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Verð:
7.200.000,-
Holtagata 9: Lítið og snyrtilegt einbýlishús úr timbri. Húsið er laust.
Verð: 3.800.000,-
Traðarland 10: Einbýlishús ásamt bílskúr. Verð: 7.200.000,-
Ljósaland 6: 2x 126m2 einbýlishús. Hagstæð lán. Verð: 7.500.000,-
Skólastígur 20: 140m2 á 2. hæð í parhúsi. Verð: 1.600.000,-
Stigahlíð 2: 54m2 2ja herbergja íbúð á 3. hæð. Verð: 2.200.000,-
Stigahlíð 2: 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Yfirtaka veðskulda.
Verð: 3.000.000,- Ný uppgerð.
Stigahlíð 2: 3ja herbergja íbúð á 3 hæð. Verð 2.300.000,-
Stigahlíð 2: 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Laus. Verð: 1.800.000
Stigahlíð 4: 3ja herbergja íbúð á 3. hæð. Er í mjög góðu ástandi. Verð:
3.000.000,-
Völusteinstræti 4: 2x 126m2 einbýlishús. Skipti á minni eign koma til
greina. Verð: 9.500.000,-
Stigahlíð 4: 3ja herbergja íbúð á 3. hæð. Nýuppgerð.
Holtabrún 6: 230m2 einbýlishús átveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð: 10.000.000.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Móatún 6: 160m2 einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er laust.
Tilboð óskast.
Kleinur
Kökur
Rúgbrauð
Veðurhorfur
næstu daga
Horfur á fimmtudag: Hæg breytileg átt og skúrir
víða um land. Hiti 8-12 stig.
Horfur á föstudag: Suðaustan gola eða kaldi og
rigning en suðvestlægari og úrkomulítið sunnan-
og vestanlands um kvöldið. Hiti 9-15 stig.
Horfur á laugardag: Hæg suðlæg eða breytileg
átt og víða bjartviðri. Hiti 10-15 stig.
Á sunnudag og mánudag lítur út fyrir austlæga
átt og rigningu um mest allt land.
Einbýlishús-makaskipti
Ertu aö flytja suöur? Áttu einbýlishús eða
raðhús á ísafirði á verðbilinu 10-12 milljónir
króna?
Þá hef ég á mínum snærum raðhús í
Reykjavík.
Arnar Geir Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1, ísafirði, sími 456 4144
HP-Hárstofan Bolungarvík
GuðrúnM. KarlsdóttirverðuráHárstofunni
fráog með7. ágústtil 16. ágúst. Opið verður
kl. 10:00-18:00 (opið í hádeginu).
Helgaferífrí6.-19.ágústog Jóhannafrá8.
ágúst til 10. september. Tímapantanir í síma
456 7599.
- kveöja,
Helga og Jóhanna.
Góó rækjuveiói
Góó veiði hefur verið aó
undanförnu á úthafsrækju, að
sögn Pálma Stefánssonar út-
gerðarstjóra hjá Básafell hf.
Óskar Halldórsson landaði 40
tonnum af rækju síðastliðinn
mánudag og 45 tonnum
fjórum dögum síðar, eða á
föstudag.
Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson hefur verið við rann-
sóknir á úthafsrækju að undan-
förnu og að sögn Stefáns Brynjólfssonar, leiðangursstjóra, þá hafa
þessar rannsóknir gengið mjög vel. „Það hefur viðrað sérlega vel
á þessi tvö skip sem hafa tekið þátt í henní, þ.e. Árna Friðriksson og
Dröfn. Það er voðalega lítið hægt aó segja um niðurstöður þessara
rannsókna fyrr en við erum búin að taka þær saman. Þetta eru um
200 stöðvar sem eru teknar bæði fyrir austan og norðan landið og
við höfum ekki tekið nema liðlega einn fjórða af því. Rannsókninni
lýkur um miðjan ágúst og fljótlega eftir það verður farið að vinna
úr upplýsingunum," sagði Stefán.
Átak í umhverfismálum
Bæjarstjórn ísafjarðarbæjar er búin að skipa þriggja manna
nefnd vegna átaks í umhverfismálum. í nefndinni sitja Kolbrún
Halldórsdóttir, Kristinn J. Jónsson og Sæmundur K. Þorvaldsson.
Samþykkt var að veita rúmum 500,000 krónum í þetta átak. Að
sögn Kolbrúnar Halldórsdóttur, formanns nefndarinnar, mun
nefndin ekki hefja störf fyrr en í næstu viku. „Hugmyndin er að
vekja fólk til umhugsunar um umhverfið og hvetja það til þess að
huga að því, jafnt einstaklinga, fyrirtæki og hið opinbera. Líklegt er
aó þetta verði meó svipuðu sniði og gert hefur verió áður, þ.e. að
fólk hreinsi hjá sér og bærinn komí síðan á móts við íbúana og
hreínsi upp, en annars er þetta óákveóið" sagði Kolbrún.
27 milljónir í malbikun gatna
27 milljónum króna verður varið til malbikunar gatna í sumar.
Að sögn Ármanns Jóhannessonar, forstöðumanns tæknideildar
ísafjarðarbæjar, eru það Fjarðastræti, eitthvað af Sejjalandsvegi,
Suóurgata, ogÁsgeirsgata sem áætlað erað malbika núna. Til stóð
að malbika fleiri götur, en að sögn Ármanns var þeim fækkaó er
leið á sumarið.
Tilboó í lagningu gangstétta
Auglýst verður eftir tilboðum í lagningu gangstétta á ísafirði í
næstu víku. Auglýst var eftir verktökum vegna gatnaframkvæmda
fyrir tveimur vikum síðan og að sögn Ármanns Jóhannessonar,
forstöðumanns tæknideildar ísafjaröarbæjar, þá hafa nokkrir sótt
um það.
Óvíst er hve mikið veróur gert í sumar, en vonandi munu íbúar
ísafjarðar eiga þess kost að þramma um miðbæinn á nýjum
gangstéttum næsta sumar.
Sýning á hreyfimyndaverkum
Laugardaginn 3. ágúst kl. 16 opnar Magnús S. Guðmundsson
sýningu í Slunkaríki á ísafirði. Til sýnis eru hreyfimyndaverk unnin á
myndband. Þetta er sjötta einkasýning Magnúsar, en hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis. Sýningin stendur
yfir frá 3. til 16. ágúst og er opin frá fimmtudegi til sunnudags frá
kl. 16-18. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Líf og fjör í Reykjanesi
Það verður líflegt í Reykjanesi um verslunarmannahelgina. Boðið
verður upp á hina ýmsu skemmtun og dægradvöl fyrir unga jafnt
sem gamla. Rifjaðirverða upp gamlir leikir, kveikturverður varðeldur
og farið í blysför á bálið. Körfuboltafélag ísafjaróar mun sejja
kyndla, en þeir sem eiga blys eru hvattir til að taka þau með sér.
Krýnd verður kerlingarfleyta ársins, þ.e. keppt verður um hver er
bestur í aó fleyta kerlingar meó steini. Góð tjaldstæói eru á
staðnum, en einnig er hægt að fá svefnpokapláss á Hótel Eddu. Að
vanda er frítt í sundlaugina í Reykjanesi og öruggt að margir eiga
eftir að stinga sér til sunds á helginni oftar en einu sinní.
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 1996 11