Víðförli - 15.05.1983, Qupperneq 1
2. árgangur
Maí
1983
Friðarráðstefna kirkjunnar:
Ott kjamorkuvopn gerð
óvirk á næstu Gimn árum
Það var kirkjusögulegur viðburður
þegar 150 kirkjuleiðtogar komu
saman í Uppsölum við sumarkomu.
Aldrei áður hafði náðst jafn breið
þátttaka í kirkjulegu þingi. Þátttak-
endur voru frá öllum helstu kirkju-
deildum frá kaþólskum til kvekara
og alls staðar að úr heiminum. Yfir-
skrift ráðstefnunnar var Líf og
Friður og höfuðbiskupar Norður-
landa undir forystu erkibiskups Sví-
þjóðar buðu til hennar.
Fundarboðendur benda á að boð-
skapurinn um frið og fyrigefningu
sé burðarþáttur í kristinni trú. Þess-
vegna hafi kristnir menn sem dreifð-
ir eru um alla heimshluta sérstöku
hlutverki að gegna að koma á um-
ræðu og aðgerða í þágu friðar.
Notkun kjarnorkuvopna er
brot gegn vilja Guðs
Miklar og ákafar umræður urðu á
þinginu um kjarnorkuvopn. Einhug-
ur var um kröfu til kjarnorkuveld-
anna að öll kjarnorkuvopn yrðuð
gerð óvirk á næstu fimm árum enda
væri notkun slíkra vopna brot á
sköpunarvilja Guðs.
Ennfremur segir 1 ályktuninni:
Fyrir marga okkar er það ósamræm-
anlegt trú okkar á Guð að eiga kjarn-
orkuvopn. Sumir okkar eru þó fúsir
að umbera ógnarjafnvægi kjarnorku-
vopnanna sem skammtímaástand
og aðeins sem slík, meðan ekki finn-
ast aðrir valkostir afvopnunar.
Póstreitur.
Fundarmenn voru frá flestum kirkjum.
Réttlæti er hið nýja nafn
friðarins
Meðal meginatriðanna í ályktun
þingsins, er krafan um nýja fjár-
hagsskipan heimsins, sem byggi á
réttlæti og samstöðu þjóðanna.
Arns kardínáli frá Brasilíu lagði
þunga áherslu á þessi mál eins og
reyndar fulltrúar frá þriðja heimin-
um.
í einni ræðu sinni sagði kardínál-
inn: Það verður ekki friður á jörðu
meðan fólk líður af sulti og sjúkdóm-
um og ríku þjóðirnar útvega einræð-
isherrum fátæku þjóðanna vopn.
Olof Pame forsætisráðherra Svía
lagðist á sömu sveif og vitnaði í þau
orð Páls páfa sjötta sem oft var síð-
an vitnað til á þinginu: „Réttlæti er
hið nýja nafn friðarins."
Kröfur til kirkjunnar
Þingið hvatti kirkjur heimsins til
þess að taka miklu virkari þaft í bar-
áttunni fyrir friði, ekki síst með
auknu uppeldi til friðar og hverskon-
ar fræðslu um friðarmál.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup
sat fundinn fyrir hönd íslensku kirkj-
unnar, enda var hann einn fundar-
boðenda. Biskup kvað ráðstefnuna
hafa verið til mikillar örvunar og ver-
ið ógleymanleg reynsla. „Þarna kom
fram skýr og ákveðin rödd kirkjunn-
ar sem hefur hlotið góðan hlóm-
grunn hjá friðarhreyfingum. Kristnir
menn eru um allan heiminn og sam-
einaðir fela þeir í sér mikið afl, þeir
fela í sér einingaraflið sem er
Kristur. “