Víðförli - 15.05.1983, Side 6

Víðförli - 15.05.1983, Side 6
Þetta er trúlega upprisan, en engillinn virdist vera svipaður marsbúa - er þar hin edlilega skynjun bama af englum nú? Allir vildu sýninguna sjá. Líka smá- fólkið sem ég var svo heppinn að rekast sérstaklega á yfir sýningar- dagana. Mitt hlutverk var nefnilega að leiða börnin um sýninguna. Hringirnir urðu margir því áhugi smáfólksins var ekki minni en þeirra stóru sem þurftu síðan að borga sig inn á sýninguna. Eftir að við unga fólkið höfðum séð það helsta sem at- hygli okkar vakti settumst við niður í eitt af hornum Kjarvalsstaða og fengum að skapa okkar eigin verk með criolalitum og pappa. Kom í ljós að unga fólkið hafði margt og mikið að segja um málefni dagsins: Trúar- leg list. En málið var sýnilega mjög víðtækt, eins og öll sýningin vitnaði Jesús er krossfestur, kona er hjá krossi og velvopnaður hermaður, en hver kemur af himni? um. Það reyndist erfitt að skilgreina hvað trúarleg list fæli í sér. Það er svo margt sem gæti talist trúarleg list, allavega það sem kemur hinum jákvæða skapandi degi við. í þessu voru flestir sammála, bæði ungi listamannahópurinn sem og þeir sem sýndu verk sín í sölum Kjarvals- staða. Sum okkar teiknuðu regn- boga, Marsbúa, ömmu og afa Jesú og kisu. „Þeir stóru" voru líka með myndir í sama dúr. Skrítnir krossar og Kristar Sýningin er stór og því margt að sjá. í raun og veru margra daga verk fyrir byrjendur eins og okkur. En heildaráhrifin voru mjög jákvæð. Á sýningunni skynjuðum við óteljandi liti og benti það til þess að á nýjan leik ætlar kirkjan að nota glaða liti og fjölbreytta í starfi sínu. Við kynntumst margbreytilegum efnum sem nota má til þess að skapa hin ýmsu form og áhrif. Við tókum eftir stórum glerkrossi og öðrum kopar- krossi sem leit samt ekki út eins og neinn venjulegur kross. Líka sást of- inn kross. Við kynntumst hinum ýmsu gerð- um af Kristum, einn var stærstur allra, gerður úr vír og gifsi, en hann var opinn að framan. Einn af krökk- unum kom strax með skýringu. Nú er föstudagurinn langi og því er hann svona tómur, hann er svo ein- mana, Guð fór úr honum. Ekkert virtist vera ómögulegt í þessari list. Og það sem kom flest- um á óvart var að allt þetta var leyfi- legt. Biskup íslands hafði lagt bless- un sína yfir sýninguna. Frelsi ein- kenndi þessa sýningu sem var reyndar tilkomin vegna þess að frelsarinn var jú staðreynd, á Pásk- um '83. Um 50 Jesúar voru á sýning- unni (niðurstaða hópverkefnis okkar). Persónuleikar allra þessara Jesúa voru mjög misjafnir. Oft kom það okkur á óvart hvernig sumir listamannanna höfðu upplifað Jesú. Hann var ýmist staddur mitt í póli- tískri umræðu í Suður-Ameríku eða á hinum ýmsu stöðum á íslandi. Er þá listamaðurinn að glíma við sama vandamál og allir prestar og predik- arar. Að svara spurningunni: Hvern- ig mundi Kristur bregðast við í okkar málum og þeirra málum; eða: Að flytja Krist inn í samtímann, inn í nútíma aðstæður. Ný ímynd Jesú Þessi túlkun getur verið erfið. En á sýningunni var að finna vel- heppnaðar myndir sem tókst það vel. Ég minntist hve auðvelt krökk- unum þótti að túlka mynd Gísla Sig- urðssonar af Kristi og sölumönnun- um í musterinu. Þeim þótti mjög eðlilegt að Jesú væri reiður. „Hann er að reka út þá sem selja vopn og vilja vera í stríði. Jesú er að mótmæla stríðinu og kúguninni sem fólk býr við í dag“. Það kom mér á óvart hve eðlilega þau tóku þessari nýju Jesú- ímynd. Flest hafa þau líklegast alist upp við „ljósgeisla-Jesúinn" sem sjaldan er túlkaður sem sá pólitiski Kristur sem skiptir sér af stjórnmála- umræðu samtímans. Þá erum við komin að altaristöflu sem einu sinni var í Grímstungu- kirkju. Þar þykist einn úr hópnum þekkja Júdas úr lærisveinahópnum. Það reyndist rétt að Júdas var sá sem hann benti á (sá með pyngj- una). En það sem drengnum fannst aðallega benda á hver hann þessi vondi Júdas væri, var illa greitt hár Harpa er 5 ára og þetta er hennar kirkjulist. CPddur Æibertssan: Med smáfótki á Kjarvalsstöðum 6 - VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.