Víðförli - 15.05.1983, Side 8

Víðförli - 15.05.1983, Side 8
Séra Guðni Þór Ólafsson og Herbjört Pétursdóttir, bókasafnsfræðingur, eru prestshjón að því forna frægðarsetri Melstað í Húnavatnssýslu og búa þar ásamt börnum sínum sem væntanlega verða orðin fjögur við sumar- komu. „Ég hafði haldið því fram í guðfræðideildinni að enginn prestur ætti að vera lengur en svo sem 5 ár í hverju kalli, en árið í preststarfinu hefur kennt mér að sjá kosti þess að þjóna lengur á sama stað,“ segir sr. Guðni er Víðförli hitti þau hjón á stuttri Reykjavíkurferð fyrir skemmstu. „Hann Guðni er svo óþolinmóður að komast norður svo þetta verður eng- inn stans hjá okkur hér syðra. Það eru svo mörg verkefni sem bíða,“ segir Herbjört. „ Já, mér finnst ágætt að koma suður og ljúka sínum erindum en best er að vera þar sem maður tilheyrir þegar maður er í góðu formi," bætir sr. Guðni við. Heima á Melstað. Herbjört og séra Guðni Þór. Peir eru stórhuga, Húnvetningar Sr. Guðni Þór lauk guðfræðiprófi árið 1979 og var síðan um 2ja ára skeið við framhaldsnám í Erlangen í Þýskalandi. Hann vígðist sem far- prestur kirkjunnar og þjónaði Stykk- ishólmsprestakalli í námsleyfi sr. Gísla Kolbeins en var síðan kjörinn sóknarprestur í Melstaðarprestakalli í júlí 1982 en sr. Gísli hafði einnig þjónað því kalli áður. Prestur hefur ekki setið á Melstað í ein 7—8 ár og reyndar hafði húsið þar verið mann- laust um skeið áður en þau hjón flutt- ust þangað. „Það hafa margir sagt við okkur að þeim þyki gott að sjá aftur ljós á Melstað. Staðurinn hefur mikinn sess í huga margra sóknarbarna því að þarna hefur löngum verið setið með mikilli reisn, enda jörðin af- bragðs bújörð að mælikvarða eldri tíma. Jón biskup Arason byggði jörð- ina sr. Birni, syni sínum, og var hann þekktur af því að velja sonum sínum ekki kotin. Það voru ekki fáar ungu stúlkurnar sem fengu mótun og menntun hjá maddömunni á Mel- stað en það er nú víst ekki búist við því lengur," segir Herbjört og hlær hressilega. „Við kusum að búa á Melstað en ekki þar sem byggðin er þéttari. Þetta er nú einu sinni prests- setrið. Það hentar vafalaust ekki öll- um að búa svona sér. Menn þurfa að vera sæmilega sáttir við sjálfan sig og una sér vel með sjálfum sér og sín- um nánustu. En við kusum þetta að yfirveguðu ráði. “ „Það er líka mikilvægt fyrir prest að búa á kirkjustað," segir sr. Guðni „að hafa helgidóm á hlaðinu sem er griðland og dagleg áminning um hver maður er og í hvers þjónustu. “ - Þið finnið ekki fyrir því að búa afskekkt? „Nei, það er nú eitthvað annað. Við erum í þjóðbraut. Melstaður ligg- ur í miðju prestakallinu og við Norðurlandsbraut. Það er heldur að aðalþéttbýlið í prestakallinu sé svo- lítið útúr! Hinsvegar hef ég fengið ágæta starfsaðstöðu á Hvamms- tanga. Ég leigi þar herbergi í nýrri þjónustumiðstöð sem hýsir líka bókasafnið, rakarann, tannlækninn, sýslumann, sem kemur vikulega, og bókhaldsskrifstofu. Niðri er svo verslun. Þetta er prýðilegt fyrir- komulag og sparar fólki að fara alla leið að Melstað því að ég er þarna reglubundið. Húnvetningar eru glaðsinna og sjá gjarnan það bros- lega og þetta sambýli okkar hefur orðið til að létta geðið á löngum vetri. Þeir segja að þarna í húsinu fari menn fyrst í rakarastólinn, síðan í tannlæknastólinn og loks í skrifta- stólinn. Nú stundum er haft á orði að rakarinn hafi hendur í hári fólks, tannlæknirinn vaði ofan í þá og presturinn taki menn til bæna. En fólki virðist nú líka þessar aðfarir all- vel því að margt er þarna um manninn. “ 8 - VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.