Víðförli - 15.05.1983, Side 15

Víðförli - 15.05.1983, Side 15
Fastír styrktarmenn leggja grundvöU að starfí Hjálparstofnunar kirkjunnar Vilt þú bætast í hópinn? Um 750 einstaklingar styðja hjálparstarf Hjálparstofnunarinnar með föstum en frjálsum framlögum ársfjórðungslega og sóknarprestar leggja 1 % af laun- um sínum til starfsins. Fastir styrktarmenn gegna grundvallarhlutverki í hjálparstarfinu. Því er mikilvægt að nýir styrktarmenn bætist í hópinn því um leið eflist og styrkist hjálparstarfið. Komast peningarnir til skila? Hjálparstofnunin hefur á hendi langtímahjálp er miðar að hjálp til sjálfs- bjargar, og skyndihjálp í neyðartilfellum t.d. við slys og náttúruhamfarir, bæði innanlands og utan. Hjálparstofnunin stendur nú að stóru þróunar- verkefni í S.-Súdan, en þar starfa tveir íslendingar á vegum stofnunarinnar. Á sviði neyðarhjálpar hefur Hjálparstofnunin sent t.d. um 700 tonn af mat- vælum til Póllands sl. ár, hjálpað flóttamönnum frá Afghanistan og tekið þátt í samstarfsverkum alþjóðlegra kirkjusamtaka víða um heim. Hjálpar- stofnunin hefur leitast við í samstarfi við sóknarpresta að hjálpa einstakling- um, sem eiga í miklum vanda, stutt mannfélagshreyfingar, sem vinna að mannúðarmálum. Á síðasta ári stóð Hjálparstofnunin að söfnun til stuðn- ings slysavarna- og björgunarsveitum landsins. Styrktarmenn - vakandi samviska Styrktarmenn fylgjast náið með hjálparstarfinu og veita stofnuninni nauð- synlegt aðhald og traust. Þeir fá sent fréttabréf ársfjórðungslega þar sem greint er frá hjálparstarfinu. Styrktarmenn eru virkir þátttakendur. Ef þú vilt vera með Þá getur þú sent meðfylgjandi úrklippu eða hringt í síma Hjálparstofnunar- innar 91-26440 eða 91-25290. Ég óska eftir að gerast fastur styrktarmaður Hjálparstofnunarinnar með föstu framlagi ársfjórðungslega kr. Nafn .................................................... Heimilisfang ............................................ Aðalfúndur Hjálparstofh- unarinnar á Akureyri 2 Hver er sú rödd, er býr i brjosti mer og bergmálar írá öllum lifsins her, sú föðurrödd, sem metur oll vor mál, sú moðurrödd, er vermir lif og sál, sú rödd, sem eln er elliflega stillt, þó allar heimsins raddlr syngl vlllt, sú rödd, sem breytir daufri nótt i dag og dauðans ópi snýr i vonarlag? Guð er sú rödd. 3 Hver er sú hönd, er heldur þessum reyr um hæstan vetur, svo hann ekkl deyr, sú hönd, sem fann, hvar fruinkorn lifs mins svaf, sem fokstrá tók það upp og lif því gaf, sú hönd, er skin á hellagt sólarhvel og hverrar skuggi kallast feikn og hel, sú hönd, er skrlfar lifslns lagamál á llljublað sem ódauðlega sál? Guð er sú hönd. Sb. 1945 - M. Joch. Lagið „Hvað er það ljós?“ eftir Baldur Andrésson hefur tvisvar áður birst í Viðbæti Sálmasöngbókar okkar, sem gefinn var út árið 1946 og 1976. í báðum útgáfunum er að mestu farið eftir frumgerð lagsins, sem samið var í mars 1946. Síðar gerði höfundurinn nokkrar breyt- ingar á laginu: í níunda takti breytir hann einum tóni í laglínunni, enn- fremur eru níundi og tíundi taktur fjórraddaðir en voru áður einraddað- ir. í bréfi sem Baldur skrifaði Sigurði Björnssyni verkfræðingi (13. októ- ber 1967) gerir hann grein fyrir breyt- ingunum og endar bréf sitt á þessum orðum: „Þessar breytingar hygg ég, að séu til bóta og þannig vil ég hafa lagið". Nýlega barst mér í hendur annað handrit af laginu, skrifað af höfundi. Er það handrit að öllu leyti eins hvað nóturnar snertir, en höfundur gefur að auki upp hraða og nokkrar styrkleikabreytingar svo og dráttar- boga á tveim stöðum. Með þeirri viðbót birtist lagið hér. Sigurður Björnsson verkfræðingur skrifaði lagið upp og söng það með kirkjukór Garðakirkju þar sem hann er kórfélagi. Síðara handritið átti Haraldur Adolfsson, en hann kom með það til mín tveimur vikum áður en hann lést. Haraldur var kórfélagi í Garðakirkju um árabil. Við útför hans kvaddi kórinn ásamt sóknar- presti og undirrituðum tryggan vin með laginu og orðum síra Matthías- ar: „Hvað er það ljós?“ Systursonur Baldurs Andrés- sonar, Andrés Reynir Kristjánsson, gaf leyfi sitt til að birta lagið hér. Eru honum færðar þakkir fyrir. Haukur Guðlaugsson Árlegur aðalfundur Hjálparstofnun- ar kirkjunnar verður á Akureyri 3.-4. júní. Stjórnarmenn eru 25. Kjósa hin 15 prófastsdæmi landsins hvert sinn fulltrúa. Kirkjuráð 9 menn og auk þess er biskup sjálfkjörinn og er hann varaformaður stjórnar. Aðal- fundur kýs þriggja manna fram- kvæmdanefnd úr hópi stjórnar- manna og ber hún ábyrgð á dagleg- um rekstri stofnunarinnar. Aðal- fundur markar stefnu til framtíðar og metur unnin störf. Jan Erichsen framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar norsku kirkjunnar — Kirkens Nödhjælp — verður gestur fundarins og fjallar m.a. um sam- starf norsku og íslensku kirkjunnar að þróunarverkefninu í Suður Súdan sem og stöðu kirkjulegs hjálpar- starfs í heiminum. Otto A. Michael- sen er nú formaður aðalstjórnar Hjálparstofnunar kirkjunnar en sr. Bragi Friðriksson er formaður fram- kvæmdarnefndar. VÍÐFÖRLI -15

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.