Víðförli - 15.05.1983, Qupperneq 16

Víðförli - 15.05.1983, Qupperneq 16
Á Lúthersári Lúthersársnefnd hefur nú unnið að verki sínu um nokkurt skeið og vil ég nú greina frá nokkru sem á döf- inn er varðandi Lútherskynningu á þessu ári. Fróðleg ráðstefna í vændum Það er nú afráðið að efna til ráð- stefnu um Martein Lúther og siðbót hans dagana fjórða og fimmta nóv- ember næstkomandi. Er í ráði að þar verði flutt og rædd tíu erindi, er síðar verðir gefin út af Skálholti. Ráðstefna þessi verður að sjálf- sögðu öllum opin, enda við því búist að innihald erindanna verði við al- þýðuskap. Að ráðstefnu þessari munu standa Lúthersársnefnd, Sagnfræðingafélagið, Félag ís- lenskra fræða og Réttarsögufélagið, og leggur hver fram tvo til þrjá fyrir- lesara. Af þessari upptalningu má ljóst vera, að reynt verður að skyggnast ofaní og útskýra sem flestar hliðar á kenningu og starfi siðbótarinnar og huga að áhrifum hennar á íslenskt samfélag frá sext- ándu öld og fram á okkar dag. Sú er von okkar í Lútersársnefnd að ráð- stefna þessi, þar sem saman koma menn úr ólíkum en þó ekki óskildum fræðasviðum, verði til þess að glæða almennan áhuga og umræðu um þessi efni. Það hefur lengi borið við hér á landi að það sem oftlega hefur verið nefnt trúmál, kirkjumál eða andleg mál sé skoðað sem einhvers konar einkamál presta og guðfræð- inga og eigi því lítið erindi við um- ræðu um önnur fyrirbæri samfélag- ins, til að mynda menningarmál, sögu og stjórnmál, svo eitthvað sé nefnt; er þetta ástand mála hér öldungis furðulegt. Ef við tökum sið- bótina sem dæmi þá er ólíklegt að nokkur sá er vill íhuga þann þátt ís- lenskrar sögu og samfélags af sann- girni geti neitað því að siðbótin lút- herska hefur haft gríðarleg áhrif á allt samfélag manna hér á landi og hafa þau náð langt út fyrir svonefnd innri mál íslensku kirkjunnar. Það er svo önnur saga hvert mat menn leggja á áhrif og siðbótar kirkju, en víst eru umræða og upplýsing þar um forsendur að sanngjömum ályktunum. Fræðsluefni á Lútherskvöldum Þá má nefna að Lúthersársnefndin er nú að afla margvíslegs fræðslu- efnis sem verður hægt að nota á svonefndum Lútherskvöldum, er vonandi verða haldin í sem flestum söfnuðum og prestaköllum landsins aðra vikuna í nóvember. Fræðsluefni þetta er til að mynda filmræmur og stuttar kvikmyndir, ýmist fræðslu- myndir eða leiknar myndir, um Lút- her og siðbót hans. Verður efni þetta kynnt prestum á prestastefnu í júm' næstkomandi. Þ.H.Á. Þorbjörn Hlynur Árnason. Safnaðarheimili í sveit Sóknarfólk Hrepphólakirkju í Hmna- mannahreppi, 95 gjaldendur hafa byggt myndarlegt safnaðarheimili við hlið kirkjunnar og var það vígt á sumardaginn fyrsta af sr. Sigurði Pálssyni vígslubiskupi. Heimili hjónanna að Hrepphólum Elísabetar og Jóns Sigurðssonar hefur um áratugi þjónað sem safn- aðarheimili eins og algengt er um heimili á kirkjustöðum hérlendis. Börn þeirra hafa nú tekið við bú- skapnum og byggt sér íbúðarhús nokkuð frá kirkjunni en gamla íbúð- arhúsið hefur verið rifið. Var þá að ráði að reisa safnaðar- heimili til að skapa þá starfsaðstöðu við kirkjuna sem menn höfðu áður notið og mun það verða fyrsta safn- aðarheimilið í sveit hérlendis. Safnaðarheimilið er timburhús á steyptum grunni um 60 fermetrar. Sóknarmenn lögðu fram mikla sjálf- boðavinnu og öfluðu fjár á margvís- legan hátt, t.d. höfðu konur úr söfn- uðinum blóma- og kökusölu á Lækj- artorgi í Reykjavík. Brottfluttir sóknarmenn hafa gef- ið hljóðburðartæki til safnaðarheim- ihsins, svo að nú geta menn notið athafna í kirkjunni, þótt menn fái þar ekki sæti, enda rúmar hún að- eins um 100 manns. Nú höfum við talað um syndina og hina eilífu Mjög slæmur get óg nú ekki verið því á hverju glötun. Nú komum við að því alvarlega, nefni- nýbyrjuðu ári lofa ég sjálfum mér að byrja að lega kirkjubaukunum. fara í kirkju á sunnudögum. Nú eru komin út 7 tölublöð af Víðförla og má því segja að hann sé búinn að slíta barnsskónum. Reynslan hefur sýnt að hann er víðast auðfúsugestur og vonum við að svo verði áfram þó ekki verði lengur komist hjá að innheimta fyrir hann smágjald, svona rétt til þess að greiða póstburðargjöldin! Við vonum því að þú takir vel gíróseðli sem sendur verður út í júní. Það er eins með Víðförla og önnur blöð að það þarf fjármagn til að gefa hann út. Það er ósk okkar og von að Víðförli komist inn á sem flest heimili á landinu og hann eignist sem stærstan lesendahóp. Gjaldi er stillt mjög í hóf, eða kr. 11 í áskrift en kr. 8 til safnaða sem kaupa stórt upplag. Bestu kveðjur, Gunnlaugur Snævarr.

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.