Bæjarins besta - 03.03.1999, Side 1
Stofnað 14. ntvember 1984 • Sfmi 459 4589 • Fex 458 4584 • Netfaeg: bb@snerpa.is • Verð kr. 288 m/vsk
Ásberg Pétursson, eigandi Fiskverkunar Ásbergs ehf. í Hnífsda/
„Breytt rekstrarumhverfi og kvóta-
samdráttur meginástæða lokunar66
Ásberg Pétursson, eigandi Fiskverkunar Ásbergs ehf.
„Það hafa verið erfiðleik-
ar í þessum rekstri. Þegar
maður stóð frammi fyrir því
að draga saman seglin, þá
var hagstæðara að hætta rek-
stri fyrir vestan þó svo að
það sé auðveldara að selja
húsnæði fyrirtækisins í
Kópavogi. Við hófum rekst-
ur í Hnífsdal árið 1989 og
síðan þá hafa orðið miklar
breytingar á rekstrarum-
hverfmiL Við byrjuðum á
því að vinna fisk frá hand-
færabátum en síðan breytt-
ist rekstrarumhverfið, sér-
staklega með tilkomu fisk-
markaða. Fyrirfjórum árum
fórum við næreingöngu út í
vinnslu á grálúðu og erum
þeir einu hérlendis sem eru
sérhæfðiríþeirri fisktegund.
Sá rekstur gekk vel lengst
af en síðan kom þessi kvóta-
samdráttur og nú er ástandið
orðið þannig að það kemur
nánast engin fersk lúða að
landi. Þá má bæta því við að
við þurfum að borga toll af
nánast allri okkar framleiðslu
sem hjálpar ekki til við rekst-
urinn,” sagði Ásberg Péturs-
son eigandi Fiskverkunar Ás-
bergs ehf. í Hnífsdal, að-
spurður um ástæður þess að
hann hefur sagt upp starfs-
fólki fyrirtækisins í Hnífsdal,
alls 25 manns, auk þess sem
hann hefur ákveðið að hætta
rekstri hér vestra.
Auk rekstursins í Hnífsdal,
hefur Ásberg með höndum
fiskvinnslu í Kópavogi auk
þess sem hann sér um dagleg-
an rekstur Meleyrar hf. á
Hvammstanga og útflutnings-
fyrirtækisins Sæeyjar ehf. En
hvað hyggst hann fyrir með
húsnæði fyrirtækisins í Hnífs-
dal og tækjabúnað?
„Hugmyndin er að reyna
að selja fiskverkunina með
eða án tækjabúnaðar. Ef það
tekst ekki eru uppi hugmy ndir
um að flytja tækjabúnaðinn
til Kópavogs.”
Nú hefur komið fram í frétt-
um að öllu starfsfólki fisk-
verkunarinnar í Hnífsdal að
verkstjóranum undanskildum,
hafi verið boðið starf í Kópa-
vogi...
„Það er rétt að það kom
fram í fréttum að öllu starfs-
fólki nema Gunnari verkstjóra
hafi verið boðið starf í Kópa-
vogi. Ég taldi hins vegar að
Gunnar hefði ekki áhuga á
starfi syðra. Restin af starfs-
fólkinu er aðallega útlending-
ar og sumir þeirra voru búnir
að biðja um flutning. Það
mátti túlka það á fréttaflutn-
ingi að Gunnar hefði ekki
staðið sig, en það er ekki rétt.
Hann og allt starfsfólkið hefur
staðið sig frábærlega vel. Það
var mjög erfitt að þurfa að
lilkynna þessar breytingar en
það var ekkert annað að gera í
stöðunni. Það hafa verið
miklir erfiðleikar og við erum
búin að tapa miklum pening-
um á rekstrinum. Mér finnst
betra að skilja þannig við að
loka fyrirtækinu áður en í
óefni er komið.”
Aðspurður urn hvort hann
hafi orðið fyrir aðkasti vegna
ákvörðunar sinnar, segir hann
svo ekki vera enda telji hann
sig vera að gera rétt með því
að bjóða starfsfólkinu vinnu
fyrirsunnan. „Viðreynumað
rnilda afleiðingarnar eins og
við getum en það er alveg
ljóst að einhverjir þjónustu-
aðilar korna til með að rnissa
spón úr aski sínum. Ég vona
bara að það séu til menn vestra
til að halda áfram rekstri í
húsnæðinu.”
Heldurðu að þeir geti það
ef þú getur það ekki?
„Já það held ég. Aðstæður
mínar eru þannig eðlis að ég
er að vasast í svo mörgu. Auk
reksturs í Kópavogi og á
Hvammstanga erum við að
gera út togara sem við erum
að senda til veiða á Flæm-
ingjagrunn.”
Með þessum gerðurn er þín-
urn þætti lokið hér vestra?
„Já, eins og er en það er
aldrei að vita hvort maður
kemur aftur inn í rekstur fyr-
ir vestan," sagði Ásberg Pét-
ursson í samtali við blaðið.
Hann kvað það skoðun sína
að bæjarfélagið ætti að hafa
meiri áhrif á rekstur fyrir-
tækja m.a. með eignaraðild
að þeim eða öðrum stuðn-
ingi svo sem í formi ábyrgða
vegna langtímalána sem
fyrirtækin þurfa að taka.
Erfið/eikar í rekstri íshúsféiags ísfiróinga hf.
28 starfsmfinnum sagt upp
vegna endurskipulagningar
Tuttugu og átta starfsmönn-
urn í fiskvinnslu hjá íshúsfé-
lagi Isfirðinga hf. var sagt upp
sl. föstudag. Þar af voru 17
Islendingarog 11 útlendingar.
Álíka mörgum var í síðustu
viku sagt upp hjá Fiskverkun
Ásbergs í Hnífsdal, eða öllu
starfsliðinu, eins og kemur
fram annars staðar hér í blað-
inu. Þar að auki hefur fimm
rnanns verið sagt upp hjá
Básafelli á ísafirði. í þessari
miklu uppsagnahrinu hefur
því um 60 manns í Isatjarðar-
kaupstað hinum gamla verið
sagt upp. Pétur Sigurðsson,
forsetiAlþýðusambandsVest-
fjarða, nefnir þetta „reiðar-
slag“ og „náttúruhamfarir af
mannavöldum“.
Blaðið hefur undir höndum
uppsagnarbréf sem einn út-
lendinganna hjá Ishúsfélaginu
fékk sl. föstudag. Það hljóðar
svo: „Okkur þykir leitt að til-
kynna að með bréfi þessu er
yður sagt upp störfum hjá fyr-
irtækinu frá og með 28.
febrúar 1999 með samnings-
bundnum uppsagnarfresti, 1
mánuði. Vegna þessa rnun fyr-
irtækið ekki sækja um endur-
nýjun atvinnuleyfis fyrir yður.
Ástæður uppsagnarinnar eru
erfiðleikar í rekstri félagsins
og fyrirhuguð endurskipu-
lagning á honum. Um leið og
við þökkum þér ánægjulegt
samstarf og gott starf fyrir fé-
lagið óskum við þér brautar-
gengis í framtíðinni.“
Rekstur Ishúsfélags Isfirð-
inga hefur gengið illa síðustu
árin. Á síðustu fjórum til fimm
árunt er tapið komið vel yfír
hálfan milljarð króna. Þess er
skemmst að minnast, að vara-
Ishúsfélag Isfirðinga hf
stjórn fyrirtækisins tók við
stjórnartaumunum en allir
menn í aðalstjórn létu af
störfum í byrjun síðasta mán-
aðar. Einnig varð að sam-
komulagi að framkvæmda-
stjórinn léti af störfum. Þetta
gerðist í framhaldi af birtingu
úttektar svonefnds Þríhöfða á
rekstri félagsins.
Ishúsfélag ísfirðinga hf. er
aðnæröllu leyti íeigu Gunn-
varar hf. á ísafirði og hefur
verið um fimm ár. Á sameigin-
legum fundi stjórna beggja
félaganna var þrentur mönn-
um, þeim Elíasi Oddssyni,
Gunnari Þórðarsyni og Rúnari
Guðmundssyni falið að gera
úttektárekstri íshúsfélagsins,
greina vanda þess og gera til-
lögur um úrbætur. Skýrslan
var lögð fram 2. febrúar sl.
Sjá nánar á bls. 2 og 3.
HIN SÍGILDA BAKÁTTAN ÍH iir|
SAGA í GUE- _ HAFIN miR PC'H
NÝHRIMYND ALVÖftU!
— * *i
HAMRABORG
Sími: 456 3166