Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 03.03.1999, Blaðsíða 9
Stúlkurnar seitt skipuðu danshópinn Octopus. Besti árangur Vestfirð- inga í frjáisum dansi Octopus frá Bolungarvik í fjúrða sæti Danshópurinn Octopus í Bolungarvík varð í fjórða sæti á íslandsmótinu í frjálsum dansi (,,freestyle“) sem haldið var syðra fyrir skömmu. Þetta er besti árangur sent vestfirsk- ur hópur hefur náð í þessari grein. Stelpurnar fjórar í Octopus- hópnum heita Dagný Ólöf Jónsdóttir, Guðmunda Sjöfn Magnúsdóttir, Guðrún Hall- dóra Halldórsdóttir og Krist- rún Guðmundsdóttir. „Við æfðurn þennan dans í heilan mánuð til að búa okkur undir keppnina. Við fórurn suður á þriðjudegi þó að keppnin væri á föstudegi því að við vildum ekki missa af henni. Okkur langar til að þakka Valrúnu Valgeirsdóttur félagsmið- stöðvarstjóra fyrir að fara með okkur. Dagana sem við vorum í Reykjavík keyptum við peys- ur og létum setja nafnið Octo- pus framan á þær og fyrir- tækjamerki aftan á þær. Við viljurn þakka fyrirtækjunum sem styrktu okkur til ferðar- innar, en það eru Bakki, Bol- ungarvík, bæjarsjóður Bol- ungarvíkur, Hjá Fjólu, HP Hárstofan, Gná, Sandfell, Vöruval, Rafverk, Verslun Bjarna Eiríkssonar og Laufið. Og líkaTópas, félagsmiðstöð- inni okkar, fyrir að leyfa okkur að æfa þar“, segja þær Dagný, Guðmunda, Gunna Dóra og Kristrún, mjög ánægðar með árangurinn eins og vænta má. Súgfirðingar blóta þorra Súgfirðingar fjölmenntu á Góublót sem haldið var á Suðureyri sl. laugardags- kvöld. Árið 1936 héldu súg- firskar konur fyrst þorrablót og ári seinna þökkuðu karl- arnir fyrir sig og héldu þeim Góublót. Þannig skapaðist sú hefð að halda til skiptis Þorra- og Góublót og er ekki laust við dálítillar samkeppni gæti milli kynjanna. Ekki er hægt að segja annað en að körlun- um hafi tekist vel upp að þessu sinni og skemmti fólk sér hið besta, einkum þó yfir vel heppnuðum leikþætti sem sýndi þorpslífið í hnotskurn á spaugsaman hátt. Þegar skemmtidagskrá lauk, tók Hjónabandið við og lék fyrir dansi fram eftir nóttu með dyggri aðstoð heima- manna. Meðfylgjandi myndir voru teknar á blótinu. eru tölvunámskeiðin Tölvunámskeið fyrir byrjendur Undanfarin ár hafa orðið ótrúlegar framfarir í tölvuiðnaði. bæði hvað varðar vélbúnað og forritun. Af þeim sökum hafa tölvur orðið mun algengari en áður og í raun svo algengar að varla er hægt að ímynda sér fyrirtæki og jafnvel heimili sem ekki hafa tölvuvæðst. Um leið hefur þörfin fyrir hæft tölvufólk aukist mjög óháð starfsvettvangi hvers og eins. Það er ljóst að ætli fyrirtæki og einstaklingar að halda í við keppinauta sína verða þau að búa yfir þekkingu á tölvum og möguleikum þeirra. Til aö búa töivunotendur undir átökin við tæknina höfum við hjá Snerpu ákveðið aö bjóða upp á grunnnámskeið í helstu tölvuvinnslu. Námskeiðin eru þessi: Grunnur fyrir „tölvufælna“ - Byrjendanámskeió þar sem farið verður skref fyrir skref í uppbyggingu og notkun helstu forrita sem nú eru í notkun eins og Windows, Word- ritvinnslu, Excel-töflureikni og Internetnotkun. Þetta er tilvalið fyrir þá sem aldrei hafa snert á tölvu eða mjög lítið og eru óöruggir í aðgerðum sínum. Námskeiðstími: - tvö þriðjudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 - tvö fimmtudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 Windows- stýrikerfið, notendaumhverfi flestra tölva á almennum markaði. Tilvalið fyrir algera byrjendur og þá semhafa verið að vinna svolítið í tölvum en eru ekk fullkomlega vissir um hvað þeir eru að gera. Námskeióstími: - tvö mánudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 - tvö miðvikudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 Excel, töflureiknirinn, en þar er um alhliða forrit að ræða sem nýtist jafnt í texta- og reiknivinnu. Sýndar verða helstu aðgerðir Excel, uppsetning reiknijafna allt frá einföldum samlagningarmöguleikum til flóknari uppsetninga. Nýtist öllum sem vinna með texta og tölur. Námskeiðstími: - tvö þriójudagskvöld kl. 19:30-22:30 - tvö fimmtudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 Internetnotkun, fariö verður í möguleika Internetsins bæði sem tómstundatækis og til notkunar við upplýsingaleit fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Námskeiðstími: - tvö mánudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 - tvö mióvikudagskvöld kl. 19:30 - 22:30 Námskeiðin eru öll 12 klst. í heild,og kosta kr. 12.900,- á mann. Lágmarksfjöldi er 6 manns til að viðkomandi námskeiö verði haldið. Nánari upplýsingar gefa Auður í síma 456-5470 kl. 9-12 og 13-18 virka daga eða SvavarÞór í 862-6064 til kl. 22 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið namskeid@snerpa.is StaðfestingargjalcL við skráningu er kr. 3.000,- sem dregst af námskeiðsgjaldi en er ekki endurkræft ef viðkomandi hættir við. Skráning er gild þegar staðfestingargjald hefur verið greitt. Ath: Nýjar tölvur í tölvuverinu! Athugið! IMOKIA — «1 m JNk 5110 Frávært verð á GSM-aukahlutum: Taska + bílhleðslutæki f. GSM ... kr. 1.790,- Headsett fyrir 5110/6110..........kr. 1.990,- Segulfesting í bíl............... kr. 790,- Víbrararafhlaða f. 5110/6110 .... kr. 5.990,- MÁNACATA B - ÍSAFJÖRÐUR - 45B-54VO MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1999 9 Snerpa ehf. - Auglýsing

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.